Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

49. fundur 30. júní 2026 kl. 13:00 - 13:30 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Fannar Þór Þorfinnsson byggingarfulltrúi
Fundargerð ritaði: Fannar Þór Þorfinnsson Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Nesvegur 14,

Málsnúmer 2606034Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að skipta Nesvegi 14 upp í tvö rými og bæta við innkeyrslu hurð og inngangs hurð á suðurhlið hússins.

Nýjir gluggar á vesturhlið og geymslusvæði við vesturgafl hússins.

Einning er sótt um samþykki fyrir áður gerðum milliloftum og innra skipulagi hússins. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Rerum ehf , dagsettir 08.06.2026.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 2 skv. grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarleyfi verður veitt að uppfylltum skilyrðum gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum.

2.Garðaflöt 6, stækkun á bílskúr

Málsnúmer 2605030Vakta málsnúmer

Á 47. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var tekin fyrir umsókn eiganda að Garðaflöt 6. Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús. Meginburðarvirki er úr timbri, með glerþaki á gróðurhúsi. Undirstöður og gólfplata verða steypt.

Þar sem deiliskipulag lá ekki fyrir vísaði byggingarfulltrúi umsókninni til skipulagsnefndar.

Umsóknin var tekin fyrir á 42. fundi skipulagsnefndar, þar sem ákveðið var að grenndarkynna byggingaráformin fyrir eigendum að Garðaflöt 4 og 8.

Bæjarráð staðfesti bókun skipulagsnefndar á 44. fundi sínum.

Umsagnir bárust frá eigendum að Garðaflöt 4 og 8, þar sem fram kom að ekki væru gerðar athugasemdir við fyrirliggjandi áform.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með síðari breytingum.

Fundi slitið - kl. 13:30.

Getum við bætt efni síðunnar?