Fara í efni

Safna- og menningarmálanefnd

105. fundur 30. október 2018 kl. 16:15 - 17:54 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Jóhanna Sesselja Jónsdóttir formaður
  • Jón Sindri Emilsson aðalmaður
  • Anna Sigríður Melsted aðalmaður
  • Dagbjört Höskuldsdóttir aðalmaður
  • Ragnheiður Valdimarsdóttir varamaður
Starfsmenn
  • Hjördís Pálsdóttir forstöðumaður norska hússins bsh
Fundargerð ritaði: Anna Melsteð fundarritari
Dagskrá

1.Drög að nýju erindisbréfi safna- og menningarmálanefndar

Málsnúmer 1811007Vakta málsnúmer

Formaður dreifði útprenti af drögum sem eru í vinnslu. Umræður sköpuðust um verkefni nefndarinnar sem tilgreind eru í drögunum. Senda þarf menningarstefnu Stykkishólms á nefndina, sem þarfnast yfirlestrar árlega. Fá þarf önnur gögn sem falla undir nefndina eins og samninga um söfn.

2.Safnamálin

Málsnúmer 1811008Vakta málsnúmer

Hjördís Pálsdóttir kom til fundar og fór yfir málefni safnanna.
- Fjárhagsleg staða Byggðasafns Snæfellinga og Hnappdæla - Norska húsið (BSH). 2017 og 2018. Staðan rædd lauslega, en niðurstaðan sú að HP sendi nefndinni Árleg skýrsla viðurkenndra safna fyrir árið 2017 sem hefur verið send til Safnaráðs, til nefndarinnar einnig.
- HP fór yfir starfsemi og sýningar BSH frá jólum 2017 til dagsins í dag. Gestakomur árið 2017 taldi 5.963 gesti, þar af 1.590 fullorðnir innlendir gestir, 3.734 erlendir fullorðnir gestir, innlend börn 532 og erlend börn 107. Rætt var um opnunartími safnanna. S.l. sumar opnuðu söfnin kl. 10. Breytt var um opnunartíma s.l. haust. Síðan þá er opið 6 daga vikunnar í Norska húsinu og Eldfjallasafni. Hægt er að kaupa aðgang að Vatnasafni í Norska húsinu auk Eldfjallasafnsins.
- Vatnasafnið. Enginn starfsmaður var á safninu s.l. sumar. Starfsmannahald næsta sumar rætt. Þrif eru regluleg í safninu. Bæklingur um safnið liggur nú frammi í Vatnasafni. Umræður um gestafjölda vs. aðgangseyrir. Árið 2018 var aðgangseyrir u.þ.b. 755.000 kr. en árið 2017 u.þ.b. 529.000 kr svo aukning hefur orðið á milli ára, tölur eru óendurskoðar.
- Eldfjallasafn. Sigurður Grétar er starfsmaður þar. Opið er mánudaga - laugardaga. Löngun er til að hafa fleiri viðburði í Eldfjallasafninu fyrirlestra ofl.

3.Safna- og menningarmálanefnd - Önnur mál

Málsnúmer 1811009Vakta málsnúmer

Fundargögn verði framvegis send nefndinni 2 dögum fyrir fund hennar.
Næsti fundur
- Næsti fundur fyrirhugaður þar sem Þórunn Sigþórssdóttir kemur og kynnir Norðurljósaskýrslu - 27.11.2018 kl. 16:15
- Einnig verði skoðaðar upplýsingar um Amtsbókasafn og hvernig árið hefur gengið.

Fundi slitið - kl. 17:54.

Getum við bætt efni síðunnar?