Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Berserkjahraun - Breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags
Málsnúmer 2511001Vakta málsnúmer
Breyting á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2014-2024 eftir kynningu sem var frá 18. maí til 15. júní 2026. Umsögn barst frá Minjastofnun Íslands og Náttúruverndarstofnun. Lögð fram svör við umsögnum.
Skipulagsnefnd samþykkir svör við umsögn Náttúruverndarstofnunar og uppfærðan texta í aðalskipulagsbreytingunni. Skipulagsnefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar skv. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og senda til Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar til staðfestingar.
2.Gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu - endurskoðun
Málsnúmer 2608007Vakta málsnúmer
Lögð fram endurskoðun á gjaldskrá sveitarfélagsins vegna skipulagsmála.
Lagt fram til kynningar.
3.Jónsnes - sótt um undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
Málsnúmer 2604010Vakta málsnúmer
Lögð fram til kynningar, umsögn HMS vegna umsagnar um beiðni um undanþágu frá ákvæðum skipulagsreglugerðar vegna fjarlægðar frá vatni. Enn fremur lögð fram afstaða eiganda sem send var félags- og húsnæðismálaráðuneytinu.
Lagt fram til kynningar.
4.Ægisgata 6, grenndarkynning
Málsnúmer 2607005Vakta málsnúmer
Eigandi Ægisgötu 6 óskar eftir að fá að setja niður gróðurhús á lóð sinni og óskar að fá að grenndarkynna það fyrir nágrönnum við Tangagötu 7 og 9 og Ægisgötu 8.
Skipulagsnefnd heimilar gróðurhús á lóðinni að undangenginni grenndarkynningu. Grenndarkynnt skal fyrir eigendum Tangagötu 7 og 9 og Ægisgötu 8.
5.Reitarvegur 8, fyrirspurn til skipulags- og byggingarfulltrúa
Málsnúmer 2608005Vakta málsnúmer
Reitarvegur 8, eigandi óskar eftir að fá að gera íbúð í kjallara og viðbyggingu á gafli húss.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í að gerð verði íbúð í kjallara hússins. Kynna þarf erindið til allra meðeigenda á Reitarvegi 8 og þurfa allir að vera sammála um þessi byggingaráform.
Skipulagsnefnd telur að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ef meðeigendur eru sammála áformunum.
Skipulagsnefnd telur að gera þurfi breytingu á deiliskipulagi skv. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, ef meðeigendur eru sammála áformunum.
6.Umsókn um stöðuleyfi gestahúss í Birkilundi 17
Málsnúmer 2608017Vakta málsnúmer
Sótt er um tímabundið stöðuleyfi fyrir 15 m2 gestahýsi, á meðan verið að útbúa viðeigandi gögn/upplýsingar varðandi húsið. Húsið á að nota sem gestahús í Birkilundi 17.
Skipulagsnefnd samþykkir tímabundið stöðuleyfi fyrir gestahúsi og vísar erindinu til byggingarfulltrúa sem veitir heimild fyrir stöðuleyfi.
7.Skúlagata 13
Málsnúmer 2608021Vakta málsnúmer
Erindi f.h. eiganda Skúlagötu 13 varðandi endurskipulagningu á lóðinni.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í hugmyndir eigenda Skúlagötu 13 um enduruppbyggingu á lóðinni og felur skipulagsfulltrúa að vinna með eigendum um farsæla lausn á lóðinni.
8.Fundardagar skipulagsnefndar
Málsnúmer 2502014Vakta málsnúmer
Lögð fram tillaga að fundaráætlun skipulagsnefndar árið 2026.
Skipulagsnefnd samþykkti að færa fundardaga til fimmtudaga, að öðru leyti er tillagan samþykkt.
9.Undirgöng við Hamraenda samhliða framkvæmdum á Stykkishólmsvegi nr. 58
Málsnúmer 2608025Vakta málsnúmer
Lagður fram tölvupóstur frá bæjarstjórn þar sem hann óskar eftir því við Vegagerðina að samhliða endurbóta á Stykkishólmsvegi nr. 58 verði komið fyrir öruggri þverun fyrir gangandi og hjólandi undir veginn við Hamraenda með gönguröri.
Skipulagsnefnd telur mikilvægt að gæta að umferðaröryggi og hvetur Vegagerðina til að fara í þessa framkvæmd. Nefndin telur að undirgöng séu öruggasta og hagkvæmasta lausnin og myndi tryggja samfellda og örugga tengingu á milli svæða, en báðu megin vegarins eru útivistarsvæði og vinnustaðir.
10.Nýting lóðar Borgarbrautar 3
Fundi slitið - kl. 18:00.
- 2608025 - Undirgöng við Hamraenda samhliða framkvæmdum á Stykkishólmsvegi nr. 58
Samþykkt samhljóða.