Tillaga um launalækkun og aukið aðhald samþykkt samhljóða
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Stykkishólms samþykkti samhljóða á fundi sínum 29. október að vísa fjárhagsáætlun fyrir árið 2027, ásamt þriggja ára áætlun fyrir árin 2028–2030, til síðari umræðu. Á fundinum var jafnframt samþykkt samhljóða tillaga Björns Ásgeirs Sumarliðasonar, forseta bæjarstjórnar, um tímabundna launalækkun bæjarfulltrúa og bæjarstjóra og stefnumörkun í fjármálum fyrir árin 2027 og 2028.
Á fundinum kynnti bæjarstjóri helstu forsendur og áherslur fjárhagsáætlunarinnar. Áætluninni var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráði og til umsagnar í öðrum fastanefndum sveitarfélagsins. Sú vinna heldur áfram á næstu vikum.
Samkvæmt tillögu forseta lækka greiðslur til bæjarfulltrúa fyrir störf í bæjarstjórn og bæjarráði um 50% frá 1. janúar til 31. desember 2027. Greiðslur til forseta bæjarstjórnar lækka hins vegar um 80%. Lækkunin tekur til fastra mánaðargreiðslna og greiðslna fyrir hvern fund og sömu viðmið gilda um varamenn þegar þeir taka sæti.
Forseta bæjarstjórnar var jafnframt falið að undirbúa og ganga frá skriflegu samkomulagi við bæjarstjóra um launalækkun á sama tímabili. Bæjarstjóri hafði lýst sig reiðubúinn til að taka þátt í aðgerðinni, þótt hann sé ekki kjörinn fulltrúi. Lækkunin nemi meðaltalslækkun greiðslna til bæjarfulltrúa í bæjarstjórn.
„Þessi tillaga er fram komin vegna þess að ég tel ábyrgt að auka enn frekar aðhald í rekstri sveitarfélagsins í ljósi núverandi efnahagsástands,“ sagði Björn Ásgeir Sumarliðason, forseti bæjarstjórnar, þegar hann kynnti tillöguna.
„Þetta er gert vegna þess að þegar við biðjum starfsfólk og stofnanir að endurskoða útgjöld og sýna enn meira aðhald og þegar við leggjum til að skerða þjónustu við íbúa hjá nokkrum stofnunum sveitarfélagsins, þá tel ég að við bæjarfulltrúar eigum að ganga á undan með þessu fordæmi.“
Samkvæmt greinargerð með tillögunni er tímabundinni launalækkun ætlað að vera framlag kjörinna fulltrúa til aðhaldsaðgerða í rekstri sveitarfélagsins. Stefnumörkunin tekur jafnframt mið af samantekt bæjarstjóra um mögulegar aðgerðir, sem unnin var í kjölfar funda bæjarráðs með forstöðumönnum og áframhaldandi vinnu við fjárhagsáætlun.
Markmiðið er að bæta árlega afkomu A-hluta varanlega um 80–100 milljónir króna og ná þeim árangri að fullu árið 2028. Við ákvarðanir um fjárfestingar verður miðað við að sveitarfélagið taki engin ný lán árin 2027 og 2028. Umfang framkvæmda ráðist því af svigrúmi rekstrarins þegar tekið hefur verið tillit til afborgana lána, annarra skuldbindinga og nauðsynlegs lausafjár. Eignasala verði einnig skoðuð þar sem við á.
Bæjarráði var falið að vinna áfram að greiningu, tillögugerð og kostnaðarmati aðgerða í samstarfi við bæjarstjóra og forstöðumenn.
Tillögu forseta má nálgast hér
Fundargerð bæjarstjórnar má nálgast hér.
Upptöku af bæjarstjórnarfundinum má finna hér.