Fara í efni

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa

15. fundur 08. júlí 2021 kl. 12:00 á kaffistofu Ráðhússins
Nefndarmenn
  • Jökull Helgason byggingarfulltrúi
Starfsmenn
  • Sigurður Grétar Jónasson (SGJ) starfsmaður tæknisviðs
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Jökull Helgason Byggingarfulltrúi
Dagskrá

1.Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 2106037Vakta málsnúmer

Friðrik Kristinsson óskar eftir að fá að klæða Laufásveg 7 með smábáru og lerki.
Erindi samþykkt. Breytingarnar falla undir gr.2.3.5 lið C í byggingarreglugerð. Byggingarfulltrúi mun gefa út leyfi samkvæmt gr.2.3.6 í byggingarreglugerð 112/2012 með síðari breytingum.

2.Aðalgata 10 - Reyndarteikningar

Málsnúmer 2106038Vakta málsnúmer

Gunnlaugur Árnason leggur inn reyndarteikningar og leiðrétta skráningartöflu unnar af Sigurbjarti Loftssyni dags. 26.06.2021
Byggingarfulltrúi samþykkir erindið, sem er í samræmi við lög um mannvirki nr. 160/2010.

3.Bókhlöðustígur 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Málsnúmer 2104035Vakta málsnúmer

Eigandi sækir um leyfi fyrir byggingu bílgeymslu við Bókhlöðustíg 10.
Um er að ræða endurnýjaða umsókn en byggingarleyfi var veitt fyrir bílgeymslunni árið 2018 en ekki varð af framkvæmdum og er leyfið því útrunnið. Því er sótt aftur um leyfi á grundvelli sömu uppdrátta og sömu skráningartöflu. Vísað er í mál nr. 1804034.

Um er að ræða um 26 m2 bílgeymslu á steinsteyptum undirstöðum og með steinsteyptri gólfplötu en burðarvirki veggja og þaks er úr timbri. Bílgeymslan verður klædd að utan með furuklæðningu sömu gerðar og íbúðarhúsið. Þak verður klætt furuborðum og tjörupappa, sömu gerðar og á íbúðarhúsinu.
Skv. Þjóðskrá Íslands er lóðin er 614 m2 og á henni er íbúðarhús, matshluti 01, byggt árið 2002.
Í gildi er þinglýstur lóðarleigusamningur frá árinu 2005.
Í gildi er deiliskipulag fyrir Þinghúshöfða.
Með erindinu fylgdu aðaluppdrættir dags. júní 2021, unnir af Hjörleifi Stefánssyni arkitekt.
Fyrirliggjandi umsókn er í samræmi við gildandi deiliskipulag á svæðinu.
Umsóknin samræmist lögum um mannvirki nr. 160/2010 og byggingarreglugerð nr. 112/2012, með síðari breytingum

Byggingaráform samþykkt.

Byggingarleyfi verður gefið út að uppfylltum skilyrðum sbr. gr. 2.4.4 í byggingarreglugerð nr. 112/2012 með síðari breytingum og að uppfylltum skilyrðum/athugasemdum byggingarfulltrúa.

Fundi slitið.

Getum við bætt efni síðunnar?