Fara í efni

Sinfó í Sundlaug Stykkishólms

27.08.2025
Fréttir Lífið í bænum

Klassíkin okkar, tónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands verða í beinni útsendingu föstudagskvöldið 29. ágúst kl. 20.00 í Sundlaug Stykkishólms. Að þessu sinni eru sönglög í brennidepli og er heiti tónleikanna, Söngur lífsins.

Sinfóníuhljómsveitin leitaði eftir því að sveitarfélög tækju þátt í viðburðinum og myndu leyfa sundlaugagestum að njóta, enda eru tónleikarnir á opnunartíma sundlauganna. Hægt verður að hlusta á ljúfa tóna Sinfóníuhljómsveitarinnar í nýjum og glæsilegum heitum pottum frá kl. 20.00 á föstudagskvöldið. Svæðisgarður Snæfellsness býður upp á ljúffengan heilsudrykk á bakkanum á meðan birgðir endast.

Á tónleikunum flytja margir af fremstu söngvurum landsins tónlist sem tengist hinum ýmsu athöfnum okkar og viðburðum á lífsleiðinni; frá tregafullum kvöldsöngvum til glaðværra gamansöngva. Bjarni Frímann Bjarnason sem heldur um tónsprotann og leiðir Sinfóníuhljómsveit Íslands á en meðal söngvara sem taka lagið á tónleikunum eru GDRN, Pálmi Gunnarsson, Valdimar Guðmundsson og Dísella Lárusdóttir.

Nánar á vef Sinfó

Getum við bætt efni síðunnar?