Fara í efni

Velferðar- og jafnréttismálanefnd

7. fundur 24. apríl 2026 kl. 12:15 - 13:15 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Klaudia S. Gunnarsdóttir formaður
  • Anna Lind Særúnardóttir aðalmaður
  • Arnar Geir Diego Ævarsson aðalmaður
  • Guðrún Magnea Magnúsdóttir aðalmaður
  • Gunnar Björn Haraldsson aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
Fundargerð ritaði: Klaudia Gunnarsdóttir formaður
Dagskrá
Forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga kemur inn á fund.

1.Velferðarnefnd undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar þar sem lagt er til að velferðarnefndir sveitarfélagana verði lagðar niður og stofnuð verði ein velferðarnefnd fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi sem verði færð undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.



Bæjarráð vísaði, á 42. fundi sínum, málinu til umfjöllunar í velferðar- og jafnréttismálanefnd.



Forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga kemur til fundar og gerir grein fyrir málinu.
Samkvæmt forstöðumanni er þörf á faglegri nefnd, en mál sem snerta Félags- og skólaþjónustu fara ekki lengur til sérhæfðrar velferðarnefndar. Félags- og skólaþjónusta er rekin sameiginlega á Snæfellsnesi, en mismunandi stefnur milli sveitarfélaga torvelda samræmda vinnu. Með sameiginlegri velferðarnefnd yrðu haldnir mánaðarlegir fundir þar sem fjallað er um málefni félags- og skólaþjónustu og velferðar- og jafnréttismál.

Sameiningin er talin styrkja starfsemina. Tillagan fær jákvæð viðbrögð, en nefndin telur æskilegt að hafa að lágmarki tvo fulltrúa frá hverju sveitarfélagi.
Forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga víkur af fundi.

2.Stefna í málefnum nýrra íbúa

Málsnúmer 2103029Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að stefnumörkun sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa.
Beinagrindin er góður grunnur að áframhaldandi hugmyndavinnu, en nefndin telur mikilvægt að hún verði ekki of umfangsmikil eða feli í sér loforð sem erfitt er að standa við, sérstaklega varðandi faglega þjónustu sveitarfélagsins. Skynsamlegt væri að vinna verkefnið í áföngum, þar sem aðgengi að skýrum og gagnlegum upplýsingum væri fyrsta skref.

Nefndin leggur áherslu á að fyrst og fremst tryggja gott upplýsingaflæði til þeirra sem flytja á svæðið, til dæmis með vandaðri og notendavænni heimasíðu og aðgengilegum upplýsingum um samfélagið, svo sem viðburði, félagasamtök, íþrótta- og skólastarf og stéttarfélög. Einnig mætti nýta einfalt kynningarefni, til dæmis plaköt með QR kóða á vinnustöðum og opinberum stöðum. Ekki þyrfti annað en að uppfæra síðuna sem nú þegar er og setja hana á áberandi stað á forsíðu www.stykkisholmur.is. Nefndin leggur líka til að sú vinna ljúki fyrir septemberlok 2026.

Mikilvægt er að koma skýrt á framfæri að allir séu velkomnir til þátttöku í samfélaginu, og bjóða upp á að fólk geti haft samband við sveitarfélagið ef það óskar eftir frekari aðstoð.

Nefndin vísar málinu til bæjarstjórnar til frekari umræðu, meðal annars þar sem ekki er gert ráð fyrir fjármagni í tengilið sem heldur utan um móttöku og viðtöl.

Fundi slitið - kl. 13:15.

Getum við bætt efni síðunnar?