Fara í efni

Vel sóttur íbúafundur á Skildi

25.03.2026
Fréttir

Íbúafundur, í tengslum við birtingu verkefnislýsingar fyrir mótun nýs aðalskipulags, fór fram þann 12. mars síðastliðinn í Félagsheimilinu Skildi. Fundurinn var vel sóttur og voru umræður líflegar og fróðlegar. Sveitarfélagið þakkar þátttakendum fyrir þeirra framlag.

Fulltrúar Alta, sem leiða verkefnið,  hafa tekið saman punkta frá fundinum en þá má nálgast hér.

Minnt er á vefkönnun til íbúa annarsvegar og landeigenda/ábúenda hinsvegar en svarfrestur er til og með 7. apríl.

Þá er einnig minnt á sérstakan aðalskipulagsvef þar sem hægt er að fylgjast vel með framgangi mála.

Getum við bætt efni síðunnar?