Hannesarsteinn færður vegna framkvæmda
Hannesarsteinn, sem staðið hefur við Stykkishólmsveg við afleggjarann að kirkjugarði og Nýrækt, var færður nú í morgun, miðvikudaginn 17. september. Eins og fram hefur komið á vef sveitarfélagsins þurfti steininn að víkja vegna framkvæmda sem nú standa yfir við Stykkishólmsveg.
Ákvörðunin um að færa steininn vakti nokkrar umræður í samfélaginu. Ýmsar vangaveltur spruttu upp, þar á meðal hvort um gæti verið að ræða álagastein eða jafnvel hvort álfabyggð leyndist í steininum. Eins heyrðust áhyggjuraddir um að það sem sæist af steininum væri aðeins „toppurinn af ísjakanum“, eða að um klöpp væri að ræða sem ekki yrði auðveldlega haggað.
Steinninn reyndist þó minni en margir höfðu gert sér í hugarlund en þrátt fyrir það þótti hann óvenju þungur miðað við stærð. Það kom þó ekki að sök og gekk flutningurinn vel. Það má jafnvel segja að Hannesarsteinn hafi staðið undir nafni, enda var hann fremur stuttur, líkt og Hannes „stutti“ Hannesson sem steinninn er kenndur við.
Samkvæmt upplýsingum frá Minjastofnun Íslands er Hannesarsteins ekki getið í fornleifaskrá og virðist hann ekki tengjast fornri þjóðtrú eða öðrum þekktum frásögnum um álagasteina eða álfa. Steinninn nýtur ekki friðunar samkvæmt lögum um menningarminjar.
Steinninn var aðeins færður skammt út fyrir framkvæmdasvæðið en gert er ráð fyrir að hann verði síðar færður á endanlega staðsetningu þegar ný hönnun á göngustíg meðfram veginum liggur fyrir.