Fáliðunarstefna í Leikskólanum í Stykkishólmi
Málsnúmer 2604006
Vakta málsnúmerSkóla- og fræðslunefnd - 25. fundur - 14.04.2026
Lögð fram tillaga um gerð fáliðunarstefnu í Leikskólanum í Stykkishólmi.
Skóla- og fræðslunefnd samþykkir fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með fyrirvara um þær breytingar sem ræddar voru á fundinum. Komi til skammtímalokunar vegna fáliðunar skal senda forráðamönnum tölvupóst og þeir forsjáraðilar sem hafa tök á því sækja börn sín fyrr. Ef um langvarandi fáliðun er að ræða skulu börn send heim samkvæmt stafrófsröð, þannig að efstu börn á listanum fari fyrst heim og næst sé haldið áfram í sömu röð þar sem frá var horfið, til að tryggja jafnræði.