Skipulagsnefnd
Dagskrá
1.Erindisbréf skipulagsnefndar
Málsnúmer 2003019Vakta málsnúmer
Lagt fram erindisbréf skipulagsnefndar. Gyða Steinsdóttir, fjármála- og skirfstofustjóri, kemur til fundar og gerir grein fyrir erindisbréfinu.
Lagt fram til kynningar. Skipulagsnefnd þakkar Gyðu fyrir greinargóða yfirferð.
2.Garðaflöt 6, stækkun á bílskúr
Málsnúmer 2605030Vakta málsnúmer
Sótt er um leyfi til að stækka bílskúr og byggja við hann gróðurhús.
Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísar byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.
Í ljósi þess að ekki liggur fyrir deiliskipulag á svæðinu vísar byggingarfulltrúi erindinu til skipulagsnefndar.
Skipulagsnefnd heimilar stækkun á gróðurhúsi og bílskúr, en telur að grenndarkynna skuli erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að kynna erindið fyrir Garðaflöt 4 og 8.
3.Erindi vegna rangt skráðra eða óskráðra fasteigna
Málsnúmer 2606030Vakta málsnúmer
Lagt fram erindi vegna ábendinga um óskráð mannvirki.
Skipulagsfulltrúi kynnti erindið. Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa í samstarfi við byggingarfulltrúa að skoða nánar skráningarmál eigna í sveitarfélaginu og setja í gang átak við óskaðar fasteignir.
4.Nesvegur 18, viðbygging
Málsnúmer 2606021Vakta málsnúmer
Sótt er um að byggja við eignarhluta 0104 til norðurs. Stækkun um 38,4m2.
Byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulagsnefndar þar sem farið er út fyrir byggingarreit skv. gildandi deiliskipulagi Hafnarsvæðis við Skipavík.
Byggingarfulltrúi vísar erindinu til skipulagsnefndar þar sem farið er út fyrir byggingarreit skv. gildandi deiliskipulagi Hafnarsvæðis við Skipavík.
Skipulagsnefnd hafnar erindinu þar sem breytingin samræmist ekki gildandi deiliskipulagi.
5.Aðalgata 17
Málsnúmer 2508001Vakta málsnúmer
Lagðar fram fyrstu teikningar af húsi sem fyrirhugað er að byggja á lóðinni Aðalgata 17. Þar er gert ráð fyrir verslunarrými og kaffihúsi/Bistro á neðri hæð og gistirými á efri hæð.
Enn fremur er óskað eftir því að deiliskipulag Miðbæjar Stykkishólms verði skoðað með mögulegri breytingu.
Enn fremur er óskað eftir því að deiliskipulag Miðbæjar Stykkishólms verði skoðað með mögulegri breytingu.
Skipulagsfulltrúi kynnti erindið. Skipulagsnefnd samþykkir að láta vinna breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar Stykkishólms og telur breytinguna vera óverulega sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Grenndarkynna skal fyrir Aðalgötu 15 og 15 a og Laufásvegi 10 og 12.
Fundi slitið - kl. 17:30.
með afbrigðum:
- 2003019 - Erindisbréf skipulagsnefndar