Fara í efni

Matjurtargarðar við Heljarmýri

20.05.2026
Fréttir Þjónusta

Í lok apríl auglýsti sveitarfélagið matjurtargarða við Heljarmýri, óskað var eftir því að áhugasamir myndu láta vita af sér svo hægt væri að undirbúa garða í samræmi við eftirspurn.

Búið er að gera garðana klára og merkja hvern reit með litlum staurum. Þeir sem óskuðu eftir matjurtargarði geta því merkt sér reit og hafist handa við niðursetningu. Vakni spurningar er hægt að hafa samband við verkstjóra í áhaldahúsi í síma 892-1189.

Smelltu hér til að sjá staðsetningu matjurtargarðanna.

Matjurtargarðarnir klárir
Getum við bætt efni síðunnar?