Fara í efni

Fjallskil 2026

Málsnúmer 2608006

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026

Lagt er til að landbúnaðarnefnd verði veitt umboð til að annast mál varðandi fjallskil 2026.
Bæjarráð veitir landbúnaðarnefnd fullt og ótakmarkað umboð til ákvarðana er varða fjallskil og annað sem tengist réttum 2026.

Landbúnaðarnefnd - 5. fundur - 03.09.2026

Á 45. fundi bæjarráðs var lagt til að landbúnaðarnefnd yrði veitt umboð til að annast mál varðandi fjallskil 2026.



Bæjarráð veitti landbúnaðarnefnd fullt og ótakmarkað umboð til ákvarðana er varða fjallskil og annað sem tengist réttum 2026.
Nefndin tók fyrir fjallskil haustsins og deildi niður dagsverkum á fjáreigendur í sveitarfélaginsu. Miðað er við 18 kindur í dagsverki. Fyrri leit er laugardaginn 19. september og réttað í Arnarhólsrétt sunnudaginn 20. september. Seinni leit er laugardaginn 3. október og réttað sama dag.

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Á 45. fundi bæjarráðs var lagt til að landbúnaðarnefnd yrði veitt umboð til að annast mál varðandi fjallskil 2026.



Bæjarráð veitti landbúnaðarnefnd fullt og ótakmarkað umboð til ákvarðana er varða fjallskil og annað sem tengist réttum 2026.



Landbúnaðarnefnd tók fyrir fjallskil haustsins á 5. fundi sínum og deildi niður dagsverkum á fjáreigendur í sveitarfélaginsu. Miðað er við 18 kindur í dagsverki. Fyrri leit er laugardaginn 19. september og réttað í Arnarhólsrétt sunnudaginn 20. september. Seinni leit er laugardaginn 3. október og réttað sama dag.
Lagt fram til kynningar.
Getum við bætt efni síðunnar?