Fara í efni

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd (SH)

7. fundur 04. nóvember 2026 kl. 15:15 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Ásmundur Sigurjón Guðmundsson formaður
  • Steinunn Helgadóttir (SH) aðalmaður
  • Ólafur Örn Ásmundsson aðalmaður
  • Georg Pétur Ólafsson aðalmaður
  • Sara Hjörleifsdóttir aðalmaður
  • Marteinn Óli Þorgrímsson varamaður
  • Kári Geir Jensson (KGJ) varamaður
  • Arnar Geir Diego Ævarsson varamaður
  • Skarphéðinn Berg Steinarsson varamaður
Fundargerð ritaði: Ásmundur Guðmundsson formaður
Dagskrá
Formaður bar upp tillögu um að taka eftirfarandi mál inn á dagskrá fundarins með afbrigðum:

- 1905005 - Erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
- 2211039 - Kosning varaformanns og ritara.

1.Erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar

Málsnúmer 1905005Vakta málsnúmer

Lagt fram erindisbréf atvinnu- og nýsköpunarnefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Sjávarútvegsstefna og skelbætur

Málsnúmer 2312008Vakta málsnúmer

Innviðaráðherra hefur lagt fram fyrir Alþingi frumvarp til laga um breytingu á lögum um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006 (sértækar ívilnanir og jöfnunarheimild) þar sem lagt er til að fella brott línuívilnanir og skel- og rækjubætur. Frumvarpið náði ekki fram að ganga á síðasta löggjafarþingi.



Frumvarp innviðaráðherra er lagt fram.



Þá er lögð fram ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vestulandi vegna málsins og afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum vegna áforma innviðaráðherra um skelbætur.



Bæjarráð Stykkishólms tók, á 42. fundi sínum, undir ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um skelbætur og línuívilnun og leggst eindregið og hart gegn fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra. Bæjarráð taldi að fyrirhuguð lagabreyting muni hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélagsins, verði hún að veruleika. Verði frumvarpið að lögum getur það haft grafalvarleg áhrif á sveitarfélagið og aukið verulega hættu á að starfsemi, sem byggir m.a. á skelbótum, leggist af í sveitarfélaginu. Bæjarráð benti á að neikvæð áhrif áformanna eru þegar farin að koma fram og vísar í því sambandi til bréfs BB og sona ehf., dags. 18. mars 2026, um afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum, þar sem fram kemur að félagið sjái sér ekki fært að halda áfram með fyrirhuguð uppbyggingaráform í sveitarfélaginu vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur vegna áforma innviðaráðherra. Bæjarráð skoraði á ríkisstjórn, sér í lagi innviðaráðherra, og Alþingi að falla frá frumvarpinu og hefja raunverulegt samráð við sveitarfélög og atvinnulíf um framtíð fiskveiðistjórnarkerfisins með það að markmiði að tryggja áfram byggðafestu, stöðugleika og fjölbreytt atvinnulíf á landsbyggðinni.
Lagt fram til kynningar.

3.Atvinnusvæði við Kallhamar

Málsnúmer 2206035Vakta málsnúmer

Lagt fram deiliskipulagi atvinnusvæðisins við Kallhamar. Bæjarráð fól á 46. fundi sínum bæjarstjóra að kynna svæðið fyrir áhugasömum fjárfestum og uppbyggingaraðilum eftir að fyrri áform Acadian Seaplants féllu niður. Tekið til umræðu hvernig best sé að kynna lóðirnar og hvaða starfsemi henti á svæðinu.
Lagt fram til kynningar.

4.Atvinnustefna

Málsnúmer 2609016Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar samþykkt bæjarráðs frá 17. september um að bæjarstjóri, oddvitar og formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar fundi með atvinnurekendum. Tilgangurinn er að fá fram sjónarmið þeirra um tækifæri og áskoranir í atvinnulífinu áður en næstu skref við mótun atvinnustefnu verða ákveðin.
Lagt fram til kynningar.

5.Deiliskipulag hafnarsvæðis

Málsnúmer 1604036Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar ákvörðun bæjarstjórnar frá 1. október um skipan starfshóps sem vinnur með skipulagsfulltrúa að tillögu að nýju deiliskipulagi hafnarsvæðisins. Formaður atvinnu- og nýsköpunarnefndar á sæti í starfshópnum.
Lagt fram til kynningar.

6.Samningur um nýtingu sjávargróðurs

Málsnúmer 1907015Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar afgreiðsla 46. fundar bæjarráðs frá 17. september á samningi um framsal réttinda til nýtingar sjávargróðurs við Landey í landi sveitarfélagsins, en bæjarráð staðfesti á fundi sínum umrætt framsal.
Lagt fram til kynningar.

7.Stórþörungarækt í sjó

Málsnúmer 2609022Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar drög að frumvarpi til laga um stórþörungarækt í sjó og afgreiðsla bæjarráðs frá 22. október, ásamt umsögn sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.

8.Raforkuöryggi á Snæfellsnesi

Málsnúmer 2004021Vakta málsnúmer

Lagt fram til kynningar minnisblað um flutningskerfi raforku á Snæfellsnesi. Þar er lögð áhersla á að Vegamótalína 2 verði tekin á framkvæmdaáætlun Landsnets og verði rekin á 132 kV spennu frá upphafi.



Bæjarráð fagnaði, á 46. fundi sínum, þeirri uppbyggingu sem átt hefur sér stað á flutningskerfi raforku á Snæfellsnesi og þeirri vinnu sem hafin er við undirbúning Vegamótalínu 2. Bæjarráð lagði ríka áherslu á að Vegamótalína 2 verði tekin inn á framkvæmdaáætlun næstu kerfisáætlunar og að undirbúningi verkefnisins verði áfram fylgt eftir af fullum þunga, enda er tvítenging Snæfellsness við meginflutningskerfið mikilvæg forsenda fyrir auknu afhendingaröryggi, orkuskiptum og áframhaldandi uppbyggingu á svæðinu. Bæjarráð lagði jafnframt ríka áherslu á að Vegamótalína 2 verði rekin á fullum afköstum (132 kV spennu) frá upphafi, þannig að sú fjárfesting og flutningsgeta sem í framkvæmdinni felst nýtist sem best frá fyrsta degi.



Bæjarstjórn staðfestir á 52. fundi sínum afgreiðslu bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

9.Tillaga til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030

Málsnúmer 2601015Vakta málsnúmer

Lögð fram umsögn sveitarfélagsins vegna tillögu til þingsályktunar um samgönguáætlun fyrir árin 2026-2040 ásamt fimm ára aðgerðaáætlun fyrir árin 2026-2030. Jafnframt eru lögð fram bréf sem sveitarfélagið sendi forsætisráðherra og innviðaráðherra þar sem áherslur sveitarfélagsins, einkum varðandi Breiðafjarðarferjuna Baldur, eru áréttaðar.
Lagt fram til kynningar.

10.Orkuframboð í Stykkishólmi og afhendingargeta

Málsnúmer 2510012Vakta málsnúmer

Orkuframboð, bæði á rafmagni og heitu vatni, og afhendingargeta þessara innviða eru lykilþættir í áframhaldandi uppbyggingu atvinnusvæða við Kallhamra og Hamraenda. Tryggja þarf að fyrirtæki sem hyggjast hefja starfsemi eða byggja upp atvinnurekstur í Stykkishólmi hafi skýrar og aðgengilegar upplýsingar um stöðu orkuframboðs, möguleika á tengingum og framtíðarafhendingu. Mikilvægt er að sveitarfélagið hafi heildaryfirsýn yfir stöðu mála í samstarfi við veitufyrirtækin, þannig að hægt sé að bregðast tímanlega við aukinni eftirspurn og stuðla að öruggri og sjálfbærri uppbyggingu atvinnulífs. Þetta er jafnframt forsenda þess að geta tekið upplýstar ákvarðanir um skipulag, leyfisveitingar og framtíðarstefnumótun í atvinnu- og umhverfismálum bæjarins. Mikilvægt er fyrir sveitarfélagið að kortleggja stöðuna í samvinnu við Rarik ohf. (rafmagn) og Veitur ohf. (heitt vatn), nánar tiltekið um núverandi stöðu, helstu áskoranir og framtíðarþörf til næstu 5, 15 og 30 ára. Í því sambandi ber að skoða sérstaklega hvernig áætlanir um uppbyggingu iðnaðarsvæða við Kallhamra (Grænir iðngarðar) og Hamraenda, miðað við núverandi skipulagsáform og byggingarreiti, samrýmast fyrirhuguðu orkuframboði og afhendingargetu. Þannig verður tryggt að umsóknir um tengingar og leyfisveitingar geti tekið mið af raunhæfum forsendum og stuðlað að sjálfbærri og öruggri þróun atvinnusvæða.



Bæjarstjórn Stykkishólms lagði, á 41. fundi sínum, áherslu á að öruggt og nægjanlegt orkuframboð, bæði á rafmagni og heitu vatni, enda það eitt af meginforsendum áframhaldandi atvinnuuppbyggingar og samfélagslegrar framþróunar í Stykkishólmi. Bæjarstjórn taldi mikilvægt að sveitarfélagið hafi greinargóða yfirsýn yfir núverandi orkuframboð og framtíðaráform orkufyrirtækja á svæðinu, í samræmi við áætlanir um uppbyggingu atvinnusvæða við Kallhamra (Græna iðngarða) og Hamraenda, svo og aðra byggingarreiti í samræmi við gildandi skipulag. Bæjarstjórn Stykkishólms óskaði eftir upplýsingum frá Rarik ohf., Landsneti hf. og Veitum ohf. um núverandi afhendingargetu á rafmagni og heitu vatni í Stykkishólmi, áætlanir fyrirtækjanna um uppbyggingu og styrkingu orkuinnviða til næstu 5, 10 og 15 ára og hvernig þau sjá fyrir sér að mæta vaxandi eftirspurn í tengslum við uppbyggingu atvinnusvæða og fjölgun íbúa í samræmi við húsnæðisáætlun sveitarfélagsins.



Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tók, á 6. fundi sínum, framlagðar upplýsingar til umræðu og tók undir ályktun bæjarstjórnar um að öruggt, fyrirsjáanlegt og nægjanlegt orkuframboð sé grundvallarforsenda atvinnuuppbyggingar á Hamraendum, þar á meðal fyrir áform ISEA um starfsemi í Stykkishólmi.



Nefndin áréttaði að óvissa um afhendingargetu, sérstaklega á heitu vatni, sé bæði óásættanleg og óskiljanleg. Það er með öllu óviðunandi að sveitarfélagið og fyrirtæki í atvinnurekstri fái ekki skýr svör um hvaða afhendingu Veitur ohf. geti tryggt, ekki síst í ljósi þess að slík afhending var ekki vandamál fyrr á árinu. Nefndin taldi óásættanlegt að Veitur geti ekki tilgreint hvaða magn á heitu vatni sé raunhæft að veita atvinnufyrirtækjum.



Nefndin taldi jafnframt óeðlilegt og ósanngjarnt að umhverfisvænt nýsköpunarfyrirtæki, sem reiðubúið er að hefja starfsemi í Stykkishólmi, sé beðið um að taka þátt í fjármögnun innviðauppbyggingar upp á nærri 50 milljónir króna, á svæði þar sem gera þarf ráð fyrir að innviðir nýtist allri fyrirhugaðri atvinnuuppbyggingu á Hamraendum sem sveitarfélagið stefnir á að hefja á árunum 2026 og 2027. Sérstaklega er þetta óeðlilegt í ljósi þess að Veitur ohf. höfðu þegar yfirsýn yfir stöðu mála í janúar síðastliðnum og gátu því með réttu upplýst hagsmunaaðila fyrr.



Nefndin undirstrikaði að uppbygging atvinnu- og iðnaðarstarfsemi á svæðinu sé hagsmunamál allra, þ.e. sveitarfélagsins, íbúa og veitufyrirtækjanna sjálfra. Því verði að liggja skýrt fyrir hvaða jarðvarmi og afhendingargeta standi til ráðstöfunar fyrir slíka uppbyggingu og hvaða skref þurfi að taka til að tryggja hana til framtíðar.



Með vísan til framangreinds lagði nefndin til, vegna alvarleika málsins, að bæjarstjórn boði til fundar með Veitum ohf. hið fyrsta og kalli eftir skýrum og trúverðugum svörum, með tímasettum aðgerðum, um afhendingargetu og nauðsynlegar framkvæmdir.



Fulltrúi ISEA ehf. kom til fundar við bæjarstjórn og gerir grein fyrir stöðu félagsins á 42. fundi.



Bæjarstjórn Stykkishólms staðfesti þá afgreiðslu atvinnu- og nýsköpunarnefndar og tók undir alvarleika málsins. Bæjarstjórn áréttaði að óvissa um afhendingargetu á heitu vatni sé óásættanleg fyrir fyrirtæki á svæðinu sem og þau fyrirtæki sem hyggi á atvinnuuppbyggingu á Hamraendum og fer fram á að skýr svör liggi fyrir frá Veitum ohf. án frekari tafa.



Bæjarstjórn lagði jafnframt áherslu á að fyrirtæki sem hyggjast hefja starfsemi í Stykkishólmi eigi ekki að bera kostnað af uppbyggingu grunninnviða á Hamraendum, sem mögulega geti komið til með að nýtast öðrum fyrirtækjum, með öðrum hætti en í gegnum þjónustugjöld, enda er um samfélagslega og sameiginlega innviðauppbyggingu að ræða sem þjónar hagsmunum íbúa, atvinnulífs og veitufyrirtækjanna sjálfra.



Bæjarstjórn óskaði eftir formlegum fundi við Veitur ohf. hið fyrsta og kallaði eftir skýrum upplýsingum og tímasettum áætlunum um hvernig tryggt verði að orkuöflun og afhendingargeta verði fullnægjandi fyrir atvinnuuppbyggingu á Hamraendum.



Fundur með Veitum fór fram 11. febrúar 2026. Þá fór fram fundur bæjarstjórnar með framkvæmdastýru Veitna 1. október 2026. Bæjarstjóri gerir grein fyrir umræðum á fundunum.
Lagt fram til kynningar.

11.Staða háls- og bakdeildar í Stykkishólmi

Málsnúmer 2504007Vakta málsnúmer

Á St.Franciskusspítala í Stykkishólmi er starfrækt háls- og bakdeild sem annast greiningu og meðferð háls- og bakvandamála og þjónustar allt landið, en á deildinni starfa, sjúkraþjálfarar, hjúkrunarfræðingur og aðrir starfsmenn. Um er að ræða mikilvæga þjónustu fyrir landsmenn alla og þar með gegnir deildin þýðingarmiklu þjóðhagslegu hlutverki, ásamt því að vera mikilvægur vinnustaður í Stykkishólmi. Í ljósi mikilvægi deildarinnar fyrir land og þjóð er nauðsynlegt að tryggja deildinni viðeigandi aðbúnað og fjármuni þannig að deildin geti oxið og dafnað landinu til heilla.



Atvinnumálanefnd lagði, á 5. fundi sínum, til við bæjarráð að haldinn verði sameiginlegur fundur atvinnumálanefndar og bæjarráðs með stjórnendum háls- og bakdeildar í Stykkishólmi þar sem farið verður yfir stöðu deildarinnar í Stykkishólmi og þá framtíðarmöguleika sem deildin hefur til eflingar og vaxtar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að efla háls- og bakdeildina sem vinnustað í Stykkishólmi og tryggja áfram sérhæfða þjónustu hennar við fólk af öllu landinu. Nefndin óskar eftir að formaður fylgi eftir, í samráði við bæjarstjóra, samþykkt bæjarráðs um sameiginlegan fund nefndarinnar og bæjarráðs með stjórnendum deildarinnar. Þar verði farið yfir mönnun, aðstöðu og fjárþörf deildarinnar og hvaða skref þurfi að taka til að hún geti sinnt fleiri sjúklingum. Þá telur nefndin jafnframt að það væri gagnlegt ef að fulltrúi heilsugæslu- og hjúkrunarhluta HVE mæti jafnframt til fundarins til þess að fara yfir aðra þætti í starfseminni í Stykkishólmi. 

12.Kosning varaformanns og ritara

Málsnúmer 2211039Vakta málsnúmer

Samkvæmt erindisbréfi skal nefndin kjósa varaformann og ritara á fyrsta fundi sínum.

13.Móttaka skemmtiferðaskipa

Málsnúmer 2602005Vakta málsnúmer

Lagt fram að minnisblað bæjarstjóra ásamt glærum frá CLIA varðandi móttöku skemmtiferðaskipa í Stykkishólmi.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til við bæjarráð og hafnarstjórn að unnið verði að því að fjölga komum smærri skemmtiferðaskipa til Stykkishólms. Í því sambandi væri æskilegt að fulltrúi eða fulltrúar sveitarfélagsins sæki valdar ráðstefnur og nýti tengsl við Cruise Iceland og önnur sambærileg samtök til að hitta þá sem skipuleggja siglingaleiðir skipafélaganna.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir fyrirliggajndi gögn um að skipafélögunum verði boðinn sérstakur kynningarpakki byggður á fyrirliggjandi kynningarefni um Stykkishólm og höfnina. Þar verði lögð áhersla m.a. á upplýsingar um hafnaraðstöðu og tillögur að ferðum fyrir smærri hópa, svo sem með siglingu um eyjar Breiðafjarðar, göngu um gamla bæinn og smökkun á sjávarfangi úr firðinum á veitingarstöðum. Atvinnu- og nýsköpunarnefnd telur mikilvægt að Félag atvinnulífs í Stykkishólmi hafi hlutverki að gegna í þessu sambandi, m.a. við að koma skipafélögunum í samband við ferðaþjónustuaðila í sveitarfélaginu og að hafa milligöngu við að útbúa tillögur að ferðum fyrir smærri hópa, og óskar eftir samvinnu við félagið í þessu sambandi.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til að sveitarfélagið og Félag atvinnulífs í Stykkishólmi boði í sameiningu til samtals við ferðaþjónustuaðila um móttöku smærri skemmtiferðaskipa. Eftir atvikum verði fulltrúum Cruise Iceland, annarra sambærilegra samtaka eða atvinnurekenda með reynslu af slíkri þjónustu boðið að taka þátt. Markmiðið verði að læra af reynslu annarra og ræða hvernig best megi þróa þessa þjónustu í Stykkishólmi.

14.Sjávarútvegsstefna og skelbætur

Málsnúmer 2312008Vakta málsnúmer

Lögð fram áform innviðaráðherra um endurskoðun byggðatengdra veiðiheimilda innan 5,3% kerfisins, en ráðherra hyggst leggja fram sérstakt frumvarp um strandveiðar og annað um önnur byggðatengd úrræði, þar á meðal skelbætur og línuívilnun.



Lögð fram til umfjöllunar drög að umsögn Sveitarfélagsins Stykkishólms ásamt fylgiskjali um lagalega stöðu skelbóta og minnisblaði Jóhannesar Karls Sveinssonar, lögmanns hjá Landslögum.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir drög að umsögn sveitarfélagsins um endurskoðun byggðatengdra veiðiheimilda innan 5,3% kerfisins. Nefndin styður fyrirsjáanlegar strandveiðar en leggst eindregið gegn því að frekari heimildir til þeirra verði sóttar með skerðingu eða afnámi skelbóta og línuívilnunar. Skelbætur eiga rætur að rekja til hruns hörpudiskveiða í Breiðafirði og hafa staðið undir útgerð, vinnslu og heilsársstörfum í Stykkishólmi til mjög langs tíma.

Nefndin hvetur ráðherra til að tryggja áframhaldandi skelbætur þar til handhöfum verður tryggður varanlegur nýtingarréttur í formi aflahlutdeildar án framsalsréttar, bundinn veiðum og vinnslu á þeim stöðum við Breiðafjörð þar sem skelveiðar voru stundaðar.

15.Veiðistjórn grásleppu og fyrirkomulag hrognkelsaveiða

Málsnúmer 2005020Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu áhrif þess að sóknarstýring hefur verið tekin upp að nýju við grásleppuveiðar með hliðsjón af bókun 46. fundar bæjarráðs frá 17. september sl.



Á 46. fundi bæjarráð var vísað til fyrri umsagna og ályktana Sveitarfélagsins Stykkishólms um veiðistjórn grásleppu og áréttuð fyrri afstaða sveitarfélagsins um að veiðistjórn grásleppu sé betur fyrir komið í hlutdeildar- og aflamarkskerfi en með sóknarstýringu. Sú afstaða hefur m.a. byggst á sjónarmiðum um aukinn stöðugleika og fyrirsjáanleika, hagkvæmari og öruggari veiðar og jafnari samkeppnisstöðu milli veiðisvæða, ekki síst gagnvart Breiðafirði þar sem vertíð hefst síðar en víða annars staðar.



Bæjarráð benti jafnframt á að gögn Hafrannsóknastofnunar frá árunum 2025 og 2026 sýna að sókn og fjöldi neta minnkaði meðan aflamarkskerfið var við lýði. Stofnunin bendir einnig á að aflamarkskerfi geri bátum kleift að sækja heimilaðan afla með færri netum og að meðafli sé líklegur til að vera minni miðað við sama heildarafla.



Bæjarráð tók jafnframt undir áhyggjur Hafrannsóknastofnunar af mögulegri aukinni sókn og meðafla við afturhvarf til sóknarstýringar og lagði áherslu á að tekið verði tillit til athugasemda stofnunarinnar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir bókun 46. fundar bæjarráðs frá 17. september sl. og telur að aflahlutdeild og aflamark veiti útgerðum við innanverðan Breiðafjörð meiri fyrirsjáanleika en sóknarstýring. Við núverandi fyrirkomulag þarf sérstaklega að tryggja að útgerðir á svæðum þar sem vertíð hefst síðar fái raunhæft tækifæri til veiða á grásleppu þannig að jafnræði sé gætt við stýringu veiðanna milli svæða.

16.Breiðafjarðarferjan Baldur

Málsnúmer 2011013Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu staða Baldur og áhrifum þess að Baldur var tekinn úr áætlunarsiglingum í sumar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir bókun 45. fundar bæjarráðs frá 20. ágúst sl. og leggur áherslu á að mikilvægi ferjusiglinga milli Stykkishólms, Flateyjar og Brjánslækjar og nauðsynlegri þjónustu við Flatey. Nefndir tekur undir mikilvægi þess að dregin verði saman þau efnahagslega áhrif sem yrðu hér við Breiðafjörð vegna röskunar á siglingum í sumar og að í því sambandi verði m.a. miðað við upplýsingar hjá ferðaþjónustuaðilum auk þess sem áhrifin á hafnarsjóð verði metin.

Atvinnu- og nýsköpunarnefnd hvetur til þess að fulltrúar sveitarfélagsins fundi með fulltrúum Vesturbyggðar og Reykhólahrepps um möguleika á að nýta ferjuna til þungaflutninga. Nefndin telur mikilvægt að sveitarfélögin vinni saman að aukinni nýtingu ferjunnar til að styrkja rekstrargrundvöll hennar og stuðla að því að tryggja reglubundnar siglingar um Breiðafjörð til framtíðar.

17.Fækkun lögregluembætta

Málsnúmer 2609027Vakta málsnúmer

Lögð fram drög dómsmálaráðuneytisins að breytingum á lögreglulögum og fleiri lögum (S-198/2026), en m.a. er lagt til að lögregluembættum fækki úr níu í þrjú.



Umsögn sveitarfélagsins er lögð fram.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir umsögn sveitarfélagsins. Að mati nefndarinnar liggur ekki fyrir hvernig fyrirhuguð sameining lögregluembætta muni bæta þjónustu á Vesturlandi. Nefndin leggst gegn sameiningunni í þeirri mynd sem kynnt hefur verið og telur farsælla að efla núverandi embætti. Hún leggur sérstaka áherslu á að staðbundin mönnun, viðbragðsgeta og stjórnun á Snæfellsnesi verði tryggð og að myndavéladeild lögreglunnar verði fest í sessi og efld í Stykkishólmi.

18.Ríkisstörf í Stykkishólmi

Málsnúmer 2411031Vakta málsnúmer

Á 5. fundi nefndarinnar kynntu Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi þróun ríkisstörfa í Stykkishólmi. Farið verður stöðuna og tekið til umræðu hvaða verkefni á vegum ríkisins gætu styrkt starfsstöðvar í bænum og/eða skapað þar ný störf.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd vísar málinu að til frekari vinnslu á næsta fundi nefndarinnar.

19.Stykkishólmur í sókn - Efling atvinnulífs í Stykkishólmi

Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer

Lögð fram til kynningar skýrsla starfshóps um eflingu atvinnulífs í Stykkishólmi þar sem lagðar foru vor fram 20 tillögur árið 2022. Jafnframt kynntur samningur frá 22. október 2026 um stofnun og rekstur þekkingarseturs við Breiðafjörð í Stykkishólmi, sem var megintillaga fyrrgreinds stafshóps.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd fagnar samningnum frá 22. október 2026 um stofnun og rekstur þekkingarseturs við Breiðafjörð í Stykkishólmi, en með honum er komin stoð undir eina af megintillögum starfshóps um eflingu atvinnulífs frá árinu 2022. Nefndin leggur áherslu á að fyrirtæki á svæðinu geti komið að verkefnum setursins og nýtt rannsóknir þess við þróun á vörum og þjónustu. Nefndin leggur áherslu á að sveitarfélagið vinni áfram að þeim þeim tillögum sem liggja fyrir í skýrslu starfshópsins um eflingu atvinnulífs.

20.Skógarstrandarvegur

Málsnúmer 1912009Vakta málsnúmer

Farið verður yfir stöðu framkvæmda á kaflanum frá Stykkishólmsvegi að Svelgsá og undirbúning næstu áfanga, þar á meðal þverunar Álftafjarðar.



Á 46. fundi bæjarráðs fagnaði bæjarráð því að áframhaldandi uppbygging Skógarstrandarvegar hefði verið tryggð í samþykktri samgönguáætlun 2026?2040 og ítrekaði mikilvægi þess að framkvæmdum yrði fylgt eftir af krafti. Skógarstrandarvegur væri stofnvegur og hluti grunnnets samgangna og hefði sveitarfélagið um árabil lagt þunga áherslu á uppbyggingu hans með vísan til umferðaröryggis, byggðaþróunar, atvinnulífs og þjónustu á svæðinu. Samþykkt samgönguáætlun gerði ráð fyrir áframhaldandi fjármögnun vegarins, bæði á fyrsta tímabili og síðari tímabilum áætlunarinnar.



Bæjarráð lagði sérstaka áherslu á að útboð vegna kaflans frá Stykkishólmsvegi að Svelgsá yrði auglýst sem fyrst og að framkvæmdum yrði hagað þannig að unnt yrði að ljúka verkinu eigi síðar en vorið 2027, í samræmi við fyrri áform Vegagerðarinnar. Bæjarráð óskaði jafnframt eftir því að Vegagerðin skoðaði, í samráði við sveitarfélagið og eftir atvikum landeigendur, hvort unnt væri að koma fyrir tímabundinni hjáleið um sumarhúsasvæðið að Saurum á framkvæmdatíma.



Bæjarráð lagði jafnframt þunga áherslu á að undirbúningi áframhaldandi uppbyggingar vegarins frá Svelgsá yrði hraðað, þar á meðal rannsóknum, valkostagreiningu og ákvörðun um framtíðarveglínu og þverun Álftafjarðar. Mikilvægt væri að niðurstaða um nýja veglínu yfir Álftafjörð lægi fyrir eins fljótt og kostur væri, þannig að unnt yrði að hefja nauðsynlega skipulagsvinnu og tryggja samfellu í undirbúningi og framkvæmdum. Sveitarfélagið ynni að nýju aðalskipulagi og því væri sérstaklega brýnt að framtíðarveglína yfir Álftafjörð lægi fyrir svo unnt væri að samræma hana aðalskipulagi Sveitarfélagsins Stykkishólms og Dalabyggðar. Í því sambandi lagði bæjarráð áherslu á mikilvægi þess að um þessa vinnu ríkti náið samráð Vegagerðarinnar og beggja sveitarfélaga sitt hvorum megin Álftafjarðar.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir áherslur bæjarráðs um að kaflinn frá Stykkishólmsvegi að Svelgsá verði tilbúinn eigi síðar en vorið 2027. Jafnframt verði undirbúningi næsta áfanga Skógarstrandarvegar, þ.e. frá Svelgsá, inn í Dali hraðað eins og kostur er og að gert verði ráð fyrir þverun Álftafjarðar.

21.Staða ferðaþjónustunnar í Stykkishólmi

Málsnúmer 2611002Vakta málsnúmer

Farið verður stöðu ferðaþjónustunnar í sveitarfélaginu og reynslu ferðaþjónustuaðila af sumrinu 2026 og horfur fyrir veturinn og næstu ár.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd leggur til að Félag atvinnulífs í Stykkishólmi og fulltrúar gististaða, veitingahúsa, afþreyingarfyrirtækja og annarra fyrirtækja sem hagsmuni hafa að gæta af ferðaþjónustu verði boðaðir til samtals um sumarið 2026, horfur fyrir veturinn og hvernig fulltrúar atvinnulífs í Stykkishólmi sjái næstu ár þróast hvað ferðaþjónustu varðar í sveitarfélaginu. Á fundinn yrðu jafnframt boðaðir fulltrúar Markaðsstofu Vesturland þar sem kynnt verður hvernig málið snúi við þeim og hvort og þá hvernig markaðsstofan geti orðið að liði í þessu sambandi. Með þessu móti væri hægt að stilla saman strengi og ákveða næstu skref og þá ræða hvernig hægt væri að efla ferðaþjónustu enn frekar í sveitarfélaginu.

22.Auglýsingaskilti fyrir Stykkishólm

Málsnúmer 2611001Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu möguleikar á að setja upp auglýsingaskilti fyrir Stykkishólm við Vatnaleið og í sunnanmegin á Snæfellsnesi, m.t.t. til hentugrar staðsetningar og hvernig útlit og stærð skilta gæti komið til greina.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur jákvætt í að kynna Stykkishólm fyrir ferðafólki við Vatnaleið og á sunnanverðu Snæfellsnesi með það að leiðarljósi að fjölga tilfallandi ferðum ferðamanna inn í Stykkishólm. Nefndin leggur til að sveitarfélagið og Félags atvinnulífs í Stykkishólmi í sameiningu boði til opins fundar varðandi verkefnið með áherslu staðsetningar og hönnun skiltisins eða skiltanna og í kjölfarið muni að sveitarfélagið kanna þá kosti sem standa til boða hvað staðsetningu með samtali við Eyja- og Miklaholtshrepp og viðeigandi landeigendur, verði það niðurstaða fundarins. Jafnframt verði skoðað hvort sameina megi þennan fund og fyrirhugaðan fund um móttöku skemmtiferðaskipa, sbr. dagskrárlið 13.

23.Fjárhagsáætlun 2027 og til þriggja ára 2028-2030

Málsnúmer 2609021Vakta málsnúmer

Lögð fram til umsagnar fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2027?2030 að lokinni fyrri umræðu í bæjarstjórn 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um þá liði áætlunarinnar sem varða atvinnu-, nýsköpunar- og ferðamál.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd gerir ekki athugasemd við fyrirliggajndi fjárhagsáætlun.
Hún leggur þó áherslu á að innan fyrirliggjandi fjárheimilda verði í forgangi að fylgja eftir samningi um þekkingarsetrið, kynna atvinnulóðir við Kallhamar og vinna með atvinnurekendum að verkefnum í ferðaþjónustu, þ.m.t. fyrirhugað auglýsingaskilti.

24.Gjaldskrár 2027

Málsnúmer 2610027Vakta málsnúmer

Lagðar fram til umsagnar gjaldskrár sveitarfélagsins fyrir árið 2027. Bæjarstjórn vísaði þeim til fastanefnda 29. október. Óskað er umsagnar nefndarinnar um áhrif fyrirhugaðra gjalda á fyrirtæki og ferðaþjónustu í Stykkishólmi.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd tekur undir þá ákvörðun bæjarstjórnar að almennar gjaldskrár sveitarfélagsins hækki að hámarki um 2,5% árið 2027 í A-hluta og mælir með samþykkt þeirra á þeim grundvelli að því er varðar málaflokka nefndarinnar.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?