Sveitarfélagsskilti
Málsnúmer 2505013
Vakta málsnúmerBæjarráð - 33. fundur - 12.05.2025
Lögð fram tillaga félags atvinnulífs í Stykkishólmi að nýju sveitarfélagsskilti.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að afla kostnaðarmats á uppsetningu þriggja skilta á sveitarfélagamörkum.
Bæjarráð - 34. fundur - 24.06.2025
Lögð fram að nýju tillaga félags atvinnulífs í Stykkishólmi að nýju sveitarfélagsskilti, en á 33. fundi bæjarráðs var bæjarstjóra falið að afla kostnaðarmats á uppsetningu þriggja skilta á sveitarfélagamörkum. Fyrir bæjarráð er lögð fram tilboð að sveitarfélagaskiltum, ásamt öðrum skiltum.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsfulltrúa um að ganga til samninga við Fagform ehf.