Fara í efni

Vinnuskóli - Starfstími og laun

27.05.2026
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur býður nemendum í 7. - 10. bekk með lögheimili í Stykkishólmi sumarvinnu í vinnuskólanum. Vinnuskólinn er oftast fyrsta launaða vinna unglinganna og því mikilvægur grunnur til að byggja á.

Markmið

Markmið vinnuskólans er að undirbúa ungmenni fyrir vinnu áður en haldið er út á hinn almenna vinnumarkað og skapa hollt og uppbyggjandi sumarstarf fyrir ungmenni í Stykkishólmi. Lögð er áhersla á góð samskipti, ástundun, vinnusemi og virðingu gagnvart starfinu, vinnufélögum, yfirmönnum og íbúum. Einnig eru kynnt grundvallaratriði í vinnubrögðum og notkun verkfæra.

Starfstími

Starfstími vinnuskólans sumarið 2026 er frá 8. júní til og með 17. júlí.

  • 13 ára (árg. 2013) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 4 klst. á dag, 5 daga vikunnar.
  • 14 ára (árg. 2012) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 4 klst. á dag, 5 daga vikunnar.
  • 15 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar.
  • 16 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 6 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar.

Starfsemi Samfélagsflokksins sumarið 2026 er frá 8. júní til og með 14. ágúst.

  • 15 ára (árg. 2011) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar.
  • 16 ára (árg. 2010) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar.
  • 17 ára (árg. 2009) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar. 
  • 18 ára (árg. 2008) hafa kost á vinnu í 10 vikur, 7 klst. á dag, 5 daga vikunnar.

Starfsemi hefst mánudaginn 8. júni 2026, mæting við Þjónustumiðstöðina að Nesvegi 7, kl. 8:00.

Laun og launagreiðslur

Laun starfsmanna verða sem hér segir:

  • 13 ára (árg. 2013): 1.257 kr./klst.
  • 14 ára (árg. 2012): 1.595 kr./klst.
  • 15 ára (árg. 2011): 1.958 kr./klst.
  • 16 ára (árg. 2010): 2.417 kr./klst.
  • 17 ára (árg. 2009): 2.541 kr./klst.
  • 18 ára (árg. 2010): 3.098 kr./klst.

Laun eru greidd út í lok mánaðar og eru lögð inn á bankareikning sem skal vera skráður á kennitölu starfsmanns.

Orlof er 13.04% sem bætist við ofangreindan taxta og er greitt út til launþega.

Nánari upplýsingar um launamál veitir Unnsteinn Logi Eggertsson, launafulltrúi, í síma 433-8100, netfang: unnsteinn@stykkisholmur.is

Yfirmenn og dagleg umsjón

Vinnuskólinn starfar á vegum sveitarfélagsins og heyrir undir þjónustumiðstöð. Dagleg stjórn er í höndum verkstjóra og flokkstjóra vinnuskóla. Verkstjóri vinnuskólans er Guðni Sumarliðason, verkstjóri í áhaldahúsi, sími 892 1189, netfang thjonusta@stykkisholmur.is

Getum við bætt efni síðunnar?