Fara í efni

Vinna við nýtt aðalskipulag Stykkishólms heldur áfram

18.11.2026
Fréttir

Vinna við nýtt aðalskipulag fyrir sveitarfélagið Stykkishólm stendur nú yfir. Markmið verkefnisins er að móta framtíðarsýn fyrir þróun byggðar, atvinnulífs, samgangna og landnýtingar til næstu ára. Mikil áhersla er lögð á að tryggja að sjónarmið íbúa og landeigenda komi fram á undirbúningsstigi skipulagsvinnunnar.

Fyrr á árinu var haldinn íbúafundur og leitað eftir ábendingum frá íbúum um framtíð sveitarfélagsins. Samhliða fundi voru lagðar fram vefkannanir, annarsvegar fyrir íbúa og hinsvegar fyrir landeigendur. Enn vantar svör frá nokkrum landeigendum í sveitarfélaginu og er þeir sérstaklega hvattir til þátttöku.

Upplýsingar frá landeigendum eru mikilvægur grunnur við mótun aðalskipulagsins, enda veita þær betri innsýn í núverandi landnýtingu, framtíðaráform og þá möguleika sem felast í landi sveitarfélagsins.

Landeigendur eru því hvattir til að taka nokkrar mínútur og svara könnuninni á eftirfarandi slóð:

Könnun fyrir landeigendur

Getum við bætt efni síðunnar?