Fara í efni

Garðaflöt 6, stækkun á bílskúr

Málsnúmer 2605030

Vakta málsnúmer

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 47. fundur - 19.05.2026

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús. Meginburðarvirki er úr timbri, með glerþaki á gróðurhúsi. Undirstöður og gólfplata verða steypt. Með umsókn fylgja aðaluppdrættir frá Rerum ehf, dagsettir 29.04.2026.
Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísar byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.

Skipulagsnefnd - 42. fundur - 10.06.2026

Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús.

Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísar byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilar stækkun á gróðurhúsi og bílskúr, en telur að grenndarkynna skuli erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8.

Bæjarráð - 44. fundur - 16.06.2026

Þuríður Ragna Stefánsdóttir, skipulagsfulltrúi, kom inná fundinn.
Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og að byggja við hann gróðurhús.



Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísaði byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 42. fundi sínum, stækkun á gróðurhúsi og bílskúr, en taldi að grenndarkynna skuli erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að kynna erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 49. fundur - 30.06.2026

Á 47. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa var tekin fyrir umsókn eiganda að Garðaflöt 6. Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús. Meginburðarvirki er úr timbri, með glerþaki á gróðurhúsi. Undirstöður og gólfplata verða steypt.

Þar sem deiliskipulag lá ekki fyrir vísaði byggingarfulltrúi umsókninni til skipulagsnefndar.

Umsóknin var tekin fyrir á 42. fundi skipulagsnefndar, þar sem ákveðið var að grenndarkynna byggingaráformin fyrir eigendum að Garðaflöt 4 og 8.

Bæjarráð staðfesti bókun skipulagsnefndar á 44. fundi sínum.

Umsagnir bárust frá eigendum að Garðaflöt 4 og 8, þar sem fram kom að ekki væru gerðar athugasemdir við fyrirliggjandi áform.
Byggingaráform eru samþykkt.
Umsóknin fellur undir umfangsflokk 1 skv. grein 1.3.2 í byggingarreglugerð.
Byggingarheimild verður veitt að uppfylltum skilyrðum 2.3.8. gr. byggingarreglugerðar nr. 112/2012, með síðari breytingum.
Getum við bætt efni síðunnar?