Vilt þú niðurfelld leikskólagjöld í desember?
Í tengslum við vinnu sveitarfélagsins um styrkingu leikskólans í Stykkishólmi samþykkti bæjarstjórn Stykkishólms árið 2023 tillögu skóla- og fræðslunefndar um niðurfelld leikskólagjöld í desember. Nú í ár verður leikskólanum lokað frá 23. desember til 4. janúar 2025, þetta eru samtals fjórir vinnudagar sem er hluti af betri vinnutíma sem er orðinn samningsbundinn réttur hjá KÍ og BSRB félögum.
Þá gefist foreldrum færi á því að fá leikskólagjöld fyrir desembermánuð felld niður gegn því að velja aðra af tveim leiðum hér að neðan:
- Leið 1
Að börnin séu í leyfi 22. desember, í dymbilviku og eina viku fyrir eða eftir sumarlokun (samtals 9 dagar). Ef barn er í elsta árgangi er miðað við að það sé í fríi fyrir sumarlokun.
- Leið 2
Að börnin séu í leyfi 22. desember og tvær vikur samliggjandi sumarlokun (samtals 11 dagar). Ef barn er í elsta árgangi er miðað við að það sé í fríi fyrir sumarlokun.
Áhersla er lögð á að um er að ræða tilfærslu á gjöldum. Í stað þess að fá felld niður gjöld þá daga sem börn mæta ekki til leikskóla sem tilgreindir eru í leið eitt og tvö, fá foreldrar leikskólagjöld í desember felld niður í staðinn. Með því fá foreldrar gjöld fyrir fleiri daga niðurfelld en ella.
Miðað er við að foreldrar skrái börn í leið 1 eða 2 fyrir 25. nóvember n.k. vilji þeir nýta afsláttinn. Framangreindur afsláttur miðast við að breytingar verði ekki á forsendum.
Foreldrar sem ekki geta nýtt sér þessar leiðir, geta eftir sem áður fengið felld niður gjöld á skráningardögum ef börn þeirra eru ekki skráð í leikskólann þá daga (sbr. leikskóladagatal, lágmarksstarfssemisskráning).
Áhersla á styrkingu leikskólastarfs í Stykkishólmi
Undanfarin ár hefur leikskólastarf á Íslandi tekið nokkrum breytingum. Árið 2020 var stofnaður starfshópur á vegum menntamálaráðherra sem skilaði af sér lokaskýrslu árið 2021 um styrkingu leikskólastigsins. Hópurinn lagði fram fjölþættar tillögur um hvernig efla megi skólastarf á leikskólastigi. Í þessu sambandi samþykkti bæjarstjórn Stykkishólms á 7. fundi sínum 8. desember 2022 að hefja sérstaka vinnu við styrkingu leikskólastarfs í sveitarfélaginnu ásamt aðgerðaráætlun strax á nýju ári til eflingar á starfsemi skólans, m.a. með áherslu á bætt starfsskilyrði, stöðuleika og aðbúnaði starfsfólks, og ná þannig að styrkja leikskólastarfið í víðum skilningi og bæta enn frekar það góða starf sem þar er unnið.
Sveitarfélagið fékk í kjölfarið til liðs við sig Önnu Magneu Hreinsdóttur, aðjunkt við Háskóla Íslands, til að vinna skýrslu um styrkingu leikskólastigsins í sveitarfélaginu ásamt aðgerðaráætlun. Í tengslum við vinnu við styrkingu leikskólastarfs í Stykkishólmi var m.a. efnt til samráðsfundar í ágúst síðastliðnum, en sá fundur var mjög vel sóttur. Fundurinn var opinn og öllum frjálst að skrá sig og taka þátt í vinnunni. Þátttakendum fundarins var skipt upp í hópa og ræddi hver hópur styrkleika, veikleika, ógnir og tækifæri í leikskólastarfi í Stykkishólmi. Í kjölfar fundar vann Anna Magnea Hreinsdóttir fyrrnenda skýrslu um styrkingu leikskólans í Stykkishólmi ásamt aðgerðaráætlun. Skýrsluna má lesa í heild sinni hér fyrir neðan.
Í skýrslunni kemur fram að brýnt sé að finna leiðir til að laða fleiri fagmenntaða leikskólakennara að leikskólanum. Meðal þeirra hugmynda sem ræddar hafa verið er aukin samræming vinnutíma og leyfa á stigunum tveimur, sem og að bæta aðstöðu. Eins þarf að skapa starfsfólki leikskólans aukið svigrúm til faglegrar samvinnu, til dæmis með fjölgun starfsdaga. Áríðandi er að skólastefnan sé virk og að henni sé fylgt eftir.
