Fara í efni

Atvinnustefna

Málsnúmer 2609016

Vakta málsnúmer

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026

Lögð fram tillaga bæjarfulltrúa Í-lista um að hafin verði vinna við gerð heildstæðrar atvinnustefnu fyrir Sveitarfélagið Stykkishólm, ásamt aðgerðaáætlun, og að bæjarstjóra verði falið að leggja fram tillögu að verkefnisáætlun, tímaáætlun, skipan stýrihóps og kostnaðarmati.
Bæjarráð samþykkir að oddvitar, ásamt bæjarstjóra og formanni atvinnu- og nýsköpunarnefndar, fundi með atvinnurekendum í sveitarfélaginu til að afla sjónarmiða þeirra um helstu tækifæri og áskoranir sem blasa við atvinnulífinu í sveitarfélaginu áður en næstu skref verða tekin.
Getum við bætt efni síðunnar?