Fara í efni

Laus staða leikskólakennara í Stykkishólmi

23.06.2026
Fréttir

Leikskólinn í Stykkishólmi býður upp á fjölbreytt og gefandi starf í góðu starfsumhverfi þar sem fagmennska, samstarf og vellíðan eru í fyrirrúmi. Leikskólinn óskar eftir að ráða leikskólakennara í 100% starf og er nánari upplýsingar um starfið að finna hér að neðan.

Leikskólinn í Stykkishólmi auglýsir lausa stöðu:

100% staða leikskólakennara frá 17. ágúst 2026.

Gerð er krafa um leikskólakennaramenntun eða aðra sambærilega menntun. Góð tölvu- og íslensku kunnátta og færni í samskiptum er nauðsynleg.

Betri vinnutími hefur verið innleiddur að fullu í leikskólanum. Vakin er athygli á því að ef ekki fást leikskólakennarar til starfa koma aðrar umsóknir til greina. Athugið að starfið hentar öllum kynjum.

Allar nánari upplýsingar gefa Sigrún Þórsteinsdóttir leikskólastjóri og Elísabet Lára Björgvinsdóttir aðstoðarleikskólastjóri á netfanginu leikskoli@stykkisholmur.is og í síma 4338128 og 8664535.

Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu Sveitarfélagsins Stykkishólms og á íbúagáttinni á vef sveitarfélagsins www.stykkisholmur.is

Umsóknarfrestur er til 9. júlí 2026

Öllum umsóknum verður svarað.

Um leikskólann

Leikskólinn í Stykkishólmi er fjögurra deilda leikskóli með um 85 börn og öflugan starfsmannahóp. Einkunnarorð skólans eru virðing, gleði og kærleikur og lögð er áhersla á að skapa börnum öruggt, hlýlegt og skapandi umhverfi þar sem leikur, nám og vellíðan fara saman.

Í starfi leikskólans er sérstök áhersla lögð á sköpun, frumkvæði og þátttöku barna. Starfið tekur meðal annars mið af hugmyndafræði Reggio Emilia, fjölgreindarkenningu Howard Gardners og hugmyndum um nám í gegnum reynslu og virkni. Leikskólinn leggur áherslu á faglegt samstarf, jákvæð samskipti og metnaðarfullt skólastarf.

Um sveitarfélagið

Sveitarfélagið Stykkishólmur er á norðanverðu Snæfellsnesi og dregur nafn sitt af þéttbýlinu Stykkishólmi sem stendur við Breiðafjörð og er rómað fyrir einstaklega fallegt bæjarstæði. Um 1.350 manns búa í sveitarfélaginu sem er innan við tveggja klukkustunda akstursfjarlægð frá höfuðborgarsvæðinu.

Þjónustustig er gott í Stykkishólmi og státar bæjarfélagið af ríkulegu íþrótta- og tómstundastarfi fyrir fólk á öllum aldri og rótgrónum mennta- og menningarstofnunum. Alla helstu grunnþjónustu er að finna á svæðinu, m.a. leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla og framhaldsskóla, öflugt íþróttastarf, heilsugæslu, bókasafn, lágvöruverslun og margt fleira.

Atvinnulíf er fjölbreytt og samfélagið fjölskylduvænt. Blómleg ferðaþjónusta býður upp á fjölmörg tækifæri til afþreyingar og útivistar fyrir íbúa og gesti. Náttúra sveitarfélagsins er fjölbreytt og mannlífið öflugt. Fram undan eru spennandi uppbyggingarverkefni og góð tækifæri fyrir einstaklinga og fjölskyldur sem vilja setjast að í öflugu samfélagi. Aðstaða er jafnframt til staðar fyrir störf óháð staðsetningu, til dæmis fyrir maka.

Getum við bætt efni síðunnar?