Fara í efni

Vonskuveðri spáð á miðvikudag

13.10.2026
Fréttir

Veðurstofa Íslands spáir vonskuveðri um land allt á morgun, miðvikudaginn 14. október. Í athugasemd veðurfræðings segir að mjög djúp og kröpp lægð nálgast landið úr suðri í nótt og skil frá henni gangi inn á landið í fyrramálið með austan stormi og talsverðri úrkomu. Gul viðvörun hefur verið gefin út fyrir Breiðafjörð frá kl. 09:00 til 20:00 á morgun, 14. október.

Björgunarsveitin Berserkir bendir á facebook síðu sinni á að tilvalið sé að nota daginn í dag til að ganga frá lausamunum eins og trampólínum og útihúsgögnum til að forðast veðurtengd óhöpp á morgun. Sveitarfélagið tekur undir með björgunarsveitinni og hvetur íbúa til að ganga frá öllu lauslegu í nærumhverfi sínu.

Íbúar eru hvattir til að fylgjast með veðrinu og vera ekki á ferðinni að óþörfu.

Veðurstofa Íslands

Getum við bætt efni síðunnar?