Fara í efni

Skipulagsnefnd

41. fundur 15. apríl 2026 kl. 16:30 - 18:10 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Gunnar Ásgeirsson (GÁ) aðalmaður
  • Steindór Hjaltalín Þorsteinsson aðalmaður
  • Kári Geir Jensson aðalmaður
  • Hilmar Hallvarðsson (HH) aðalmaður
  • Aron Bjarni Valgeirsson varamaður
Starfsmenn
  • Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði: Þuríður Ragna Stefánsdóttir skipulagsfulltrúi
Dagskrá

1.Berserkjahraun - Breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags

Málsnúmer 2511001Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd heimilar að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi og beinir því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sigurbjartur Loftsson og Sævar Harðarson frá Skipavík mættu á fund.

2.Fyrirspurn til skipulagsnefndar

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Sótt er um leyfi til að rífa núverandi Reitarveg 10 (Kristjánsborg) og fyrirspurn um að fá að gera breytingu á deiliskipulagi við Reitarveg 10 og 12.
Skipulagsnefnd þakkar forsvarsmönnum Skipavíkur fyrir kynninguna.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt að rífa Kristjánsborg og vísar erindinu til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd tekur jákvætt í að unnin verði breyting á deiliskipulagi vegna Reitarvegar 10 og 12.
Steindór situr hjá.
Gestir véku af fundi.

3.Klapparás - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju breyting á deiliskipulagi Klapparás. Bæjarráð samþykkti á 42. fundi sínum að "skoða ætti tvo möguleika við vinnslu deiliskipulagstillögu, annars vegar með hraðhleðslustöðvum og hins vegar byggingarreit fyrir þjónustu- og atvinnuhúnæði."

Lagðar fram tvær tillögur með ósk um heimild til að auglýsa þá tillögu sem verður fyrir valinu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsfulltrúi leggur fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, tillaga 1 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að vera með hraðhleðslustöðvar. Tillaga 2 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að byggja þjónustu- og atvinnuhúsnæði.
Skipulagsnefnd velur tillögu 1. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klapparás. Enn fremur beinir skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Sigurbjartur Loftsson og Sævar Harðarson frá Skipavík mættu á fund.

4.Breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis

Málsnúmer 2604012Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna Vatnavíkur, sbr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd þakkar forsvarsmönnum Skipavíkur fyrir kynninguna.
Skipulagsnefnd samþykkti fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis. Enn fremur beinir skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Steindór situr hjá.
Gestir véku af fundi.

5.Sótt um undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013

Málsnúmer 2604010Vakta málsnúmer

Sótt er um undanþágu frá 5.3.2.14 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, Skipulag við vötn, ár og sjó, til að reisa frístundahús í landi Jónsness, þar sem húsið er staðsett í 11.5m hæð frá sjávarmáli og því enginn hætta á flóðum eða skemmdum vegna sjávarágangs.
Skipulagsnefnd bendir eiganda á að sækja þurfi um undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar 90/2013 til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.

6.Höfðagata 3

Málsnúmer 2604013Vakta málsnúmer

Eigendur Höfðagötu 3 óska eftir heimild til að breyta stöðu Höfðagötu 3 úr íbúðarhúsnæði í gistihús.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu.

Fundi slitið - kl. 18:10.

Getum við bætt efni síðunnar?