Bæjarstjórn
1.Safna- og menningarmálanefnd - 7
Málsnúmer 2602005FVakta málsnúmer
2.Ungmennaráð - 10
Málsnúmer 2602006FVakta málsnúmer
3.Skipulagsnefnd - 40
Málsnúmer 2603001FVakta málsnúmer
4.Bæjarráð - 42
Málsnúmer 2603002FVakta málsnúmer
5.Umsókn um lóð - Hamraendar
Málsnúmer 2603014Vakta málsnúmer
Afgreiðslu umsóknarinnar var frestað þar til endanlegt deiliskipulag lægi fyrir. Deiliskipulag svæðisins hefur nú verið samþykkt af hálfu bæjarstjórnar og fengið lögbundna umfjöllun af hálfu Skipulagsstofnunar.
Málið var lagt fram á 42. fundi bæjarráðs. Þá var einnig lagt fram bréf frá BB og sonum ehf. þar sem félagið dregur umsókn sína um lóð á Hamraendum til baka. Í bréfinu kemur fram að ákvörðunin sé tekin í ljósi áforma innviðaráðherra um að fella brott skel- og rækjubætur og þeirrar óvissu sem þau áform skapa um rekstrarforsendur félagsins.
Bæjarráð tók undir að um sé að ræða alvarlega stöðu sem upp er komin og harmaði að forsendur hafi breyst með þeim hætti að félagið sjái sér ekki fært að halda áfram með fyrirhuguð uppbyggingaráform í sveitarfélaginu að svo stöddu.
6.Fundargerðir - Samband íslenskra sveitarfélaga
Málsnúmer 2102003Vakta málsnúmer
7.Viðhorfskönnun meðal starfsmanna sveitarfélagsins
Málsnúmer 2603016Vakta málsnúmer
Fulltrúar Attentus komu til fundar á 42. fundi bæjarráðs og gerðu grein fyrir niðurstöðum úr viðhorfskönnunar.
Bæjarráð lýsti ánægju sinni með jákvæðar niðurstöður úr starfsmannakönnun sveitarfélagsins.
8.Samþætting skólastarfs - Samrekstur grunnskóla og tónlistaskóla Stykkishólmsbæjar
Málsnúmer 2102042Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti tillöguna á 42. fundi sínum og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
9.Sögu og menningararfur í Stykkishólmi - Menningartengd ferðaþjónusta
Málsnúmer 1905057Vakta málsnúmer
Verkefnið hefur verið unnið í samstarfi við Minjastofnun Íslands og snýr að því að bæta aðgengi, stýringu og miðlun sögu svæðisins, sem er ríkt af menningarminjum og tengist upphafi verslunar í Stykkishólmi. Markmið verkefnisins er að gera svæðið aðgengilegra fyrir íbúa og gesti, styrkja útivist og náttúruupplifun og miðla sögu og menningararfi með vönduðum hætti.
Samkvæmt framlagðri hönnun er gert ráð fyrir gönguleiðum, áningastöðum, útsýnisstöðum og fræðsluskiltum þar sem leitast er við að lágmarka rask á landi og láta mannvirki falla sem best að náttúru og minjum svæðisins. Verkefnið er hugsað í áföngum, þar sem hönnun er fyrsta skref en framkvæmd stígagerðar og uppsetning miðlunarefnis næstu skref.
Jafnframt liggur fyrir kostnaðarnálgun vegna framkvæmda, þar sem heildarkostnaður við uppbyggingu áningastaða, stíga, mannvirkja og skiltagerðar er áætlaður um 45-50 m.kr., eftir útfærslu og áföngum.
Bæjarráð óskaði á 42. fundi sínum eftir áframhaldandi samstarfi við Minjastofnun um verkefnið með það að markmiði að tryggja að næstu áfangar verkefnisins fái framgang á landsáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
10.Stykkishólmur í sókn - Þekkingarnet Breiðafjarðar
Málsnúmer 2107012Vakta málsnúmer
Bæjarráð fól bæjarstjóra og verkefnastjóra að vinna að gerð viljayfirlýsingar milli sveitarfélaga og menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um verkefnið og í framhaldinu að kallað verði til fundar með sveitarfélögum í kringum Breiðafjörð.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
11.Húsnæðisáætlun sveitarfélagsins
Málsnúmer 2311014Vakta málsnúmer
Bæjarráð vísaði, á 42. fundi sínum, húsnæðisáætlun sveitarfélagsins 2026 til samþykktar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
12.Fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Stykkishólms 2026-2029
Málsnúmer 2510020Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 42. fundi sínum, erindi skólastjóra og vísaði málinu til endanlegrar afgreiðslu í viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026 og til vinnu við gerð fjárhagsáætlunar 2027.
Samþykkt samhljóða.
13.Sala á húsnæði - Skúlagata 9
Málsnúmer 2409019Vakta málsnúmer
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
14.Sjávarútvegsstefna og skelbætur
Málsnúmer 2312008Vakta málsnúmer
Þá er lögð fram ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vestulandi vegna málsins og afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum vegna áforma innviðaráðherra um skelbætur.
Bæjarráð Stykkishólms tók, á 42. fundi sínum, undir ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um skelbætur og línuívilnun og leggst eindregið og hart gegn fyrirliggjandi frumvarpi innviðaráðherra.
Bæjarráð taldi að fyrirhuguð lagabreyting muni hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélagsins, verði hún að veruleika. Verði frumvarpið að lögum getur það haft grafalvarleg áhrif á sveitarfélagið og aukið verulega hættu á að starfsemi, sem byggir m.a. á skelbótum, leggist af í sveitarfélaginu.
Bæjarráð benti á að neikvæð áhrif áformanna eru þegar farin að koma fram og vísar í því sambandi til bréfs BB og sona ehf., dags. 18. mars 2026, um afturköllun lóðarumsóknar á Hamraendum, þar sem fram kemur að félagið sjái sér ekki fært að halda áfram með fyrirhuguð uppbyggingaráform í sveitarfélaginu vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur vegna áforma innviðaráðherra.
Bæjarráð skoraði á ríkisstjórn, sér í lagi innviðaráðherra, og Alþingi að falla frá frumvarpinu og hefja raunverulegt samráð við sveitarfélög og atvinnulíf um framtíð fiskveiðistjórnarkerfisins með það að markmiði að tryggja áfram byggðafestu, stöðugleika og fjölbreytt atvinnulíf á landsbyggðinni.
Bæjarstjórn tekur undir og staðfestir ályktun bæjarráðs þar sem skorað er á ríkisstjórn, sér í lagi innviðaráðherra, og Alþingi að falla frá frumvarpinu. Bæjarstjórn tekur sérstaklega undir að verði frumvarpið að lögum geti það haft grafalvarleg áhrif á sveitarfélagið og aukið verulega hættu á að starfsemi, sem byggir m.a. á skelbótum, leggist af í sveitarfélaginu. Áformin eru þannig til þess fallin að veikja rekstrargrundvöll sveitarfélagsins og þar með samfélagsins í heild.
Sjávarútvegur hefur lengi verið hryggjarstykkið í atvinnulífi Stykkishólms og stór hluti útsvarstekna sveitarfélagsins og annarra tekna kemur frá starfsemi sem reiðir sig á skelbætur. Bæjarstjórn bendir á að gróft á litið sé um að ræða hátt í 100 störf sem eiga hér beint og óbeint undir þeirri starfsemi sem reiðir sig á skelbætur. Þannig má ætla að áhrifin nái til um 200 einstaklinga í sveitarfélaginu, þar af fjölda barna, eða um 15% íbúa sveitarfélagsins.
Bæjarstjórn minnir á að hún hefur ávallt og ítrekað lagt þunga áherslu á mikilvægi skelbóta fyrir atvinnulíf í Stykkishólmi og þar með samfélagið í heild. Hér er um að ræða grundvallarþátt við að tryggja starfsemi fyrirtækja í Stykkishólmi sem stunda útgerð og fiskvinnslu í bænum og hafa byggt starfsemi sína á þeim aflaheimildum sem skelbótum hafa fylgt. Bæjarstjórn telur að verði frumvarpið að lögum muni það koma til með að hafa verulega neikvæð áhrif á atvinnulíf, byggðafestu og tekjustofna sveitarfélagsins og sé því með öllu óásættanlegt.
Þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar og beiðnir um samráð við bæjarstjórn vegna skelbóta hefur slíkt samráð ekki átt sér stað, sem bæjarstjórn telur alvarlegt í ljósi þess að hér er um eitt mikilvægasta byggðamál sveitarfélagsins að ræða. Þá skýtur það skökku við að frumvarpið komi fram í kjölfar þess að stjórnvöld hafa skert skelbætur umtalsvert síðastliðin tvö ár, sem bæjarstjórn hefur ítrekað kallað eftir að verði leiðrétt, en í stað þess að leiðrétta þá skerðingu er þvert á móti lagt til að afnema skelbætur. Er framkomið frumvarp því eins og blaut tuska í andlitið á samfélaginu hér í Stykkishólmi.
Bæjarstjórn bendir jafnframt á að neikvæð áhrif áformanna séu þegar farin að koma fram. Í því sambandi er vísað til afturköllunar lóðarumsóknar og uppbyggingaráforma í sveitarfélaginu vegna þeirrar óvissu sem skapast hefur. Þetta er vísbending um að áformin séu þegar byrjuð að hafa neikvæð áhrif á atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.
Bæjarstjórn tekur að lokum heilshugar undir ályktun stjórnar Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi um málið og áréttar að fyrirliggjandi frumvarp gangi þvert gegn hagsmunum sjávarbyggða.
Bæjarstjórn skorar á ríkisstjórn og Alþingi að falla frá frumvarpinu í núverandi mynd og hefja þegar í stað samtal og samráð við sveitarfélög og atvinnulíf, með það að markmiði að tryggja áframhaldandi stöðugleika, fyrirsjáanleika og byggðafestu í sjávarbyggðum.
Samþykkt samhljóða.
15.Klapparás - deiliskipulagsbreyting
Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer
Óskað er eftir að fá að auglýsa tillöguna að breytingu skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Á 40. fundi skipulagsnefndar var lögð fram að nýju tillaga að breytingu á deiliskipulaginu. Þá voru lögð fram gögn sem borist hafa frá Atlantsolíu þar sem óskað er eftir að stækka lóð Atlantsolíu á kostnað lóðar 3 og koma þar fyrir hraðhleðslustöðvum og bílaþvottastöð.
Skipulagsnefnd lagði til að ræða við ON varðandi aðstöðu á lóð 3 eftir breytingu. Skipulagsnefnd fól skipulagsfulltrúa að ræða við Instavolt um staðsetningu og útlit stöðva í miðbænum.
Með vísan til framanritaðs og fyrirliggjandi gagna fól skipulagsnefnd skipulagsfulltrúa að uppfæra deiliskipulagsbreytinguna m.t.t. nýrra gagna og umræðna á fundinum.
Bæjarráð tók, á 42. fundi sínum, jákvætt í erindi Atlantsolíu og lýsti yfir áhuga á stækkun lóðar fyrir hraðhleðslustöð og bílaþvottastöð í samræmi við fyrirliggjandi erindi. Varðandi lóð 3 taldi bæjarráð að skoða ætti tvo möguleika við vinnslu deiliskipulagstillögu, annars vegar með hraðhleðslustöðvum og hins vegar byggingarreit fyrir þjónustu- og atvinnuhúsnæði.
Bæjarráð vísaði öðrum tillögum um uppbyggingu hraðhleðslustöðva til áframhaldandi vinnslu hjá sveitarfélaginu, sbr. Orkuskipti í samgöngum, málsnr. 2006042. Bæjarráð staðfesti að öðru leyti afgreiðslu skipulagsnefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
16.Söguskilti um miðbæ Stykkishólms við Bókhlöðuhöfða
Málsnúmer 2603012Vakta málsnúmer
Skipulagsnefnd samþykkti, á 40. fundi sínum, fyrir sitt leyti að setja upp söguskilti við Bókhlöðuhöfða, en gerir ráð fyrir að efnisatriði skiltisins fái umfjöllun í safna- og menningarmálanefnd eða bæjarstjórn. Nákvæm staðsetning skiltis skal vera í samráði við skipulagsfulltrúa.
Bæjarráð staðfesti, á 42. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
17.Orkuskipti í samgöngum - hraðhleðslustöðvar
Málsnúmer 2006042Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 42. fundi sínum, fyrirliggjandi samninga gegn því að skipulagsfulltrúi samræmi gjaldtöku vegna stöðvanna.
Bæjarráð samþykkti jafnframt fyrirliggjandi tillögur að uppsetningu hraðhleðslustöðva í sveitarfélaginu með fyrirvara um endanlega staðfestingu af hálfu skipulagsnefndar.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
18.Erindi frá Markaðsstofu Vesturlands
Málsnúmer 2603015Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 42. fundi sínum, aðkomu sveitarfélagsins að þessu verkefni.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
19.Samkomuhúsið í Stykkishólmi við Aðalgötu 6
Málsnúmer 2006020Vakta málsnúmer
Bæjarráð lýsti á 42. fundi sínum ánægju yfir jákvæðum niðurstöðum og fól bæjarstjóra að senda niðurstöðurnar til Aftanskins.
Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt með 4 atkvæðum bæjarfulltrúa H-lista gegn 3 atkvæðum bæjarfulltrúa Í-lista.
Til máls tóku: RMR, SIM, HG, JBSJ, RMR, HH og KH
Bókun bæjarfulltrúa Í- lista:
Samkomuhús
Við teljum að H-listinn sé ekki að leysa vandann í Samkomuhúsinu heldur að mála yfir hann. Verksýn verkfræðistofa mat húsið árið 2021 í mjög slæmu ástandi, með fúa og myglu í klæðningu og burðargrind, og taldi að heppilegast væri að rífa húsið og byggja nýtt. Sama ár voru tekin myglusýni úr húsinu og voru þrjú sýnanna rauðmerkt sem sýndu mikla myglu með skaðlegum sveppum. Einnig taldi Heilbrigðiseftirlit Vesturlands í sinni umsögn að húsið sé ekki hæft til notkunar fyrir starfsleyfisskylda starfsemi eða annað samkomuhald.
Nú reynir H-listinn að fegra stöðuna með loftmælingu á aðeins tveimur stöðum í húsinu, en slík mæling afsannar hvorki skýrslu Verksýnar frá 2021 né að það sé mygla í veggjum. Einnig er tekið fram í loftgæðamælingum sem fyrirtækið DISACT vann fyrir sveitarfélagið 13-15 mars sl. að engin merki séu um sveppavöxt í rýmunum né nærliggjandi byggingahlutum. Við teljum útilokað að hægt sé að fullyrða um þetta þar sem að mælingin stóð aðeins í tvo daga og var framkvæmd eftir að allt húsið var málað að innan og viku eftir að DISACT sótthreinsaði það með gufu. Í samningi sem gerður hefur verið við Aftanskin er tekið skýrt fram að óháður aðili skuli fenginn til að meta ástand hússins, hæpið er að kalla DISACT óháðan aðila þar sem þeir nú þegar eru í töluverðum viðskiptum við sveitarfélagið meðal annars við eftirlit og hreinsun á tónlistarskólanum og hafa þeir því beinan hag af þessari lausn. Því teljum við að það ætti frekar að leita álits óháðs aðila eins og Eflu eða Verkvist sem meðal annars hefur sérhæft sig í svona ástandsskoðunum. Einnig teljum við að leita ætti annarrar umsagnar Heilbrigðiseftirlits Vesturlands áður en húsið er tekið í notkun aftur.
Við bendum á Safna- og menningarmálanefnd var með samkomuhúsið í faglegri meðferð og var með áætlun um að halda íbúðafund um framtíðarnýtingu og endurbætur/endurbyggingu hússins sem var slegin út af borðinu og vísum við til bókunar Íbúalistans á 7. fundi Safna- og menningarmálanefndar 25. febrúar 2026.
Við gerum jafnframt alvarlegar athugasemdir við að Aftanskini og golfklúbbnum hafi verið hleypt inn í húsið til að byggja upp milliveggi, setja upp golfhermi og koma húsinu í „nothæft ástand“ eins og það er kallað, áður en fyrir lá samþykki bæjarstjórnar um framkvæmdina en slík stjórnsýsla er ekki samkvæmt sveitarstjórnarlögum.
Til að taka af allan vafa þá viljum við ítreka það sem við höfum áður sagt að við styðjum ýmiskonar félags-og íþróttastarf í bænum en teljum að Samkomuhúsið við Aðalgötu 6 sé alls ekki heppilegur staður fyrir slíkt starf.
Ragnar Már Ragnarsson
Haukur Garðarsson
Kristján Hildibrandsson
Bókun bæjarfulltrúa H-lista:
H-listinn hafnar því að hér sé ekki um óháðan aðila að ræða þó þeir hafi starfað fyrir sveitarfélagið í einstaka verkefnum. Við bendum á að það hefur Efla líka gert auk fjölda annarra fyrirtækja. H-listinn harmar að verið sé að efast um og draga úr heilindum fyrirtækisins sem starfað hefur fyrir fjölda sveitarfélaga og ríkisstofnana. Það má alveg skoða síðar hvort vert sé að fá aðra aðila að verkinu ef ástæða þykir til þess.
H-listinn hafnar því að framkvæmdin hafi farið gegn sveitastjórnarlögum enda er þar um órökstudda fullyrðingu að ræða.
Að öðru leiti vísum við í fyrri bókun okkar vegna málsins og bendum á að hér er verið að greiða atkvæði um afgreiðslu bæjarráðs sem lýsti áægju sinni með jákvæðar niðurstöður sýnatöku.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir
Steinunn I. Magnúsdóttir
Þórhildur Eyþórsdóttir
Viktoría Líf Valdimarsdóttir
20.Bæjarstjórn unga fólksins
Málsnúmer 2311010Vakta málsnúmer
Bæjarráð samþykkti, á 40. fundi sínum, að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldinn en óskar eftir annarri tillögu að fundartíma sem fellur betur að fyrirliggjandi fundaráætlun bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Ungmennaráð lagði á 10. fundi sínum til að bæjarstjórnarfundur unga fólksins verði haldið 9. apríl, 2026.
Bæjarráð samþykkti, á 42. fundi sínum, fundartíma og vísaði málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.
Samþykkt samhljóða.
21.Skip nr. 1844 - forkaupsréttur sveitarfélagsins
Málsnúmer 2603021Vakta málsnúmer
Samþykkt samhljóða.
22.Minnispunktar bæjarstjóra
Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer
Fundi slitið - kl. 17:38.
Forseti bar upp tillögu um að eftirfarandi mál verði tekið inn á dagskrá fundarins
með afbrigðum:
- 2603021 - Skip nr. 1844 - forkaupsréttur sveitarfélagsins
Samþykkt samhljóða.
Er ofangreint mál sett inn sem mál nr. 21 á dagskrá fundarins.