Fara í efni

Erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum

Málsnúmer 2609012

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lagt fram erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum til bæjarstjórnar.
Bæjarráð þakkar fyrir erindið og vísar því til vinnslu við vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030.

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lagt fram erindi frá VR, LÍV og fagfélögnum til bæjarstjórnar.



Bæjarráð þakkaði, á 46. fundi sínum, fyrir erindið og vísaði því til vinnslu við vinnu við fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlunar áranna 2028-2030.
Bæjarstjórn Stykkishólms þakkar VR, LÍV og Fagfélögunum fyrir erindið og tekur undir mikilvægi sameiginlegs átaks til að lækka verðbólgu og vexti, verja kaupmátt heimilanna og stuðla að því að gildandi kjarasamningar haldi.

Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga frá 25. september 2026 samþykkir bæjarstjórn að við gerð fjárhagsáætlunar og ákvörðun gjaldskráa fyrir árið 2027 verði hækkanir almennra gjaldskráa sveitarfélagsins að hámarki 2,5%. Bæjarstjórn leggur áherslu á að árangur í baráttunni gegn verðbólgu krefjist samstilltra aðgerða ríkis, sveitarfélaga og atvinnulífs. Bæjarstjórn skorar því jafnframt á ríkisvaldið og stofnanir þess að sýna sambærilegt aðhald og endurskoða fyrirhugaðar hækkanir gjalda og álaga á heimilin. Áhrif gjaldskráa á barnafjölskyldur og fólks í viðkvæmri stöðu verða metin við gerð fjárhagsáætlunar sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn bendir á að sveitarfélagið hafi á undanförnum árum unnið markvisst að auknu framboði íbúðarhúsnæðis með skipulagsvinnu, gatnagerð, auknu lóðaframboði og stuðningi við uppbyggingu almennra leiguíbúða. Árið 2024 undirritaði sveitarfélagið samkomulag við ríkið og Húsnæðis- og mannvirkjastofnun um að skapa skilyrði fyrir uppbyggingu 60 íbúða á fimm árum. Í Víkurhverfi hafa nú verið byggðar 34 íbúðir, þar af 12 almennar leiguíbúðir á vegum Brákar íbúðafélags fyrir tekju- og eignaminni heimili, fjármagnaðar meðal annars með stofnframlögum ríkis og sveitarfélags. Þá hefur sveitarfélagið undirritað viljayfirlýsingu við Skipavík ehf. um fyrirhugaða uppbyggingu 14-28 íbúða í nýjum hluta Víkurhverfis á næstu árum. Bæjarstjórn leggur áherslu á að halda þessari vinnu áfram í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins og stuðla að fjölbreyttum húsnæðiskostum.

Hvað varðar bilið milli fæðingarorlofs og leikskóla bendir bæjarstjórn á að í Stykkishólmi hafi verið boðið upp á leikskólavist frá 12 mánaða aldri síðan 2008 og að ekkert barn sé nú á biðlista eftir leikskólavist. Bæjarstjórn telur því, hvað Sveitarfélagið Stykkishólm varðar, að það þurfi að beina áskorun um frekari aðgerðir til að brúa þetta bil að ríkisvaldinu.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni síðunnar?