Fara í efni

Bæjarstjórn

44. fundur 29. janúar 2026 kl. 17:07 - 17:32 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Ingi Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Forseti
  • Viktoría Líf Ingibergsdóttir varamaður
  • Kristján Hildibrandsson (KH) varamaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Jón Sindri Emilsson
  • Hrefna Gissurardóttir
  • Gyða Steinsdóttir
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Skipulagsnefnd - 38

Málsnúmer 2601001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 38. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Ungmennaráð - 9

Málsnúmer 2511011FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 9. fundar ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.

3.Bæjarráð - 40

Málsnúmer 2601002FVakta málsnúmer

Lögð fram 40. fundargerð bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir Breiðafjarðarnefndar

Málsnúmer 2005070Vakta málsnúmer

Lagðar fram nýjustu fundargerðir Breiðafjarðanefndar.
Lagt fram til kynningar.
Til máls tóku RMR og JBSJ

5.Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga 20252026 -

Málsnúmer 2601016Vakta málsnúmer

Lögð fram tilkynning um úthlutun byggðakvóta fyrir fiskveiðiárið 2025/2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundaáætlun bæjarstjórnar og bæjarráðs

Málsnúmer 1912004Vakta málsnúmer

Lögð fram fundaáætlun bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Lagt fram til kynningar.

7.Skýrsla um orkumál á rafkynntum svæðum á Vesturlandi

Málsnúmer 2601014Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla um orkumál á rafkynntum svæðum á Vesturlandi ásamt glærukynningu.



Bæjarráð vísaði málinu, á 40. fundi sínum, til umfjöllunar hjá dreifbýlisráði með sérstakri áherslu á tækifæri tengd Samkomuhúsinu Skildi.
Lagt fram til kynningar.

8.Ósk Íslenska Gámafélagsins um landsvæði til afnota

Málsnúmer 2508002Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að afnotasamningi við Íslenska Gámafélagið ehf. um tímabundin afnot af landsvæði við Flugvallaveg 20. Málið hefur áður verið tekið til umfjöllunar og afgreiðslu á fundum bæjarráðs, skipulagsnefndar og bæjarstjórnar þar sem samþykkt var að gerður yrði afnotasamningur við félagið.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, samninginn með áorðnum breytingum og vísaði honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

9.Undanþágulisti vegna verkfalla

Málsnúmer 2501002Vakta málsnúmer

Lagður fram undanþágulisti fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm vegna verkfalla.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, undanþágulistann og vísaði honum til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir undanþágulistann.

Samþykkt samhljóða.

10.Kársstaðir

Málsnúmer 2512009Vakta málsnúmer

Óskað er eftir að fá að byggja ibúðarhús í landi Kársstaða. Um er að ræða 103 m2 íbúðarhús sem væri staðsett um 45 m frá núverandi íbúðarhúsnæði.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 38. fundi sínum, byggingu nýs íbúðarhús þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, ákvörðun skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.

11.Skipan í farsældarráð

Málsnúmer 2601019Vakta málsnúmer

Fyrir liggur að skipa þarf fulltrúa sveitarfélagsins í farsældarráð.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, Klaudiu Gunnarsdóttur, formann velferðar- og jafnréttismálanefndar, sem aðalmann, og Jakob Björgvin Sigríðarson Jakobsson, bæjarstjóra, sem varamann.



Afgreiðslu málsins var vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir skipunina.

Samþykkt samhljóða.

12.Lántaka hjá Lánasjóði sveitarfélaga

Málsnúmer 2601023Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn vegna fyrirhugaðrar lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, lántöku sveitarfélagsins, enda byggir hún á fyrirliggjandi fjárhagsáætlun sveitarfélagsins, og vísaði afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkir hér með á fundi sínum að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð allt að kr. 100.000.000,- samkvæmt þeim lánaskilmálum sem í boði eru á þeim tíma sem lánið er tekið. Lántakan getur verið í formi skammtímaláns, sem forvera langtímaláns, eða sem langtímalán í þeim skuldabréfaflokkum sem Lánasjóðurinn býður hverju sinni. Bæjarstjórnin hefur kynnt sér skilmála viðkomandi skuldabréfaflokka eins og þeir birtast á heimasíðu Lánasjóðsins.
Til tryggingar láninu, þ.m.t. höfuðstól, vöxtum, verðbótum, dráttarvöxtum, uppgreiðslugjaldi og öðrum kostnaði samþykkir bæjarstjórn að tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjur og framlög úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, verði veðsettar.
Lánið er tekið til að fjármagna framkvæmdis sveitarfélagsins, þ.m.t í viðhaldi og endurbótum fasteigna, fráveitu og hafnarmannvirkja. Um er að ræða verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga nr. 150/2006 um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga.
Jafnframt er Jakobi Björgvin Sigríðarsyni Jakobssyni, kt. 060982-5549, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga f.h. sveitarfélagsins, sem og til að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda öll skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántökunni, þar á meðal beiðni um útborgun láns.
Samþykkt með 6 atkvæðum. Ragnar Már Ragnarsson situr hjá.

Til máls tók HG
Bókun:
Fyrir liggur lántaka upp á 100 milljónir sem er heildarlántaka ársins fyrir fjárfestingar skv. fjárhagsáætlun 2026. Það verður því ekki um frekar lántökur að ræða á árinu. Lántakan er óvenju snemma á árinu þar sem framkvæmdir síðasta árs gengu verulega á handbært fé er líða tók á árið og við því þarf að bregðast með því að auka það núna í upphafi árs. Handbært fé þarf að aukast fram á vorið svo hægt verði að hefja framkvæmdir í sumar. Áætlaðar fjárfestingar ársins eru langt umfram lántöku og að stórum hluta ófjármagnaðar og var talað um við fjárhagsáætlanagerð að ekki yrði byrjað á neinum framkvæmdum nema með yfirferð og samþykki bæjarstjórnar. Það er ljóst að bæjarstjórn þarf að fylgjast mjög vel með stöðu handbærs fjár og hefja ekki framkvæmdir nema tryggt sé að handbært fé dugi til að ljúka framkvæmdum.
Íbúalistinn
Haukur Garðarsson
Ragnar Már Ragnarsson
Kristján Hildibrandsson

13.Innritunarreglur Leikskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2502011Vakta málsnúmer

Lagðar fram uppfærðar innritunarreglur Leikskólans í Stykkishólmi sem samþykktar voru á 18. fundi skóla- og fræðslunefndar.



Bæjarráð staðfesti, á 30. fundi sínum, afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja uppfærðar innritunarreglur Leikskolans í Stykkishólmi.
Bæjarstjórn staðfestir innritunarreglur Leikskólans í Stykkishólmi.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku RMR og JBSJ

14.Heilsuefling 60

Málsnúmer 1907014Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að endurnýjun samnings við þjálfara heilsueflingar 60 ára og eldri í Stykkishólmi.
Bæjarstjórn samþykkir samninginn.

Samþykkt samhljóða.

15.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.

Fundi slitið - kl. 17:32.

Getum við bætt efni síðunnar?