Fara í efni

Lóðin Nesvegur 12 laus til umsóknar

31.01.2023
Fréttir

Lóðin Nesvegur 12 er hér með auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur sveitarfélagsins um úthlutun á lóðum fyrir íbúðar- og atvinnuhúsnæði og bætist þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar 2023.

Berist fleiri en ein umsókn áður en umsóknarfrestur rennur út sem uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna sveitarfélagsins skal hlutkesti ráða úthlutun. Eftir þann tíma skal úthluta lóðinni til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.

Sækja má um lóðina/lóðirnar í íbúagátt Stykkishólms ("Umsóknir" -> "Umsókn um lóð")
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.

Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista sem finna má á vefsjá Stykkishólms.

Sjá nánar gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.

Nesvegur 12
Getum við bætt efni síðunnar?