Lóðin Nesvegur 14a laus til umsóknar
Lóðin Nesvegur 14a er hér með auglýst til úthlutunar í samræmi við reglur um úthlutun lóða í Stykkishólmi og bætist þar með á úthlutunarlista yfir lausar lóðir í Stykkishólmi. Umsóknarfrestur er til og með 23. maí 2024.
Berist fleiri en ein umsókn áður en umsóknarfrestur rennur út sem uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna sveitarfélagsins skal hlutkesti ráða úthlutun. Eftir þann tíma skal úthluta lóðinni til fyrsta umsækjanda sem eftir leitar að uppfylltum skilyrðum reglnanna.
Sækja má um lóðina/lóðirnar í íbúagátt Stykkishólms ("Umsóknir" -> "Umsókn um lóð")
Nánari upplýsingar er hægt að nálgast í Ráðhúsinu, Hafnargötu 3, 340 Stykkishólmi eða í síma 433-8100 eða á heimasíðu sveitarfélagsins, stykkisholmur.is.
Jafnframt er vakin athygli öðrum lausum lóðum sem áður voru auglýstar og skráðar eru á úthlutunarlista sem finna má á vefsjá Stykkishólms.
Sjá nánar gildandi deiliskipulag fyrir svæðið.