Fara í efni

Undirgöng við Hamraenda samhliða framkvæmdum á Stykkishólmsvegi nr. 58

Málsnúmer 2608025

Vakta málsnúmer

Skipulagsnefnd - 43. fundur - 13.08.2026

Lagður fram tölvupóstur frá bæjarstjórn þar sem hann óskar eftir því við Vegagerðina að samhliða endurbóta á Stykkishólmsvegi nr. 58 verði komið fyrir öruggri þverun fyrir gangandi og hjólandi undir veginn við Hamraenda með gönguröri.
Skipulagsnefnd telur mikilvægt að gæta að umferðaröryggi og hvetur Vegagerðina til að fara í þessa framkvæmd. Nefndin telur að undirgöng séu öruggasta og hagkvæmasta lausnin og myndi tryggja samfellda og örugga tengingu á milli svæða, en báðu megin vegarins eru útivistarsvæði og vinnustaðir.

Bæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026

Lagður fram tölvupóstur frá bæjarstjóra þar sem hann óskar eftir því við Vegagerðina að samhliða endurbóta á Stykkishólmsvegi nr. 58 verði komið fyrir öruggri þverun fyrir gangandi og hjólandi undir veginn við Hamraenda með gönguröri.



Skipulagsnefnd taldi, á 43. fundi sínum, mikilvægt að gæta að umferðaröryggi og hvetur Vegagerðina til að fara í þessa framkvæmd. Nefndin taldi að undirgöng séu öruggasta og hagkvæmasta lausnin og myndi tryggja samfellda og örugga tengingu á milli svæða, en báðu megin vegarins eru útivistarsvæði og vinnustaðir.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu skipulagsnefndar og leggur ríka áherslu á að samhliða yfirstandandi framkvæmdum á Stykkishólmsvegi nr. 58 verði komið fyrir undirgöngum við Hamraenda til að tryggja örugga þverun fyrir gangandi vegfarendur. Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á að skoðað verði hvort unnt sé að koma fyrir undirgöngum í Vogsbotni, sem tengingu við gamla Stykkishólmsveginn, til að tryggja öryggi gangandi, ríðandi og hjólandi vegfarenda, en talsferð umferð er yfir veginn á þessum stað.

Bæjarráð telur mikilvægt að nýta það tækifæri sem felst í yfirstandandi framkvæmdum til að ráðast í þessa umferðaröryggisaðgerð og telur því nauðsynlegt að undirgöngin verði felld inn í yfirstandandi verk.
Getum við bætt efni síðunnar?