Fara í efni

Bæjarráð

41. fundur 19. febrúar 2026 kl. 14:15 - 16:59 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson varamaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 46

Málsnúmer 2601003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 46. afgreiðslufundar byggingarfulltrúa.
Lagt fram til kynningar.

2.Skipulagsnefnd - 39

Málsnúmer 2602002FVakta málsnúmer

Lögð fram 39. fundargerð skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Skóla- og fræðslunefnd - 24

Málsnúmer 2602001FVakta málsnúmer

Lögð fram 24. fundargerð skóla- og fræðslunefndar
Lagt fram til kynningar.

4.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 992. fundar stjórnar Sambandsins frá 23. janúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

5.Farsímasamband í kjölfar lokunar 2G og 3G

Málsnúmer 2602003Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað frá Gagna ehf. vegna lokuna 2G og 3G farsímakerfi.
Lagt fram til kynningar.

6.Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030

Málsnúmer 2601015Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn sveitarfélagsins vegna tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026?2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026?2030.



Jafnframt eru lögð fram bréf sem sveitarfélagið sendi forsætisráðherra og innviðaráðherra þar sem áherslur sveitarfélagsins, einkum varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur, eru áréttaðar.
Lagt fram til kynningar.

7.Erindi Breiðafjarðarnefndar vegna jarðvinnu við Búðanes

Málsnúmer 2502003Vakta málsnúmer

Að beiðni Ragnars Más Ragnarssonar, bæjarfulltrúa, eru lögð fram svör sveitarfélagsins við fyrirspurn Breiðafjarðarnefndar vegna jarðvegsvinnu og mótun söguleiðar við Búðanes, en verkefnið byggir á samstarfi sveitarfélagsins og Minjastofnunar Íslands.
Lagt fram til kynningar.

8.Milliuppgjör - Desember 2025

Málsnúmer 2602020Vakta málsnúmer

Lagt fram milliuppgjör fyrir janúar til desember 2025.
Lagt fram til kynningar.
Steinunn I. Magnúsdóttir vék af fundi.

9.Merkjalýsing - Daddavík 6

Málsnúmer 2501003Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að breytingu á merkjalýsingu milli Daddavíkur 6 og Vatnsás 18, Golfklúbburinn Mostri. Þessi breyting er unnin samkvæmt breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis sem öðlaðist gildi í B-deild Stjórnartíðinda þann 3.7.2024 og er í gildi.
Bæjarráð samþykkir merkjalýsingu og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Steinunn I. Magnúsdóttir kom inná fund.

10.Þjóðhátíðarnefnd

Málsnúmer 2211003Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að kjöri í þjóðhátíðarnefnd 2026.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar skipuninni til bæjarstjórnar.
Á fundinn mætti Þorsteinn Guðjónsson frá Parka

11.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði

Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer

Á 40. fundi bæjarráðs var lögð fram tillaga um heimild fyrir rekstraraðila á hafnarsvæðinu til að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði á P1 út árið 2025 í gegnum útfærslu Parka ehf. Meginmarkmiðið t9llögunnar er að styðja ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu, efla þjónustu og bæta aðgengi gestum og viðskiptavinum.



Bæjarráð samþykkti, á 35. fundi sínum, að styðja við ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu með því að veita ferðaþjónustuaðilum í veitingarekstri og hafsækinni upplifunarþjónustu heimild til þess að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði á P1 út árið 2025 með útfærslu sem er í boði í gegnum Parka Lausnir ehf. Bæjarráð vísaði að öðru leyti áframhaldandi gjaldtöku og fyrirkomulagi hennar til umfjöllunar hjá atvinnu- og nýsköpunarnefnd. Í framhaldi af þeim fundi yrði haldinn sameiginlegum fundur fulltrúa sveitarfélagsins með ferðaþjónustuaðilum, FAS og öðrum hagsmunaraðilum varðandi útfærslu á gjaldtöku.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók, á 6. fundi sínum, framlagða tillögu til umræðu. Nefndin tók undir að gjaldtakan á hafnarsvæðinu sé mikilvægur þáttur í uppbyggingu og viðhaldi þeirra innviða sem þjónusta ferðamenn. Nefndin samþykkti fyrirliggjandi tillögu um að styðja við heimild rekstraraðila til að veita viðskiptavinum sínum gjaldfrjáls bílastæði, enda sé slíkt úrræði skynsamleg leið til að styðja við ferðaþjónustu á hafnarsvæðinu í ljósi gjaldtökunnar.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók jafnframt undir mikilvægi sameiginlegs fundar með ferðaþjónustuaðilum, FAS og öðrum hagsmunaaðilum til að móta framtíðarfyrirkomulag gjaldtöku á hafnarsvæðinu.



Rekstraraðilar á hafnarsvæði og aðrir hagsmunaaðilar voru boðaðir til fundar í Ráðhúsinu í Stykkishólmi í desember sl.



Á 40. fundi bæjarráðs var bæjarstjóra falið að endurskoða gjaldtöku með tilliti til umræðu á fundinum og leggja tillögu fyrir næsta fund bæjarráðs að undangenginni umfjöllun í atvinnu - og nýsköpunarnefnd.



Bæjarstjóri gerir grein fyrir fundum sínum með ferðaþjónustuaðilum á hafnarsvæði í samræmi við umræðu á síðasta fundi bæjarráðs með það að markmiði að aðlaga gjaldtöku á svæðinu þannig að hún hafi sem minnst áhrif á ferðaþjónustuaðila á hafnarsvæðinu. Á grunni framangreindra samtala er lögð fram fram tillaga að breyttri gjaldtöku á hafnarsvæði.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu að endurskoðun á gjaldskrám með fyrirvara um samráð við hafnarstjórn og atvinnu- og nýsköpunarnefnd.
Þorsteinn vék af fundi.

12.Velferðarnefnd undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar þar sem lagt er til að velferðarnefndir sveitarfélagana verði lagðar niður og stofnuð verði ein velferðarnefnd fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi sem verði færð undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.
Bæjarráð óskar eftir að forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga komi til fundar til þess að gera grein fyrir málinu.

13.Ný spennistöð við Austurgöt 4c

Málsnúmer 2602007Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Rarik vegna nýrrar spennistöðvar að Austurgötu 4c og lagna að spennistöðinni.
Bæjarráð samþykkir áform Rarik og vísar þeim til staðfestingar í bæjarstjórn.

14.Skúlagata 9 - Húsfélag

Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að húsfélagssamþykkt fyrir Skúlagötu 9.
Bæjarráð staðfestir fyrir sitt leyti húsfélagssamþykkt, sem samþykkt var af hálfu sveitarfélagsins áður en sveitarfélagið hóf sölu eigna úr húsnæðinu, og að skrifstofu- og fjármálastjóri og bæjarstjóri (til vara ef einungis einn frá sveitarfélaginu) verði fulltrúar sveitarfélagsins í stjórn húsfélagsins.

15.Styrkumsóknir

Málsnúmer 2303021Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms auglýsti þann 28. janúar, eftir styrkumsóknum frá einstaklingum og fyrirtækjum í samræmi við reglur um styrkveitingar. Umsóknarfrestur var til og með 18. febrúar. Lagðar eru fram styrkumsóknir sem bárust á auglýstum tíma.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

16.Málefni félags- og skólaþjónustu Snæfellsnes

Málsnúmer 2102011Vakta málsnúmer

Málefni Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga voru tekin til umræðu á 24. fundi skóla- og fræðslunefndar.
Bæjarráð vísar tillögu skóla- og fræðslunefndar til bæjarstjórnar.

17.Endurskoðun aðalskipulags

Málsnúmer 2206040Vakta málsnúmer

Lögð fram verkefnislýsing aðalskipulagsvinnu.



Skipulagsráðgjafi kynnir lýsinguna á 39. fundi skipulagsnefndar. Skipulagsnefnd samþykkti að kynna verkefnislýsinguna sbr. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja verkefnislýsinguna til kynningar skv. 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga.

18.Hraðhleðslustöðvar

Málsnúmer 2405055Vakta málsnúmer

Bæjarráð fól skipulagsfulltrúa, á 40. fundi sínum, að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi við lóð Atlantsolíu.



Skipulagsfulltrúi lagði, á 39. fundi skipulagsnefndar, fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, verslunar- og þjónustusvæði, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.



Skipulagsnefnd fór yfir tillögurnar að breytingu á deiliskipulagi. Nefndin valdi tillögu nr. 1 og lagði til að áfangaskipta eftir eftirspurn. Nefndin fól skipulagsfulltrúa að fullvinna þá tillögu og leggja aftur fyrir skipulagsnefnd.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

19.Úlfarsfell, byggingarleyfisumsókn

Málsnúmer 2601005Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til byggingar íbúðarhúss og bílskúr/gestarými í landi Úlfarsfells.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu ný íbúðarhúss og bílskúrs/gestarými í landi Úlfarsfells, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar staðsett eitt frístundahús og geymsluhús.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar með tveimur atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Ragnar Már Ragnarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

20.Ægisgata 1, fyrirspurn um sólskála

Málsnúmer 2601009Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi fyrir sólskála, en hönnunin gerir ráð fyrir að sólskáli komi ofan á núverandi staðsteypta veggi framan við hús.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu sólskála og taldi ekki þörf á grenndarkynningu þar sem um er að ræða glerþak ofan á núverandi staðsteypta veggi framan við húsið. Staðsteypti veggurinn er 1,54 m á hæð og verður hækkunin 0,5 m eða 2,04 m þar sem hún er lægst og fer upp í 2,81 m þar sem hæðin er mest og er það fyrir miðju svæðisins.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna málið fyrir eigendum Tangagötu 1 og 2 og Ægisgötu 3, 5, 7 og 9 og vísar afgreiðslu bæjarráðs til staðfestingar í bæjarstjórn.

21.Jónsnes, fuglaskoðunarhús

Málsnúmer 2602009Vakta málsnúmer

Sótt er að nýju um leyfi til byggingar fuglaskoðunarhúss í landi Jónsness. Umsóknin tekur mið af áður samþykktu leyfi sem rann út þar sem framkvæmd var ekki hafin innan gildistíma.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefnar.



Ennremur er sótt um framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði að húsi.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu húnsæðis á grunni framanlagðra ganga, þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eitt íbúðarhús, tvær geymslur og hjallur, skv. fasteignaskrá.



Skipulagsnefnd gat ekki fallist á að um fuglaskoðunarbirgi sé að ræða sbr. upptalningu í kafla 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar.



Í ljósi þess að ekki hefur verið fallist á að um fuglaskoðnarbirgi sé að ræða áréttaði nefndin að formlega þarf að ganga frá skilgreiningu húsnæðisins, frístundahús/íbúðarhús, áður en áformin verða endanlega samþykkt af hálfu byggingarfulltrúa.



Skipulagsnefnd lagði áherslu á að húsið verði staðsett 50 m. frá sjó og að yfirlitsmynd sé í réttum kvarða.



Ekki er hægt að veita framkvæmdaleyfi fyrir vegstæði, þar sem gögn vantar s.s. hönnun vegarins og fl. gögn sbr. 7.gr. reglugerðar um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012. Umsagnir Skipulagsstofnunar, Vegagerðarinnar, Minjastofnunar og Náttúruverndarstofnunar liggja fyrir. Skipulagsnefnd frestaði afgreiðslu um framkvæmdaleyfi þar til fullnægjandi gögn berast.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, með tveimur atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur, og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Ragnar Már Ragnarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

22.Skólastígur 12, nýbygging

Málsnúmer 2602008Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi fyrir einbýlishús að Skólastíg 12 á einni hæð með risi, heildarstærð 111 m2. Samhliða er sótt um leyfi fyrir geymsluskúr 15 m2 að stærð.



Byggingarfulltrúi vísaði erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd tók, á 39. fundi sínum, vel í erindið en benti á að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi Þinghúshöfða varðandi Skólastíg 12 áður en erindið er samþykkt.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar.

23.Berserkjahraun Sjávarhús

Málsnúmer 2503016Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að byggja sjávarhús í landi Berserkjahrauns.



Skipulagsnefnd tók erindið fyrir á 29. fundi sínum þann 10. apríl 2025 og var samþykkt að afla umsagna frá Minjastofnun og Náttúruverndarstofnun og að sækja þurfi framkvæmdaleyfi fyrir vegi að húsinu. Einnig benti skipulagsnefnd að byggingarreitur skuli ekki vera nær en 50 metrum frá fjöruborði miðað við stórstraumsflæði. Bæjarráð og bæjarstjórn staðfestu afgreiðslu skipulagsnefndar á 32. fundi bæjarráðs og 36. fundi bæjarstjórnar.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 39. fundi sínum, byggingu sjávarhúss/frístundahús í landi Berserkjahrauns þar sem heimild er fyrir því í Aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, en heimilt er að byggja fjögur stök íbúðarhús á jörðinni og þrjú frístundahús án þess að gera þurfi deiliskipulag. Á jörðinni er nú þegar eyðibygging og heimild er til að vinna deiliskipulag vegna frístundahúss.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar, með tveimur atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur, og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

Ragnar Már Ragnarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.

24.Samstarf um uppbyggingu í Víkurhverfi

Málsnúmer 2401022Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn samþykkti, á 39. fundi sínum, að hefja viðræður við Skipavík ehf. um samstarf um skipulag og uppbyggingu íbúðarhúsnæðis vestan Borgarbrautar í Víkurhverfi á grunni fyrirliggjandi gagna.



Bæjarstjórn vísaði samningaviðræðum við Skipavík ehf. til vinnslu í bæjarráði og lagði til samráð við skipulagsnefnd um skipulagshluta samningsins. Þá óskaði bæjarstjórn þess að fulltrúar Skipavíkur ehf. fengju sem fyrst tækifæri til þess að kynna áform sín og hugmyndir nánar á sameiginlegum fundi bæjarráðs og skipulagsnefndar. Á 36. fundi bæjarráðs mættu fulltrúar Skipavíkur ehf. til fundar við bæjarráð og gerðu grein fyrir áætlunum sínum. Bæjarráð fól bæjarstjóra að leggja grunn að drögum að samkomulagi í samræmi við umræður á fundinum og leggja fyrir bæjarráð.



Í samræmi við ofangreint voru lögð fram drög að samkomulagi milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf. á 40. fundi bæjarráðs.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að haldinn yrði sameiginlegur vinnufundur með fulltrúum skipulagsnefndar og bæjarstjórnar þar sem línur sveitarfélagsins yrðu lagðar og í framhaldi af þeim fundi muni bæjarráð funda ásamt formanni skipulagsnefndar með fulltrúum Skipavíkur ehf.



Bæjarráð fól bæjarstjóra að óska eftir fundi með Skipavík ehf. til að fjalla um samkomulag milli sveitarfélagsins og Skipavíkur ehf.



Á 39. fundi skipulagsnefndar mættu bæjarfulltrúar og fulltrúar Skipavíkur til fundar og gerðu grein fyrir málinu. Skipulagsnefnd tók jákvætt í frekari uppbyggingaráform í Víkurhverfi og lagði til að bæjarráð gangi frá viljayfirlýsingu við Skipavík.
Bæjarráð samþykkir viljayfirlýsingu við Skipavík ehf., með tveimur atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur, og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja hana.

Ragnar Már Ragnarsson situr hjá við afgreiðslu málsins.
Jón Aðalsteinsson mætti á fundinn

25.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6

Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningi sveitarfélagsins og Aftanskin, félags eldri borgara í Stykkishólmi, um afnot af Samkomuhúsinu við Aðalgötu 6. Samningurinn er í samræmi við áherslur fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins og miðar að því að koma húsnæðinu í nothæft ástand og í samfélagslega notkun í samstarfi við Aftanskin.



Bæjarráð tók, á 40. fundi sínum, jákvætt í fyrirliggjandi hugmyndir og fól bæjarstjóra að halda áfram viðræðum Aftanskin um fyrirliggjandi samningsdrög og lagði til að málið yrði kynnt safna- og menningarmálanefnd.
Bæjarráð vísar samningnum til samþykktar í bæjarstjórn.

Samþykkt með 2 atkvæðum Steinunnar I. Magnúsdóttur og Hrafnhildar Hallvarðsdóttur gegn einu atkvæði Ragnars Más Ragnarssonar.
Jón vék af fundi

26.Framkvæmdaleyfisumsókn - Endurbygging Stykkishólmsvegar (58) Þingvallavegur - Stykkishólmur - Endurbætur

Málsnúmer 2602010Vakta málsnúmer

Vegagerðin óskar eftir framkvæmdaleyfi vegna fyrirhugaðra framkvæmda skv. 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerðar nr. 772/2012 vegna styrkingar og endurbyggingar Stykkishólmsvegar (58): Þingvallavegur - Stykkishólmur.



Skipulagsnefnd lagði til, á 39. fundi sínum, að skipulagsfulltrúi afgreiði framkvæmdaleyfisumsóknina.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

27.Byggingaheimildir í dreifbýli

Málsnúmer 2310042Vakta málsnúmer

Á fyrsta fundi dreifbýlisráðs fjallaði skipulagsfulltrúi um heimildir til uppbyggingar í dreifbýlinu samkvæmt aðalskipulagi Helgafellssvetitar.



Drefibýlisráð lagði áherslu á að sveitarfélagið haldi sig við þá stefnumörkun og ákvarðanir sem sveitarstjórn Helgafellssveitar tók fyrir sameiningu hvað varðar túlkun á aðalskipulagi þar til aðalskipulagsbreyting verði gerð sem breyti þeirri stefnumörkun. Dreifbýlisráðið lagði áherslu á heilstætt mat fari fram hverju sinni, sér í lagi á bótaábyrgð sveitafélagsins.



Dreifbýlisráð lagði jafnframt til að málsgrein í kafla 4.1. í aðalskipulagi varðandi kröfu um deiliskipulag verði endurskoðað vegna þeirrar óvissu og óskýrleika sem málsgreinin hefur valdið.



Á 15. fundi skipulagsnefndar lagði skipulagsnefnd jafnframt til að felld verði út eftirfarandi setning í kafla 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2024: "Framkvæmdir skv. liðum eru allar deiliskipulagsskyldar", vegna óskýrleika ákvæðisins eins og dreifbýlisráðið hefur bent á, og á meðan unnið er að því að fella setninguna úr aðalskipulagi verði ný mál ekki tekin til afgreiðslu án deiliskipulags frá og með samþykkt bæjarstjórnar á tillögu þessari.





Eftir að kvöðin verður felld úr aðalskipulagi gefst ráðrúm til að vinna með íbúum í dreifbýli og dreifbýlisráði að endurskoðun byggingarheimilda samkvæmt aðalskipulagi.



Á 16. fundi sínum samþykkti bæjarráð afgreiðslu skipulagsnefndar og lagði til við bæjarstjórn að staðfesta hana.



Bæjarstjórn vísaði á 19. fundi sínum málinu til næsta bæjarráðsfundar.



Bæjarráð taldi, á 17. fundi sínum, að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi.







Þar til umrædd aðalskipulagsbreyting hefur tekið gildi verða umsóknir um byggingarheimildir í dreifbýli metnar heilstætt hverju sinni þar sem sérstaklega verði hugað að hugsanlega bótaábyrgð sveitarfélagsins vegna málsmeðferðar sveitarfélagsins.



Bæjarstjórn staðfesti á 20. fundi sínum afgreiðslu bæjarráðs.



Málið tekið fyrir að nýju upp á vettvangi bæjarráðs.
Bæjarráð felur skipulagsfulltrúa að hraða vinnu við umrædda breytingu á aðalskipulagi með það að markmiði að skýra umrætt ákvæði í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022.

Fundi slitið - kl. 16:59.

Getum við bætt efni síðunnar?