Tiltekt á Reitarvegi - Eigendur lausamuna athugið
Sveitarfélagið Stykkishólmur stendur nú fyrir hreinsunarátaki og hvetur eigendur lausamuna á Reitarvegi til að taka þátt í hreinsun á svæðinu. Búið er að koma fyrir gám á svæðinu þar sem hægt er að henda járni.
Átakið fylgir í kjölfar vel heppnaðrar tiltektar á hafnarsvæði við Skipavík, þar sem íbúar og fyrirtæki á svæðinu tóku höndum saman við að hreinsa svæðið. Tiltektin var afar vel heppnuð og skilaði bæði hreinna umhverfi og aukinni ánægju íbúa og fyrirtækja á svæðinu.
Gámurinn er eingöngu ætlaður undir járn og verður fjarlægður af svæðinu mánudaginn 9. mars.
Sveitarfélagið hvetur þá sem eiga lausamuni á Reitarvegi til að nýta sér gáminn og leggja sitt af mörkum til að hreinsa svæðið. Fyrirhugað er að ráðast í sambærilega hreinsun á fleiri atvinnusvæðum á næstunni.
Á myndinni hér að neðan má sjá staðsetningu gámsins.
