Stefnumörkun um smölun búfjár
Málsnúmer 2606022
Vakta málsnúmerBæjarráð - 44. fundur - 16.06.2026
Flosi mætti inná fundinn
Lögð fram erindi um beiðni um smölun ágangsfjár ásamt öðrum gögnum sem tengjast málinu.
Bæjarráð samþykkir að tillögu að svari sveitarfélagsins við beiðni um smölun ágangsfjár.
Bæjarráð ítrekar jafnframt fyrri stefnumörkun sveitarfélagsins um að áður en sveitarfélagið grípur til smölunar ágangsfjár þurfi að liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um að um sé að ræða ágang á ræktarland í skilningi fjallskilasamþykktar, að viðeigandi ráðstafanir hafi verið gerðar gagnvart eiganda búfjár og að tilefni sé til að sveitarfélagið grípi til viðeigandi ráðstafana samkvæmt lögum. Verði slík gögn ekki lögð fram mun sveitarfélagið taka ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.
Verði erindinu svarað og fullnægjandi upplýsingar lagðar fram sem sýna fram á að skilyrði laga, fjallskilasamþykktar og framangreindrar stefnumörkunar sveitarfélagsins séu uppfyllt mun sveitarfélagið grípa til viðeigandi ráðstafana. Við það mat verður m.a. litið til þess hvort um sé að ræða ræktarland, hvort hætta sé á tjóni eða tjón hafi orðið af völdum ágangsfjár, umfangs ágangsins og hversu brýnt sé að bregðast við. Við mat á því hvort fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir verður meðal annars litið til þess hvort svör hafi borist við þeim atriðum sem sveitarfélagið hefur óskað eftir upplýsingum um.
Afgreiðsla þessi skal send landbúnaðarnefnd til umfjöllunar. Landbúnaðarnefnd er heimilt, á grundvelli fyrri umboðs bæjarráðs, að breyta kröfum og verklagsreglum í svari sveitarfélagsins vegna framkvæmdar þess eða samræmingar við önnur sveitarfélög innan fjallskilaumdæmisins. Slíkar breytingar skulu kynntar bæjarráði og gilda þar til annað verður ákveðið af bæjarráði eða bæjarstjórn.
Að lokum bendir bæjarráð á að umráðamanni lands er heimilt að ákveða að tiltekið og afmarkað landsvæði sé friðað svæði og er þá umgangur og beit búfjár þar bönnuð samkvæmt lögum nr. 38/2013, um búfjárhald.

Flosi vék af fundi.
Bæjarstjórn - 50. fundur - 18.06.2026
Lögð fram erindi um beiðni um smölun ágangsfjár ásamt öðrum gögnum sem tengjast málinu.
Bæjarráð samþykkti á 44. fundi sínum tillögu að svari sveitarfélagsins við beiðni um smölun ágangsfjár.
Bæjarráð ítrekaði jafnframt á sama fundi fyrri stefnumörkun sveitarfélagsins um að áður en sveitarfélagið gripi til smölunar ágangsfjár þyrftu að liggja fyrir fullnægjandi upplýsingar um að um væri að ræða ágang á ræktarland í skilningi fjallskilasamþykktar, að viðeigandi ráðstafanir hefðu verið gerðar gagnvart eiganda búfjár og að tilefni væri til að sveitarfélagið gripi til viðeigandi ráðstafana samkvæmt lögum. Yrðu slík gögn ekki lögð fram myndi sveitarfélagið taka ákvörðun á grundvelli fyrirliggjandi upplýsinga.
Verði erindinu svarað og fullnægjandi upplýsingar lagðar fram sem sýna fram á að skilyrði laga, fjallskilasamþykktar og framangreindrar stefnumörkunar sveitarfélagsins séu uppfyllt mun sveitarfélagið grípa til viðeigandi ráðstafana. Við það mat verður m.a. litið til þess hvort um sé að ræða ræktarland, hvort hætta sé á tjóni eða tjón hafi orðið af völdum ágangsfjár, umfangs ágangsins og hversu brýnt sé að bregðast við. Við mat á því hvort fullnægjandi upplýsingar liggi fyrir verður meðal annars litið til þess hvort svör hafi borist við þeim atriðum sem sveitarfélagið hefur óskað eftir upplýsingum um.
Bæjarráð samþykkti jafnframt að senda afgreiðslu þessa til landbúnaðarnefndar til umfjöllunar. Landbúnaðarnefnd yrði heimilt, á grundvelli fyrri umboðs bæjarráðs, að breyta kröfum og verklagsreglum í svari sveitarfélagsins vegna framkvæmdar þess eða samræmingar við önnur sveitarfélög innan fjallskilaumdæmisins. Slíkar breytingar skyldu kynntar bæjarráði og giltu þar til annað yrði ákveðið af bæjarráði eða bæjarstjórn.
Að lokum benti bæjarráð á að umráðamanni lands væri heimilt að ákveða að tiltekið og afmarkað landsvæði væri friðað svæði og væri þá umgangur og beit búfjár þar bönnuð samkvæmt lögum nr. 38/2013 um búfjárhald.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs, enda kveða lög nr. 61/1986 um afréttamálefni, fjallskil. ofl. á um skyldur sveitarfélagsins í þessum efnum.
Samþykkt samhljóða.
Samþykkt samhljóða.