Söguskilti um miðbæ Stykkishólms við Bókhlöðuhöfða
Málsnúmer 2603012
Vakta málsnúmerSkipulagsnefnd - 40. fundur - 11.03.2026
Fyrir rúmu ári síðan fékk Anna Melsteð styrk frá Lista- og menningarsjóði Sveitarfélagsins Stykkishólms vegna sögumiðlunar um miðbæ Stykkishólms. Hún hefur nú komið með tillögu að söguskilti um gamla miðbæinn og óskar eftir að fá að setja það upp á Bókhlöðuhöfða.
Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti að setja upp söguskilti við Bókhlöðuhöfða, en gerir ráð fyrir að efnisatriði skiltisins fái umfjöllun í safna- og menningarmálanefnd eða bæjarstjórn. Nákvæm staðsetning skiltis skal vera í samráði við skipulagsfulltrúa.