Kynningarfundur vegna breytingar á deiliskipulagi Víkurhverfis
Kynningarfundur vegna tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkurhverfi verður haldin miðvikudaginn 4. júní, kl. 16:30 - 17:30, á Amtsbókasafninu í Stykkishólmi. Á fundinum kynnir skipulagshönnuður tillöguna.
Bæjarstjórn Stykkishólms samþykkti þann 8. maí sl., að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir Víkurhverfi skv. 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsbreyting nær til lóðar D þar sem íbúðum fjölgar úr 4-6 í 10 íbúðir, byggingarreitur breytist þannig að 10 íbúðir passi betur á reitina og bílastæðum fjölgar úr 7 í 10.
Tillagan er aðgengileg á heimasíðu sveitarfélagsins www.stykkisholmur.is, í skipulagsgátt Skipulagsstofnunar www.skipulagsgatt.is og í Ráðhúsi Sveitarfélagsins Stykkishólms, frá 21. maí 2025. Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta eru hvattir til að kynna sér tillöguna. Athugasemdir og ábendingar skulu berast skriflega í gegnum www.skipulagsgátt.is málsnúmer 590/2025, eigi síðar en 2. júlí 2025.
Smelltu á hnappinn hér að neðan til að kynna þér tillöguna.