Fara í efni

Skólastígur 12, nýbygging

Málsnúmer 2602008

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 46. fundur - 06.02.2026

Sótt er um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsi að Skólastíg 12 á einni hæð með risi. Heildarstærðin er 111m2, megin burðarvirkið eru steyptir sökklar og botnplata, útveggir og þak úr timbri.

Samhliða er sótt um leyfi fyrir geymsluskúr 15m2 að stærð.

Með umsókninni fylgja aðaluppdrættir frá Hjörleifi Sigurþórssyni dagsettum 02.02.2026
Í ljósi þess að lega hússins er ekki í samræmi við byggingarreit sem og geymsluskúr er stærri og hærri en heimilað er í deiliskipulagi vísar byggingarfulltrúi umsókninni til skipulagsnefdnar.

Skipulagsnefnd - 39. fundur - 11.02.2026

Sótt er um leyfi fyrir einbýlishús að Skólastíg 12 á einni hæð með risi, heildarstærð 111 m2. Samhliða er sótt um leyfi fyrir geymsluskúr 15 m2 að stærð.

Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd tekur vel í erindið en bendir á að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi Þinghúshöfða varðandi Skólastíg 12 áður en erindið er samþykkt.

Bæjarráð - 41. fundur - 19.02.2026

Sótt er um leyfi fyrir einbýlishús að Skólastíg 12 á einni hæð með risi, heildarstærð 111 m2. Samhliða er sótt um leyfi fyrir geymsluskúr 15 m2 að stærð.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd tók, á 39. fundi sínum, vel í erindið en benti á að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi Þinghúshöfða varðandi Skólastíg 12 áður en erindið er samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar.
Getum við bætt efni síðunnar?