Fara í efni

Ágangur sauðfjár

Málsnúmer 2206044

Vakta málsnúmer

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar - 1. fundur - 23.06.2022

Lagt fram erindi Jörundar Svavarssonar þar sem er óskað eftir því formlega að sveitarfélagið sinni skyldu sinni og sjái til þess að sauðfé verði smalað af jörðum í hans eigu hið fyrsta vegna ágangs sauðfjár (Hrísakot, Hrísafell, Ytri- og innri Drápuhlíð, Efri Hlíð) á grundvelli 33. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. frá árinu 1986, eins og nánar er tilgreint í erindinu.
Bæta.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta bæjarráðsfundar og felur bæjarstjóra að afla gagna.

Bæjarráð Stykkishólmsbæjar og Helgafellssveitar - 2. fundur - 18.08.2022

Lagt fram erindi Jörundar Svavarssonar þar sem er óskað eftir því formlega að sveitarfélagið sinni skyldu sinni og sjái til þess að sauðfé verði smalað af jörðum í hans eigu hið fyrsta vegna ágangs sauðfjár (Hrísakot, Hrísafell, Ytri- og innri Drápuhlíð, Efri Hlíð) á grundvelli 33. gr. laga um afréttamálefni, fjallskil o.fl. frá árinu 1986, eins og nánar er tilgreint í erindinu.

Bæjarráð frestaði erindinu á 1. fundi sínum til næsta bæjarráðsfundar og fól bæjarstjóra að afla gagna.
Bæjarráð þakkar erindið. Bæjarráð bendir á að fyrir liggur leiðbeiningar og álit samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN2007003 þar sem tekin var efnisleg afstaða til ágreiningsefnisins. Bæjarráð telur, með vísan til framangreindrar niðurstöðu ráðuneytisins og lögfræðilegum rökstuðningi í því máli, þar sem fjallað var um skörun lagaákvæða á grundvelli forgangsreglna réttarheimildafræðinnar, að ekki séu forsendur til þess að sveitarfélagið gangi gegn fyrirliggjandi leiðbeiningum og áliti ráðuneytisins í þessum efnum. Með vísan til niðurstöðu áðurnefnds úrskurðar telur sveitarfélagið rétt að líta til ákvæða 8. gr. og 9. gr. laga um búfjárhald og að þau ákvæði gangi framan ákvæðum IV. kafla afréttarlaga. Af þessum sökum og með vísan til niðurstöðu samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins í máli nr. SRN-20070003 sér bæjarráð sér ekki fært að fallast á erindið.
Getum við bætt efni síðunnar?