Fara í efni

Sveitarfélagið Stykkishólmur og Aftanskin undirrita samkomulag um Samkomuhúsið

02.03.2026
Fréttir

Sveitarfélagið Stykkishólmur og Aftanskin, félag eldri borgara í Stykkishólmi, undirrituðu í dag, mánudaginn 2. mars 2026, samning um afnot Samkomuhússins við Aðalgötu 6.

Bæjarstjórn samþykkti samninginn á 45. fundi sínum, fimmtudaginn 26. febrúar. Í afgreiðslu bæjarstjórnar er kveðið á um að óháð og fagleg úttekt fari fram áður en starfsemi hefst og að staðfest verði að loftgæði séu ekki heilsuspillandi, ásamt reglulegri eftirfylgni.

Unnið er nú að aðgerðum sem tryggja góð loftgæði í húsnæðinu, m.a. með öflugu loftskiptakerfi með varmaendurvinnslu í almannarýmum og útsogi í kjallara með röraviftu. Því til viðbótar verða nýttar lausnir frá fyrirtæki sem sérhæfir sig í sótthreinsun og lofthreinsilausnum, m.a. með aðferðum sem miða að því að drepa örverur í lofti og á yfirborðum. Sveitarfélagið hefur áður nýtt slíka þjónustu með góðum árangri í öðrum mannvirkjum.

Með samningnum er stigið mikilvægt skref í því að finna húsinu hlutverk við hæfi og vinna markvisst að því að koma því aftur í samfélagslega notkun. Samkomuhúsið er órjúfanlegur hluti af sögu og sjálfsmynd Stykkishólms og hefur um áratugaskeið verið vettvangur samkomu, menningarstarfs og félagslífs bæjarbúa.

Menningarlegt gildi hússins

Samkomuhúsið gegndi um langt árabil mikilvægu hlutverki í samfélagslífi bæjarins. Þar fóru fram leiksýningar, dansleikir, fundir, tónleikar, félagsmiðstöð fyrir unglinga og fjölbreytt menningarstarf sem mótaði kynslóðir Hólmara. Þá var þar rekið Eldfjallasafn þar til eigandi safnsins ákvað að flytja það úr sveitarfélaginu.

Sveitarfélagið hefur jafnframt um árabil unnið að því að finna húsinu framtíðarhlutverk, m.a. með samtölum, greiningum á ástandi, kostnaðarmati og möguleikum til endurbyggingar. Þetta endurspeglast m.a. í fundargerðum sveitarfélagsins. Ljóst hefur verið að húsið þarfnast umfangsmikilla úrbóta til lengri tíma litið, en á sama tíma hefur verið vilji til staðar að láta það ekki standa autt og ónýtt til lengri tíma.

Verkefnið sem nú er hafið er því hluti af lengra ferli sem miðar að því að varðveita og endurvekja samfélagslega nýtingu á húsnæðinu.

Stefnumörkun í fjárhagsáætlun 2026

Í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árið 2026, sem samþykkt var í desember 2025, var gert ráð fyrir því að ráðast í verkefni sem miðar að því að reyna að koma húsinu aftur í samfélagslega notkun. Þar var stefnt að því að gera tilraun til að blása lífi í húsnæðið að nýju.

Þótt samstarf við Aftanskin hafi þá ekki verið fullmótað var ljóst að áhugi og frumkvæði félagsmanna Aftanskin skipaði stórt hlutverk í þeirri stefnumótun. Undanfarið hefur verið unnið að undirbúningi húsnæðisins á grundvelli þessarar ákvörðunar bæjarstjórnar.

Frumkvæðið að verkefninu og krafturinn að baki því kom af hálfu fulltrúa og félagsmanna Aftanskin. Sveitarfélagið vill þakka þeim sérstaklega fyrir áhuga sinn og framlag, enda hefur það lengi verið markmið sveitarfélagsins að finna húsinu nýjan samfélagslegan tilgang og bindur sveitarfélagið vonir við að með þessu tilraunarverkefni verði tekið fyrsta skrefið í þessum efnum.

Áfangaskipt tilraunaverkefni

Verkefnið byggir á frumkvæði og áhuga sjálfboðaliða innan sveitarfélagsins og felur í sér að unnið verði að úrbótum í áföngum. Áhersla verður lögð á að ráðast í framkvæmdir í smærri skrefum samhliða undirbúningi og skipulagi umfangsmeiri endurbyggingar til framtíðar.

Um er að ræða áfangaskipt tilraunaverkefni þar sem markmiðið er að kanna hvort unnt sé að koma húsnæðinu í takmarkaða og örugga notkun á meðan unnið er að undirbúningi stærri framkvæmda. Reynslan af þessu ferli mun nýtast við áframhaldandi ákvarðanatöku um framtíð hússins.

Samhliða þessu verður ráðist í markvissar aðgerðir til að bæta loftgæði í húsnæðinu. Líkt fram kemur hér að ofan verður annars vegar sett upp öflugt loftskiptikerfi í almannarýmum sem tryggir virk og stöðug loftskipti og hins vegar útsog úr kjallara og undan gólfi með röraviftu til að viðhalda undirþrýstingi og draga úr líkum á að loft berist þaðan upp í rýmin. Jafnframt verður unnið með sérfræðingum að aðgerðum sem miða að því að útrýma óæskilegum myglusveppagróum og öðrum efnum úr loftinu og á að tryggja heilbrigðari innivist og bætt loftgæði.

Það má líta á verkefnið sem upphaf nýs kafla í sögu Samkomuhússins, þar sem samfélagið sjálft tekur þátt að nýju við að móta framtíð þess.

Skilyrði um óháða úttekt og reglulegt eftirlit

Heilsa og öryggi íbúa eru í forgangi af hálfu sveitarfélagsins. Bæjarstjórn samþykkti samninginn fimmtudaginn 26. febrúar sl. með því skilyrði að óháð og fagleg úttekt fari fram áður en nokkur starfsemi hefst og að staðfest verði að loftgæði í húsnæðinu séu fullnægjandi og valdi ekki heilsutjóni.

Við mat á loftgæðum skal meðal annars byggt á fyrirliggjandi skýrslum og gögnum um ástand húsnæðisins, sem fylgja samningnum sem fylgiskjöl, og skal úttekt taka mið af þeim athugasemdum og ráðleggingum sem þar koma fram. Þá er gert ráð fyrir úttekt að nýju innan hæfilegs tíma frá því að starfsemi hefst og reglulegu eftirliti í framhaldinu í samræmi við ráðleggingar sérfræðinga og ákvarðanir sveitarfélagsins hverju sinni. Sveitarfélaginu er m.a. heimilt að fresta eða stöðva starfsemi tímabundið ef niðurstöður úttektar eða eftirlits gefa tilefni til, þar til fullnægjandi úrbætur hafa farið fram.

Með þessu er ekki verið að líta fram hjá fyrri skýrslum um ástand hússins, heldur brugðist við þeim með ábyrgum hætti og sett fram skilyrði sem tryggja að notkun húsnæðisins byggi á faglegu mati og reglulegri eftirfylgni.

Fyrsta skref í lengra ferli

Af hálfu sveitarfélagsins er vilji til staðar að nýta kraft samfélagsins til góðra verka. Takist að koma húsnæðinu í nothæft og öruggt ástand er það mjög jákvætt skref fyrir bæinn og sveitarfélagið allt. Þá má jafnframt líta á verkefnið sem mögulegt fyrsta skref í heildarendurbyggingu hússins til lengri tíma.

Það sem er einna helst jákvætt við verkefnið er að hér er verið að finna Samkomuhúsinu hlutverk við hæfi í gegnum samfélagsverkefni sem byggir á samstarfi, samvinnu og frumkvæði innan sveitarfélagsins. Með því skapast forsendur fyrir því að Samkomuhúsið verði á ný virkur og lifandi hluti af samfélagslífi Stykkishólms.

Jakob Björgvin, bæjarstjóri, og Hanna Jónsdóttir, formaður Aftanskin undirrita samning.
Getum við bætt efni síðunnar?