Verkalýðsdagurinn í Stykkishólmi
Verkalýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur 1. maí um land allt eins og vant er. i Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki standa fyrir hátíðahöldum á Snæfellsnesi. Dagskráin hefst í Stykkishólmi verður haldin á Fosshótel Stykkishólmi og hefst kl. 13:30.
Kynnir: Þóra Sonja Helgadóttir, verkefnastjóri Kjalar í Stykkishólmi
Ræðumaður: Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu-rannsóknarstofu vinnumarkaðarins.
Tónlistaratriði úr Tónlistarskóla Stykkishólms
Skemmtiatriði: Jón Jónsson
Fosshótel sér um kaffiveitingar
Félagsmenn og aðrir íbúar eru hvattir til að mæta og eiga saman góðan dag. Börn verða að vera í fylgd með fulloðnum.
