Fara í efni

Skipulagsnefnd

40. fundur 11. mars 2026 kl. 16:30 - 18:55 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Hilmar Hallvarðsson aðalmaður
  • Kári Geir Jensson aðalmaður
  • Gunnar Ásgeirsson (GÁ) aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson varamaður
  • Aron Bjarni Valgeirsson varamaður
Starfsmenn
  • Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Breyting á aðalskipulagi Helgafellssveitar vegna byggingarheimilda í dreifbýli

Málsnúmer 2603011Vakta málsnúmer

Bæjarráð taldi, á 17. fundi sínum, að mismunandi túlkun nefnda sveitarfélagsins á gr. 4.1 í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 gefi tilefni til að skerpa á texta greinarinnar, m.a þegar horft er til hvenær skuli deiliskipuleggja, á þeim svæðum þar sem er fyrirhuguð uppbygging. Á þetta við lögbýli og allt það land sem hefur verið stofnað úr þeim, gildir þá einu hvaða landnotkunarflokki það tilheyrir samkvæmt skilgreiningu 6. kafla skipulagsreglugerðar 90/2013. Bæjarráð samþykkti að fela skipulagsfulltrúa að vinna minniháttar breytingu á greininni en lagði áherslu á að þær byggingarheimildir sem eru nú þegar í gildandi aðalskipulagi Helgafellssveitar verði óbreyttar þar til að nýtt aðalskipulag fyrir sameinað sveitarfélag Helgafellssveitar og Stykkishólmsbæjar, sem samþykkt hefur verið að hefja vinnu við, tekur gildi.

Á 41. fundi bæjarráðs þá var skipulagsfulltrúa falið að vinna við umrædda breytingu á aðalskipulagi með það að markmiði að skýra umrætt ákvæði í aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022.
Málið kynnt og tekið til umfjöllunar í skipulagsnefnd. Umræður voru um grein 4.1 í greinargerð aðalskipulags Helgafellssveitar. Skipulagsfulltrúa falið að vinna áfram að breytingum á aðalskipulagi.

2.Klapparás - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Klapparáss, verslun- og þjónusta, lóð 3 Hleðsluinnviðir.

Óskað er eftir að fá að auglýsa tillöguna að breytingu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulaginu.
Þá eru lögð fram gögn sem borist hafa frá Atlantsolíu þar sem óskað er eftir að stækka lóð Atlantsolíu á kostnað lóðar 3 og koma þar fyrir hraðhleðslustöðvum og bílaþvottastöð.
Skipulagsnefnd leggur til að ræða við ON varðandi aðstöðu á lóð 3 eftir breytingu.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að ræða við Instavolt um staðsetningu og útlit stöðva í miðbænum.
Með vísan til framanritaðs og fyrirliggjandi gagna felur skipulagsnefnd skipulagsfulltrúa að uppfæra deiliskipulagsbreytinguna m.t.t. nýrra gagna og umræðna á fundinum.

3.Söguskilti um miðbæ Stykkishólms við Bókhlöðuhöfða

Málsnúmer 2603012Vakta málsnúmer

Fyrir rúmu ári síðan fékk Anna Melsteð styrk frá Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins Stykkishólms vegna sögumiðlunar um miðbæ Stykkishólms. Hún hefur nú komið með tillögu að söguskilti um gamla miðbæinn og óskar eftir að fá að setja það upp á Bókhlöðuhöfða.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að setja upp söguskilti við Bókhlöðuhöfða, en gerir ráð fyrir að efnisatriði skiltisins fái umfjöllun í safna- og menningarmálanefnd eða bæjarstjórn. Nákvæm staðsetning skiltis skal vera í samráði við skipulagsfulltrúa.

4.Auglýsingaskilti

Málsnúmer 2603009Vakta málsnúmer

Led Birtingar óskar eftir að fá leyfi til að setja upp tímabundinn færanlega LED auglýsingaskjá í Stykkishólmi. Um er að ræða skjá sem er u.þ.b. 10 fermetrar að stærð. Tímabilið sem óskað er eftir er 1. apríl - 1. september 2026.

Skjárinn gæti nýst sveitarfélaginu til að koma á framfæri tilkynningum, upplýsingum og viðburðum á vegum bæjarins. Samhliða þessu gætu fyrirtæki í sveitarfélaginu. Jafnframt er Led Birtingar reiðubúið að láta renna mánaðarlega greiðslu til íþrótta- og tómstundamála í bæjarfélaginu.

Hugmyndin er að setja upp auglýsingaskjá sem myndi fyrst og fremst nýtast til að miðla upplýsingum sem eiga erindi við íbúa sveitarfélagsins. Þar gæti sveitarfélagið sjálft komið á framfæri tilkynningum, viðburðum og öðrum upplýsingum til íbúa á einfaldan og sýnilegan hátt.

Samhliða því gætu fyrirtæki í sveitarfélaginu keypt sér auglýsingapláss til að kynna sína þjónustu og starfsemi. Þannig myndi skjárinn bæði nýtast sem upplýsingamiðill fyrir íbúa og vettvangur fyrir fyrirtæki á svæðinu til að ná betur til fólks í nærsamfélaginu.

Að öðru leyti væri þetta auglýsingaskjár þar sem fyrirtæki geta keypt auglýsingapláss, en nokkur skortur er á slíkum miðli á landsbyggðinni og því tel ég að slíkur skjár gæti nýst bæði sveitarfélaginu og atvinnulífinu vel

Skipulagsnefnd þakkar erindið en sér ekki fyrir sér að settur verði upp 10 fermetra ledskjár innan þéttbýlis.

Fundi slitið - kl. 18:55.

Getum við bætt efni síðunnar?