Fara í efni

Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga

Málsnúmer 2601023

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 40. fundur - 26.01.2026

Lögð fram gögn vegna fyrirhugaðrar lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.
Bæjarráð samþykkir lántöku sveitarfélagsins, enda byggir hún á fyrirliggjandi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, og vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.

Bæjarstjórn - 44. fundur - 29.01.2026

Lögð fram gögn vegna fyrirhugaðrar lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, lántöku sveitarfélagsins, enda byggir hún á fyrirliggjandi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, og vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 100.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði samþykkir bæjarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdis sveitarfélagsins, þ.m.t í viðhaldi og endurbótum fasteigna, fráveitu og hafnarmannvirkja. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Jakobi Björgvin Sigríðarsyni Jakobssyni, kt. 060982-5549, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. sveitarfélagsins, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Ragnar Már Ragnarsson situr hjá.

Til máls tók HG
Bókun:
Fyrir liggur lántaka upp á 100 milljónir sem er heildarlántaka ársins fyrir fjárfestingar skv. fjárhagsáætlun 2026. Það verður því ekki um frekar lántökur að ræða á árinu. Lántakan er óvenju snemma á árinu þar sem framkvæmdir síðasta árs gengu verulega á handbært fé er líða tók á árið og við því þarf að bregðast með því að auka það núna í upphafi árs. Handbært fé þarf að aukast fram á vorið svo hægt verði að hefja framkvæmdir í sumar. Áætlaðar fjárfestingar ársins eru langt umfram lántöku og að stórum hluta ófjármagnaðar og var talað um við fjárhagsáætlanagerð að ekki yrði byrjað á neinum framkvæmdum nema með yfirferð og samþykki bæjarstjórnar. Það er ljóst að bæjarstjórn þarf að fylgjast mjög vel með stöðu handbærs fjár og hefja ekki framkvæmdir nema tryggt sé að handbært fé dugi til að ljúka framkvæmdum.
Íbúalistinn
Haukur Garðarsson
Ragnar Már Ragnarsson
Kristján Hildibrandsson

Getum við bætt efni síðunnar?