Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Endurskoðun aðalskipulags
Málsnúmer 2206040Vakta málsnúmer
Verkefnislýsing aðalskipulagsvinnu til samþykktar skipulagsnefndar, sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Skipulagsráðgjafi kynnir lýsinguna.
Skipulagsráðgjafi kynnir lýsinguna.
Skipulagsnefnd þakkar Matthildi frá Alta fyrir góða kynningu.
Skipulagsnefnd samþykkir að kynna verkefnislýsinguna sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd samþykkir að kynna verkefnislýsinguna sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Gestur og bæjarfulltrúar viku af fundi.
2.Hraðhleðslustöðvar
Málsnúmer 2405055Vakta málsnúmer
Bæjarráð fól skipulagsfulltrúa, á 40. fundi sínum, að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi við lóð Atlantsolíu.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, verslunar- og þjónustusvæði, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, verslunar- og þjónustusvæði, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd fór yfir tillögurnar að breytingu á deiliskipulagi. Skipulagsnefnd valdi tillögu nr. 1 og leggur til að áfangaskipta eftir eftirspurn. Skipulagsfulltrúa er falið að fullvinna þá tillögu og leggja aftur fyrir skipulagsnefnd.
3.Framkvæmdaleyfisumsókn - Endurbygging Stykkishólmsvegar (58) Þingvallavegur - Stykkishólmur - Endurbætur
Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer
Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 vegna styrkingar og endurbyggingar Stykkishólmsvegar (58): Þingvallavegur - Stykkishólmur.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Skipulagsfulltrúi gerir grein fyrir framkvæmdaleyfisumsókn Vegagerðarinnar.
Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.
Skipulagsnefnd leggur til að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.
Gestir: Sigurbjartur Loftsson og Sævar Harðarson frá Skipavík mættu og kynntu sín áform í Víkurhverfi.
Bæjarfulltrúarnir Ragnar Már Ragnarsson, Ragnar Ingi Sigurðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir og Heiðrún Höskuldsdóttir sátu fundinn undir lið 4.
Bæjarfulltrúarnir Ragnar Már Ragnarsson, Ragnar Ingi Sigurðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir og Heiðrún Höskuldsdóttir sátu fundinn undir lið 4.
4.Samstarf um uppbyggingu í Víkurhverfi
Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer
Bæjarstjórn samþykkti, á 39. fundi sínum, að hefja viðræður við Skipavík ehf. um samstarf um skipulag og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis vestan Borgarbrautar í Víkurhverfi á grunni fyrirliggjandi gagna.
Bæjarstjórn vísaði samningaviðræðum við Skipavík ehf. til vinnslu í bæjarráði og lagði til samráð við skipulagsnefnd um skipulagshluta samningsins. Þá óskaði bæjarstjórn þess að fulltrúar Skipavíkur ehf. fengju sem fyrst tækifæri til þess að kynna áform sín og hugmyndir nánar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og skipulagsnefndar. Á 36. fundi bæjarráðs mættu fulltrúar Skipavíkur ehf. til fundar við bæjarráð og gerðu grein fyrir áætlunum sínum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja grunn að drögum að samkomulagi í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð.
Í samræmi við ofangreint voru lögð fram drög að samkomulagi milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf. á 40. fundi bæjarráðs.
Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að haldinn yrði sameiginlegur vinnufundur með fulltrúum skipulagsnefndar og bæjarstjórnar þar sem línur sveitarfélagsins yrðu lagðar og í framhaldi af þeim fundi muni bæjarráð funda ásamt formanni skipulagsnefndar með fulltrúum Skipavíkur ehf.
Bæjarráð fól bæjarstjóra að óska eftir fundi með Skipavík ehf. til að fjalla um samkomulag milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf.
Bæjarfulltrúar koma til fundar undir þessum lið.

Skipulagsnefnd þakkar fulltrúum Skipavíkur góða kynningu. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í frekari uppbyggingaráform í Víkurhverfinu og leggur til að bæjarráð gangi frá viljayfirlýsingu við Skipavík.
Steindór situr hjá.
Steindór situr hjá.
Gestir og bæjarfulltrúar viku af fundi.
5.Úlfarsfell, byggingarleyfisumsókn
Málsnúmer 2601005Vakta málsnúmer
Sótt er um leyfi til byggingar íbúðarhúss og bílskúr/gestarými í landi Úlfarsfells.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilar byggingu ný íbúðarhúss og bílskúrs/gestarými í landi Úlfarsfells, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en eimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar staðsett eitt frístundahús og geymsluhús.
6.Ægisgata 1, fyrirspurn um sólskála
Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer
Sótt er um leyfi fyrir sólskála, en hönnunin gerir ráð fyrir að sólskáli komi ofan á núverandi staðsteypta eggi framan við hús.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilar byggingu sólskála og telur ekki þörf á grenndarkynningu þar sem um er að ræða glerþak ofan á núverandi staðsteypta veggi framan við húsið. Staðsteypti veggurinn er 1,54 m á hæð og verður hækkunin 0,5 m eða 2,04 m þar sem hún er lægst og fer upp í 2,81 m þar sem hæðin er mest og er það fyrir miðju svæðisins.
7.Jónsnes, fuglaskoðunarhús
Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer
Sótt er að nýju um leyfi til byggingar fuglaskoðunarhúss í landi Jónsness. Umsóknin tekur mið af áður samþykktu leyfi sem rann út þar sem framkvæmd var ekki hafin innan gildistíma.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefnar.
Ennremur er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði að húsi.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefnar.
Ennremur er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði að húsi.
Skipulagsnefnd heimilar byggingu húnsæðis á grunni framanlagðra ganga, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eitt íbúðarhús, tvær geymslur og hjallur, skv. fasteignaskrá.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á að um sé fuglaskoðunarbirgi að ræða sbr. upptalningu í kafla 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar.
Í ljósi þess að ekki hefur verið fallist á að um fuglaskoðnarbirgi sé að ræða áréttar nefndin að formlega þarf að ganga frá skilgreiningu húsnæðisins, frístundahús/íbúðarhús, áður en áformin verða endanlega samþykkt af hálfu byggingarfulltrúa.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að húsið verði staðsett 50 m. frá sjó og að yfirlitsmynd sé í réttum kvarða.
Ekki er hægt að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði, þar sem gögn vantar s.s. hönnun vegarins og fl. gögn sbr. 7.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Umsagnir Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Minjastofnunar og Náttúruverndarstofnunar liggja fyrir. Skipulagsnefnd frestar afgreiðslu um framkvæmdaleyfi þar til fullnægjandi gögn berast.

8.Skólastígur 12, nýbygging
Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer
Sótt er um leyfi fyrir einbýlishús að Skólastíg 12 á einni hæð með risi, heildarstærð 111 m2. Samhliða er sótt um leyfi fyrir geymsluskúr 15 m2 að stærð.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd tekur vel í erindið en bendir á að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi Þinghúshöfða varðandi Skólastíg 12 áður en erindið er samþykkt.
9.Berserkjahraun Sjávarhús
Málsnúmer 2503016Vakta málsnúmer
Sótt er um leyfi til að byggja sjávarhús í landi Berserkjahrauns.
Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 29. fundi sínum þann 10. apríl 2025 og var samþykkt að afla umsagna frá Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun og að sækja þurfi framkvæmdaleyfi fyrir vegi að húsinu. Einnig benti skipulagsnefnd að byggingarreitur skuli ekki vera nær en 50 metrum frá fjöruborði miðað við stórstraumsflæði. Bæjarráð og bæjarstjórn staðfestu afgreiðslu skipulagsnefndar á 32. fundi bæjarráðs og 36. fundi bæjarstjórnar.

Skipulagsnefnd heimilar byggingu sjávarhúss/frístundahús í landi Berserkjahrauns þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eyðibygging og heimild er til að vinna deiliskipulag vegna frístundahúss.
Fundi slitið - kl. 20:00.
Bæjarfulltrúarnir Ragnar Már Ragnarsson, Ragnar Ingi Sigurðsson, Þórhildur Eyþórsdóttir og Heiðrún Höskuldsdóttir sátu fundinn undir lið 1, Hrafnhildur Hallvarðsdóttir var með á Teams.