Fara í efni

Góð loftgæði mælast í Samkomuhúsinu

20.03.2026
Fréttir

Nýverið var greint frá samningi sveitarfélagsins og Aftanskin um notkun á Samkomuhúsinu í Stykkishólmi. Bæjarstjórn samþykkti samninginn með því skilyrði að óháð og fagleg úttekt færi fram og staðfest yrði að loftgæði í húsnæðinu væru fullnægjandi en ekki heilsuspillandi.

Loftgæðamælingar voru framkvæmdar í húsnæðinu 12. mars síðastliðinn og sýna að loftgæði þar eru góð og innan eðlilegra marka. Mælingarnar voru framkvæmdar af fyrirtækinu Disact með svokallaðri Mycometer-aðferð, sem metur magn sveppaagna og annarra ofnæmisvalda í innilofti.

Niðurstöður mælinga eru túlkaðar samkvæmt viðmiðunarkerfi sem flokkar þær í flokka A+ til D eftir magni sveppaagna og ofnæmisvalda í lofti. Reyndust niðurstöður úr Samkomuhúsi falla í flokka A og A+, sem samkvæmt viðmiðum þýðir að magn sveppaagna og ofnæmisvalda sé eðlilegt eða mjög lágt.

Í niðurstöðum kemur fram að magn sveppaagna var sérstaklega lágt og engar vísbendingar fundust um sveppavöxt eða tengd vandamál. Þá var heildarmagn ofnæmisvalda einnig innan eðlilegra marka.

Yngvi Örn Stefánsson hjá Disact, sem framkvæmdi mælingar, sagði niðurstöðurnar mjög jákvæðar. Þá benti hann á að lítilsháttar iðnaðarryk vegna framkvæmda í húsinu gæti hafa haft einhver áhrif á mælingarnar. „Ef það hefði ekki verið fyrir það ryk hefðu allar mælingar líklega fallið í A+ flokk,“ sagði Yngvi.

Niðurstöðurnar eru því afar jákvæðar og leggja grunn að að því að hægt sé að blása nýju lífi í húsnæðið og starfsemi geti hafist þar að nýju. Samkomuhúsið hefur lengi verið mikilvægur samkomu- og samverustaður íbúa og staðfesta mælingar að svo geti verið áfram. Búið er að koma upp öflugu loftskiptakerfi í húsinu en því til viðbótar hafa verið settir upp tveir loftgæðamælar sem sýna hvernig loftgæði eru í húsnæðinu hverju sinni og fær verkefnastjóri framkvæmda- og eigna hjá sveitarfélaginu tilkynningu í snjalltæki ef mælarnir verða varir við breytingar á loftgæðum í húsnæðinu.

Gert er ráð fyrir að formleg starfsemi af hálfu Aftanskin hefjist í húsnæðinu á næstu dögum, en húsið mun Aftanskin nýta undir karllægar tómstundir á borð við smíðar og fleira. Aftanskin hefur jafnframt heimilað Golfklúbbnum Mostra í Stykkishólmi að nýta hluta af húsnæðinu, en með fyrrnefndum samningi heimilaði sveitarfélagið Aftanskin að ráðstafa rými í húsnæðinu til golfklúbbsins, kjósi félagið að gera það. Golfklúbburinn Mostri hyggst nýta aðstöðuna tímabundið undir golfhermi á meðan golfklúbburinn vinnur að því að koma upp aðstöðu á svæði golfklúbbsins undir slíka starfsemi.

Í samningnum segir m.a. að markmið samningsins sé að skapa grundvöll fyrir samfélagslega nýtingu húsnæðisins og stuðla að því að það verði, að því marki sem unnt er, komið í nothæft ástand á grunni sjálfboðastarfs og samstarfs við sveitarfélagið sem miði að því að ráðast í nauðsynlegt viðhald og uppbyggingu til að koma húsinu í hlutverk við hæfi.

Aftanskin stefnir að því að halda opið hús á næstunni þar sem íbúum og öðrum gestum gefst kostur á að kynna sér starfsemina og líta við í húsinu.

Samkomuhúsið í Stykkishólmi.
Getum við bætt efni síðunnar?