Fara í efni

Tiltekt á Skipavíkursvæði

10.07.2026
Fréttir

Fyrr á þessu ári var ráðist í hreinsunarátak á Reitarvegi. Sveitarfélagið heldur nú áfram hreinsunarátakinu og hvetur nú eigendur lausamuna á Skipavíkursvæði til að nýta gám sem þar hefur verið staðsettur og fegra og hreinsa svæðið.

Gámurinn er eingöngu ætlaður fyrir málma og járn og er liður í áframhaldandi átaki sveitarfélagsins til að bæta umgengni og stuðla að snyrtilegum atvinnusvæðum.

Sveitarfélagið hvetur alla sem eiga lausamuni úr járni á Skipavíkursvæðinu til að nýta sér gáminn og leggja sitt af mörkum til að gera svæðið snyrtilegra og öruggara.

Járnagámur á Skipavíkursvæði
Getum við bætt efni síðunnar?