Fara í efni

Breyting á aðalskipulagi Helgafellssveitar vegna byggingarheimilda í dreifbýli

Málsnúmer 2603011

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 40. fundur - 11.03.2026

Bæjarráð taldi, á 17. fundi sínum, að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi.

Á 41. fundi bæjarráðs þá var skipulagsfulltrúa falið að vinna við umrædda breytingu á aðalskipulagi með það að markmiði að skýra umrætt ákvæði í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022.
Málið kynnt og tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd. Umræður voru um grein 4.1 í greinargerð aðalskipulags Helgafellssveitar. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að breytingum á aðalskipulagi.
Getum við bætt efni síðunnar?