Fara í efni

Fækkun lögregluembætta

Málsnúmer 2609027

Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn - 52. fundur - 01.10.2026

Lögð fram áform dómsmálaráðherra um fyrirhugaðar breytingar á skipulagi lögreglu. Áformin fela í sér fækkun lögregluembætta úr níu í þrjú, þar sem embætti lögreglustjórans á Vesturlandi verði sameinað embættunum á Vestfjörðum, Norðurlandi vestra og Norðurlandi eystra.



Samkvæmt kynningu ráðuneytisins er breytingunum ætlað að efla löggæslu og sérhæfingu, halda fjölda starfsstöðva óbreyttum og tryggja nálægð við ákvarðanatöku með aðstoðarlögreglustjórum.



Málið er lagt fram til umfjöllunar vegna þeirra hagsmuna sem undir eru og í ljósi þess að mikilvægt er að afla frekari upplýsinga um áhrif á Vesturlandi með áherslu á þjónustu í sveitarfélaginu og nærliggjandi svæðum.
Bæjarstjórn Stykkishólms leggur áherslu á mikilvægi embættis lögreglustjórans á Vesturlandi og þeirrar þjónustu sem lögreglan veitir íbúum, atvinnulífi og gestum svæðisins.

Bæjarstjórn tekur undir markmið um að efla löggæslu og sérhæfingu lögreglunnar og leggur áherslu á að fyrirhugaðar skipulagsbreytingar verði metnar ítarlega með tilliti til áhrifa á þjónustu í Stykkishólmi og á Vesturlandi.

Bæjarstjórn felur bæjarstjóra að afla nánari upplýsinga um málið og eiga samráð við Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi í því sambandi. Bæjarstjóri leggi fyrir bæjarráð minnisblað um stöðu áformanna, möguleg áhrif þeirra á þjónustu og öryggi á svæðinu og tillögur að frekari viðbrögðum sveitarfélagsins, eftir því sem tilefni er til.

Samþykkt samhljóða.
Getum við bætt efni síðunnar?