Fara í efni

Bæjarráð

42. fundur 19. mars 2026 kl. 14:30 - 18:37 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá
Formaður bar upp tillögu um að eftirfarandi mál verði tekið inn á dagskrá fundarins með afbrigðum:

- 2107012 Stykkishólmur í sókn - Þekkingarnet Breiðafjarðar.

Er ofangreint mál sett inn sem mál nr. 32 á dagskrá fundarins.

1.Safna- og menningarmálanefnd - 7

Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 7. fundar safna- og menningarmálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Ungmennaráð - 10

Málsnúmer 2602006FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 10. fundar ungmennaráðs.
Lagt fram til kynningar.

3.Skipulagsnefnd - 40

Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 40. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Umsókn um lóð - Hamraendar

Málsnúmer 2603014Vakta málsnúmer

Lögð fram lóðarumsókn vegna fyrirhugaðra höfuðstöðva BB og sona ehf. á Hamraendum.



Afgreiðslu umsóknarinnar var frestað þar til endanlegt deiliskipulag lægi fyrir. Deiliskipulag svæðisins hefur nú verið samþykkt af hálfu bæjarstjórnar og fengið lögbundna umfjöllun af hálfu Skipulagsstofnunar.



Málið er því lagt fram til afgreiðslu í bæjarráði.
Lagt fram bréf frá BB og sonum ehf. þar sem félagið dregur umsókn sína um lóð á Hamraendum til baka. Í bréfinu kemur fram að ákvörðunin sé tekin í ljósi áforma innviðaráðherra um að fella brott skel- og rækjubætur og þeirrar óvissu sem þau áform skapa um rekstrarforsendur félagsins.

Bæjarráð tekur undir að um sé að ræða alvarlega stöðu sem upp er komin og harmar að forsendur hafi breyst með þeim hætti að félagið sjái sér ekki fært að halda áfram með fyrirhuguð uppbyggingaráform í sveitarfélaginu að svo stöddu.

5.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins frá 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

6.Viðhorfskönnun meðal starfsmanna sveitarfélagsins - Niðurstöður

Málsnúmer 2603016Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður viðhorfskönnunar sem lögð var fyrir starfsmenn sveitarfélagsins með það að markmiði að mæla viðhorf og starfsánægju starfsfólks sveitarfélagsins.



Fulltrúar Attentus koma til fundar við bæjarráð og gera grein fyrir niðurstöðum úr viðhorfskönnunar.
Bæjarráð lýsir ánægju sinni með jákvæðar niðurstöður úr starfsmannakönnun sveitarfélagsins.

7.Tækjabúnaður Brunavarna Stykkishólms og nágrennis

Málsnúmer 2602022Vakta málsnúmer

Slökkviliðsstjóri kemur til fundar og ræðir forsendur fyrir kaupum á körfubíl fyrir slökkviliðið.
Bæjarráð þakkar slökkviliðsstjóra fyrir yfirferðina á fundinum.

8.Velferðarnefnd undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar þar sem lagt er til að velferðarnefndir sveitarfélagana verði lagðar niður og stofnuð verði ein velferðarnefnd fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi sem verði færð undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.



Bæjarráð óskaði,, á 41. fundi sínum, eftir að forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga komi til fundar til þess að gera grein fyrir málinu.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í velferðar- og jafnréttismálanefnd.

9.Ósk um aðstöðustyrk

Málsnúmer 2602026Vakta málsnúmer

Lögð fram ósk Snæfells um aðstöðustyrk vegna fjölliðamóts á Íslandsmóti í körfubolta fyrir stelpur í 5.-6. bekk sem fram fer 27. - 29. mars nk.
Bæjarráð samþykkir umbeðinn aðstöðustyrk.

10.Umsagnarbeiðni - Tækifærisleyfi vegna skóladansleiks og undankeppni söngkeppni Samfés

Málsnúmer 2602027Vakta málsnúmer

Lögð fram umsagnarbeiðni um tækifærisleyfi fyrir skóladansleik og undankeppni söngkeppni Samfés fyrir Vesturland og Vestfirði í íþróttamiðstöð Stykkishólms.



Lögð fram umsögn sveitarfélagsins til staðfestingar.
Bæjarráð staðfestir umsögn sveitarfélagsins.

11.Fjallkonan kraftakeppni

Málsnúmer 2504014Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Núma Hjaltasyni, forsprakka Fjallkonunnar - kraftakeppni.
Bæjarráð samþykkir að styrkja keppnina um 150.000 kr. ef af verður.

12.Samþætting skólastarfs - Samrekstur grunnskóla og tónlistaskóla Stykkishólmsbæjar

Málsnúmer 2102042Vakta málsnúmer

Lagt fram minnisblað skólastjóra og tillaga vegna stöðu deildarstjóra við Tónlistarskóla Stykkishólms.
Bæjarráð samþykkir tillöguna og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

13.Sögu og menningararfur í Stykkishólmi - Menningartengd ferðaþjónusta

Málsnúmer 1905057Vakta málsnúmer

Lögð fram lokagögn vegna hönnunar sögu- og gönguleiðar um Hjallatanga og Búðarnes. Verkefnið á sér nokkra forsögu, en það byggir á vinnu sveitarfélagsins frá árinu 2019 um eflingu átthagafræðslu, sýnileika sögunnar og þróun menningartengdrar ferðaþjónustu. Í framhaldi af þeirri stefnumótun var sótt um og fékkst styrkur til hönnunar verkefnisins á árunum 2021-2023.



Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Minjastofnun Íslands og snýr að því að bæta aðgengi, stýringu og miðlun sögu svæðisins, sem er ríkt af menningarminjum og tengist upphafi verslunar í Stykkishólmi. Markmið verkefnisins er að gera svæðið aðgengilegra fyrir íbúa og gesti, styrkja útivist og náttúruupplifun og miðla sögu og menningararfi með vönduðum hætti.

Samkvæmt framlagðri hönnun er gert ráð fyrir gönguleiðum, áningastöðum, útsýnisstöðum og fræðsluskiltum þar sem leitast er við að lágmarka rask á landi og láta mannvirki falla sem best að náttúru og minjum svæðisins. Verkefnið er hugsað í áföngum, þar sem hönnun er fyrsta skref en framkvæmd stígagerðar og uppsetning miðlunarefnis næstu skref.



Jafnframt liggur fyrir kostnaðarnálgun vegna framkvæmda, þar sem heildarkostnaður við uppbyggingu áningastaða, stíga, mannvirkja og skiltagerðar er áætlaður um 45-50 m.kr., eftir útfærslu og áföngum.
Bæjarráð óskar eftir áframhaldandi samstarfi við Minjastofnun um verkefnið með það að markmiði að tryggja að næstu áfangar verkefnisins fái framgang á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.

14.Umsókn um stöðuleyfi - Agnið matarvagn

Málsnúmer 2603007Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir matvagn á hafnarsvæði.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu hafnarstjórnar.

15.Umsókn um stöðuleyfi - Fish&Chips

Málsnúmer 2603006Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir matvagn á hafnarsvæði.
Bæjarráð samþykkir stöðuleyfi með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu hafnarstjórnar.

16.Umsagnarbeiðni - Rekstur gististaðar, Höfðabær

Málsnúmer 2603010Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Farfuglaheimilisins Sjónarhóls ehf. um rekstrarleyfi til reksturs gististaðar í flokki II, minna gistiheimili, sem rekið verður sem Höfdabær að Höfðagötu 3 í Stykkishólmi. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa vegna málsins.
Bæjarráð sér sér ekki fært að veita jákvæða umsögn um málið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa.

17.Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2026-2029

Málsnúmer 2510020Vakta málsnúmer

Lögð fram tvö erindi skólastjóra þar sem óskað er eftir breytingum á fjárhagsáætlun vegna annarsvega tækjakaupa og hinsvegar aðbúnaði skóla.
Bæjarráð samþykkir erindi skólastjóra og vísar málinu til endanlegrar afgreiðslu í viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026 og fjárhagsáætlun 2027.

18.Sala á húsnæði - Skúlagata 9

Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer

Lagt fram formlegt kauptilboð í íbúð 211 að Skúlagötu 9.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi kauptilboð.

19.Sjávarútvegsstefna og skelbætur

Málsnúmer 2312008Vakta málsnúmer

Innviðaráðherra hefur lagt fram fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild) þar sem lagt er til að fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur.



Frumvarp innviðaráðherra er lagt fram.



Þá er lögð fram ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vestulandi vegna málsins og afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum vegna áforma innviðaráðherra um skelbætur.
Bæjarráð Stykkishólms tekur undir ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um skelbætur og línuívilnun og leggst eindregið og hart gegn fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra.

Bæjarráð telur að fyrirhuguð lagabreyting muni hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélagsins, verði hún að veruleika. Verði frumvarpið að lögum getur það haft grafalvarleg áhrif á sveitarfélagið og aukið verulega hættu á að starfsemi, sem byggir m.a. á skelbótum, leggist af í sveitarfélaginu.

Bæjarráð bendir á að neikvæð áhrif áformanna eru þegar farin að koma fram og vísar í því sambandi til bréfs BB og sona ehf., dags. 18. mars 2026, um afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum, þar sem fram kemur að félagið sjái sér ekki fært að halda áfram með fyrirhuguð uppbyggingaráform í sveitarfélaginu vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur vegna áforma innviðaráðherra.

Bæjarráð skorar á ríkisstjórn, sér í lagi innviðaráðherra, og Alþingi að falla frá frumvarpinu og hefja raunverulegt samráð við sveitarfélög og atvinnulíf um framtíð fiskveiðistjórnarkerfisins með það að markmiði að tryggja áfram byggðafestu, stöðugleika og fjölbreytt atvinnulíf á landsbyggðinni.

20.Barnvæn Sveitarfélög

Málsnúmer 2510023Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá UNICEF á Íslandi sem hefur nú opnað fyrir umsóknir um þátttöku í verkefninu Barnvæn sveitarfélög.



Bæjarráð vísaði erindinu, á 37. fundi sínum, til umsagnar í æskulýðs- og íþróttanefnd og ungmennaráði.



Ungmennráð taldi, á 9. fundi sínum, Sveitarfélagið Stykkishólm vera að uppfylla flestar tillögur og hollráð sem UNICEF leggur fyrir. Ráðið vildi þó ekki taka formlega ákvörðun nema fá nánari upplýsingar um hvað felst í því að taka þátt í verkefni UNICEF um barnvæn sveitarfélög.



Á 10. fundi sínum óskaði ungmennaráð eftir kynningu á vekefninu og hvað felist í umsókn um þátttöku sveitarfélagsins frá fulltrúa UNICEF fyrir ungmennaráð og bæjarstjórn.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu ungmennaráðs.

21.Breyting á aðalskipulagi Helgafellssveitar

Málsnúmer 2603011Vakta málsnúmer

Bæjarráð taldi, á 17. fundi sínum, að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi.



Á 41. fundi bæjarráðs var skipulagsfulltrúa falið að vinna við umrædda breytingu á aðalskipulagi með það að markmiði að skýra umrætt ákvæði í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022.



Málið var kynnt á 40. fundi skipulagsnefndar og tekið til umfjöllunar. Umræður voru um grein 4.1 í greinargerð aðalskipulags Helgafellssveitar. Skipulagsfulltrúa var falið að vinna áfram að breytingum á aðalskipulagi.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

22.Klapparás - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klapparáss, verslun- og þjónusta, lóð 3 Hleðsluinnviðir.

Óskað er eftir að fá að auglýsa tillöguna að breytingu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.



Á 40. fundi skipulagsnefndar var lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulaginu. Þá voru lögð fram gögn sem borist hafa frá Atlantsolíu þar sem óskað er eftir að stækka lóð Atlantsolíu á kostnað lóðar 3 og koma þar fyrir hraðhleðslustöðvum og bílaþvottastöð.



Skipulagsnefnd lagði til að ræða við ON varðandi aðstöðu á lóð 3 eftir breytingu. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að ræða við Instavolt um staðsetningu og útlit stöðva í miðbænum.

Með vísan til framanritaðs og fyrirliggjandi gagna fól skipulagsnefnd skipulagsfulltrúa að uppfæra deiliskipulagsbreytinguna m.t.t. nýrra gagna og umræðna á fundinum.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi Atlantsolíu og lýsir yfir áhuga á stækkun lóðar fyrir hraðhleðslustöð og bílaþvottastöð í samræmi við fyrirliggjandi erindi.

Varðandi lóð 3 telur bæjarráð að skoða ætti tvo möguleika við vinnslu deiliskipulagstillögu, annars vegar með hraðhleðslustöðvum og hins vegar byggingarreit fyrir þjónustu- og atvinnuhúsnæði.

Bæjarráð vísar öðrum tillögum um uppbyggingu hraðhleðslustöðva til áframhaldandi vinnslu hjá sveitarfélaginu, sbr. Orkuskipti í samgöngum, málsnr. 2006042.

Bæjarráð staðfestir að öðru leyti afgreiðslu skipulagsnefndar.

23.Söguskilti um miðbæ Stykkishólms við Bókhlöðuhöfða

Málsnúmer 2603012Vakta málsnúmer

Fyrir rúmu ári síðan fékk Anna Melsteð styrk frá Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins Stykkishólms vegna sögumiðlunar um miðbæ Stykkishólms. Lögð er fram tillaga Önnu að söguskilti um gamla miðbæinn sem óskar eftir að fá að setja það upp á Bókhlöðuhöfða.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 40. fundi sínum, fyrir sitt leyti að setja upp söguskilti við Bókhlöðuhöfða, en gerir ráð fyrir að efnisatriði skiltisins fái umfjöllun í safna- og menningarmálanefnd eða bæjarstjórn. Nákvæm staðsetning skiltis skal vera í samráði við skipulagsfulltrúa.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

24.Auglýsingaskilti

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Led Birtingar óskar eftir að fá leyfi til að setja upp tímabundinn færanlega LED auglýsingaskjá í Stykkishólmi. Um er að ræða skjá sem er u.þ.b. 10 fermetrar að stærð. Tímabilið sem óskað er eftir er 1. apríl - 1. september 2026.



Skipulagsnefnd þakkar erindið en sér ekki fyrir sér að settur verði upp 10 fermetra ledskjár innan þéttbýlis.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

25.Orkuskipti í samgöngum - hraðhleðslustöðvar

Málsnúmer 2006042Vakta málsnúmer

Lögð fram drög að samningum við Orkusöluna og Teslu ásamt skýringarmyndum vegna hraðhleðslustöðva.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samninga gegn því að skipulagsfulltrúi samræmi gjaldtöku vegna stöðvanna.

Bæjarráð samþykkir jafnframt fyrirliggjandi tillögur að uppsetningu hraðhleðslustöðva í sveitarfélaginu með fyrirvara um endanlega staðfestingu af hálfu skipulagsnefndar.

26.Erindi frá Markaðsstofu Vesturlands

Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá Markaðsstofu Vesturlands sem vegna almyrkva á Vesturlandi, kanna möguleika á því hvort landeigendur geti sett upp tímabundin tjaldsvæði í ágúst í almyrkvann.
Bæjarráð samþykkir aðkomu sveitarfélagsins að þessu verkefni.

27.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6

Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer

Lagðar fram niðurstöður loftgæðamælinga í Samkomuhúsinu í Stykkishólmi.
Bæjarráð lýsir ánægju yfir jákvæðum niðurstöðum og felur bæjarstjóra að senda niðurstöðurnar til Aftanskins.

Samþykkt með tveimur atkvæðum Hrafnhildar Hallvarðsdóttur og Steinunnar Ingibjargar Magnúsdóttur, bæjarfulltrúa H-lista gegn einu atkvæði Hauks Garðarssonar, bæjarfulltrúa Í-lista.

28.Bæjarstjórn unga fólksins

Málsnúmer 2311010Vakta málsnúmer

Á 9. fundi ungmennaráðs fór fram umræða um bæjarstjórn unga fólksins. Ungmennaráð lagði til við bæjarstjórn að næsti bæjarstjórnarfundur unga fólksins færi fram 7. maí 2026.



Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldinn en óskar eftir annarri tillögu að fundartíma sem fellur betur að fyrirliggjandi fundaráætlun bæjarráðs og bæjarstjórnar.



Ungmennaráð lagði á 10. fundi sínum til að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldið 9. apríl, 2026.
Bæjarráð samþykkir fundartíma og vísar málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

29.Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins

Málsnúmer 2311014Vakta málsnúmer

Lögð fram húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2026.
Bæjarráð vísar húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2026 til samþykktar í bæjarstjórn.

30.Framtíðaráform Vatnasafns

Málsnúmer 2010035Vakta málsnúmer

Lögð fram gögn varðandi framtíðarform og þróun Vatnasafns. Jafnframt er lagt fram minnisblað bæjarstjóra, unnið að beiðni formanns nefndarinnar, um fund bæjarstjóra og forsætisráðherra vegna málsins, ásamt öðrum minnisblöðum og gögnum sem tengjast málinu.



Safna- og menningarmálanefnd lýsti, á 4. fundi sínum, skýrum vilja til að ná samningi um framtíð Vatnasafns í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin ríka áherslu á mikilvægi þess að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða í samræmi við fyrirliggjandi gögn, enda sé slíkur stuðningur lykilatriði í ljósi umfangsmikilla og langtímasamninga sem nú liggja fyrir um rekstur safnsins. Nefndin tók jafnframt undir efni minnisblaðs bæjarstjóra, minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi og fundargerð vinnuhóps um framtíðarfyrirkomulag safnsins.



Bæjarráð samþykkti á 24. fundi sínum afgreiðslu nefndarinnar og vísaði málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns.



Safna- og menningarmálanefnd þakkaði, á 6. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar, þar á meðal minnisblað bæjarstjóra, drög að nýjum samningi um Vatnasafnið og minnisblað verkefnastjóra menningarmála á Vesturlandi. Nefndin taldi að framangreind gögn varpi skýru ljósi á bæði menningarlegt gildi Vatnasafnsins og þau umfangsmiklu fjárhagslegu og rekstrarlegu verkefni sem tengjast framtíð safnsins. Nefndin ítrekaði fyrri afstöðu sína, líkt og fram kom á 4. fundi nefndarinnar, um að mikilvægt sé að ná samningi um framtíð Vatnasafnsins í Stykkishólmi. Í því samhengi lagði nefndin þunga áherslu á að sveitarfélagið fái viðeigandi stuðning til uppbyggingar menningarinnviða og til að mæta þeim langtímasamningsskuldbindingum sem fram koma í nýjum samningsdrögum. Nefndin tók undir þau sjónarmið sem fram koma í minnisblaði bæjarstjóra um að utanaðkomandi fjármögnun sé nauðsynleg forsenda þess að unnt sé að gera bindandi samning til lengri tíma. Nefndin tók jafnframt undir að tækifæri til að efla menningartengda ferðaþjónustu og samfélagslega virkni safnsins séu veruleg og vægi þess innan samtímalistar er ómetanlegt, en að viðhaldsþörf húseignarinnar og listaverksins kalli á aðkomu ríkisins, líkt og rakið er í framlögðum gögnum.



Safna- og menningarmálanefnd hvatti til þess að vinnuhópur um framtíð Vatnasafns fundi með annars vegar fulltrúum ríkisins og hins vegar fulltrúum listamannsins til að fara yfir stöðu málsins. Með vísan til framangreinds samþykkti nefndin að vísa málinu áfram til frekari vinnu í vinnuhópi um framtíð Vatnasafns og óskaði eftir að næstu skref í samningsgerð verði lögð fyrir nefndina þegar þau liggja fyrir.



Bæjarráð þakkaði, á 39. fundi sínum, fyrir framlagðar upplýsingar og ítarlega umfjöllun safna- og menningarmálanefndar um framtíðaráform Vatnasafnsins. Bæjarráð tók undir afstöðu nefndarinnar um að utanaðkomandi fjármögnun sé lykilforsenda þess að unnt sé að gera langtímasamning um rekstur safnsins. Bæjarráð staðfesti að öðru leyti afgreiðslu nefndarinnar. Bæjarráð samþykki að vísa málinu áfram til áframhaldandi vinnu starfshóps um framtíð Vatnasafnsins og fól bæjarstjóra jafnframt að fylgja málinu eftir gagnvart ríkinu. Bæjarráð óskaði einnig eftir að starfshópurinn leggi fram tillögur um næstu skref í samningsgerð og aðkomu ríkisins þegar þær liggja fyrir.



Bæjarstjórn staðfesti afgreiðslu bæjarráðs og safna- og menningarmálanefndar á 43. fundi sínum.



Á 40. fundi bæjarráðs var málið tekið up upp að nýju í kjölfar samskipta milli sveitarfélagsins og fulltrúa listamannsins varðandi næstu skref málsins með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins. Fulltrúi Roni Horn mætti til fundar við bæjarráð.



Bæjarráð fól bæjarstjóra að vinna áfram að málinu með áherslu farsæla lausn á húsnæðisþætti málsins.



Bæjarstjóri gerði grein fyrir málinu á 7. fundi safna- og menningarmálanefndar. Nefndin taldi mikilvægt að skoða alla möguleika í stöðunni en vísaði frekari umræðu til næsta fundar sem stefnt er að halda fljótlega.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu safna- og menningarmálanefndar.

31.Upplýsingaskilti um Walter Mitty á hafnarsvæði

Málsnúmer 1905066Vakta málsnúmer

Fjölmargir ferðamenn gera sér ferð í Stykkishólm til þess að sjá tökustað kvikmyndarinnar The Secret Life of Walter Mitty í bænum og er þar þyrluatriði myndarinnar sérstaklega vinsælt. Ljóst að fjölmargir gestir sýna því áhuga að sjá umhverfið úr myndinni með eigin augum. Fyrir liggur því sú hugmynd að setja upp upplýsingaskilti um kvikmyndina um The Secret Life of Walter Mitty sem tekin var upp m.a. á hafnarsvæðinu í Stykkishólmi og staðsetja það á horninu hjá grassvæði sem staðsett er hinum meginn við gamla apótekið. Óskar bæjarstjóri eftir afstöðu safna- og menningarmálanefndar til þessarar hugmyndar.



Safna- og menningarmálanefnd tók á 108. fundi sínum vel í þessa hugmynd og staðsetningu á svæðinu til móts við Gamla-Apótekið (t.d. suðvestan megin) og mælir með því að málið verði unnið áfram og jafnframt í því sambandi að huga að öðrum kvikmyndum, auglýsingum eða sjónvarpsþáttum.



Safna og menningarmálanefnd lagði til, á 7. fundi sínum, að skoða aðrar lausnir til að miðla kvikmynda- og sjónvarpssögunni í Stykkishólmi en skiltagerð, t.d. með því að koma fyrir QR kóða sem vísar á vefsíðu hjá sveitarfélaginu um þessa sögu. Nefndin lagði áherslu á að skilti eða hverskonar miðlun sem sett verður fram verði fyrirferðarlítil þar sem fyrir er mikill fjöldi skilta í miðbænum/hafnarsvæði.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu safna- og menningarmálanefndar og vísar málinu til umsagnar hjá Félagi atvinnulífsins í Stykkishólmi.

32.Stykkishólmur í sókn - Þekkingarnet Breiðafjarðar

Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer

Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu verkefnisins Þekkingarnet Breiðafjarðar í kjölfar fundar með verkefnastjóra og framkvæmastjóra SSV.
Bæjarráð felur bæjarstjóra og verkefnastjóra að vinna að gerð viljayfirlýsingar milli sveitarfélaga og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um verkefnið og í framhaldinu að kallað verði til fundar með sveitarfélögum í kringum Breiðafjörð.

Fundi slitið - kl. 18:37.

Getum við bætt efni síðunnar?