Fara í efni

Bæjarráð

43. fundur 27. apríl 2026 kl. 14:15 - 18:46 í bæjarráðssal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir formaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Skóla- og fræðslunefnd - 25

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 25. fundar skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Skipulagsnefnd - 41

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 41. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Velferðar- og jafnréttismálanefnd - 7

Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer

Lögð fram 7. fundargerð velferðar- og jafnréttismálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Bæjarstjórn unga fólksins - 3

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins.
Lagt fram til kynningar.

5.Umsókn um lóð - Nesvegur 14a

Málsnúmer 2604014Vakta málsnúmer

Lögð fram umsókn Jóns Ragnars Daðasonar um lóðina Nesvegur 14a.
Bæjarráð samþykkir að úthluta lóðinni að Nesvegi 14a til Jóns Ragnars Daðasonar.

6.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2112008Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins frá 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Ársreikningur Brákar

Málsnúmer 2604019Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Brákar íbúðarfélags hses. fyrir árið 2025.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir stöðu mála á vettvangi félagsins.

Lagt fram til kynningar.

8.Niðurstöður lesfimi

Málsnúmer 2604008Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram niðurstöður úr lesfimimælingum sem varpa ljósi á stöðu og þróun lestrarfærni nemenda við Grunnskólann í Stykkishólmi. Lesfimi er eitt af lykilmælitækjum í matsferli grunnskóla og gefur vísbendingar um lestrarhraða og nákvæmni, sem eru mikilvægir þættir í námi og hafa jafnframt sterk tengsl við lesskilning og almenna námsframvindu.
Bæjarráð hvetur skólastjórnendur og skóla- og fræðslunefnd að rýna niðurstöðurnar með tilliti til eflingar lesfimi nemenda.

9.Velferðarnefnd undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar þar sem lagt er til að velferðarnefndir sveitarfélagana verði lagðar niður og stofnuð verði ein velferðarnefnd fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi sem verði færð undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.



Bæjarráð óskaði, á 41. fundi sínum, eftir að forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga komi til fundar til þess að geri grein fyrir málinu. Á 42. fundi sínum vísaði bæjarráð málinu til umfjöllunar í velferðar- og jafnréttismálanefnd.



Velferðar- og jafnréttismálanefnd tók málið fyrir á 7. fundi sínum. Á fundinum kom fram að samkvæmt forstöðumanni er þörf á faglegri nefnd, en mál sem snerta Félags- og skólaþjónustu fara ekki lengur til sérhæfðrar velferðarnefndar. Félags- og skólaþjónusta er rekin sameiginlega á Snæfellsnesi, en mismunandi stefnur milli sveitarfélaga torvelda samræmda vinnu. Með sameiginlegri velferðarnefnd yrðu haldnir mánaðarlegir fundir þar sem fjallað er um málefni félags- og skólaþjónustu og velferðar- og jafnréttismál.



Sameiningin er talin styrkja starfsemina. Tillagan fær jákvæð viðbrögð frá velferðar- og jafnréttismálanefnd, en nefndin telur æskilegt að hafa að lágmarki tvo fulltrúa frá hverju sveitarfélagi.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja stofnun sameiginlegrar velferðarnefndar sveitarfélaga á Snæfellsnesi og að viðeigandi breytingar verði gerðar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins til samræmis við það.

10.Beiðni um aðstöðustyrk

Málsnúmer 2604009Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni formanns Snæfells um aðstöðustyrk fyrir héraðsþing HSH.
Bæjarráð staðfestir samþykki sem gefið var í tölvupósti fyrir aðstöðustyrk.

11.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði

Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer

Á 45. fundi bæjarstjórnar var bæjarstjóra veitt umboð til að ræða við og leggja drög að samningnum við eigendur ferðaþjónustuaðila á hafnarsvæðinu um leigu eða kaup á bílastæði í eigu sveitarfélagsins. Fyrir bæjarráð er lögð fram drög að samningi um leigu bílastæða á hafnarsvæði sveitarfélagsins.



Með vísan til fyrirliggjandi samnings er jafnframt lagt til að gjaldtökusvæðið verði afmarkað í samræmi við ákvæði samningsins og að gjaldtaka árið 2026 hefjist 1. júní nk. þannig að mögulegt verði að útbúa skilti, leiðbeiningar og auglýsa nýja gjaldskrá í samræmi við fyrirliggjandi samningsdrög.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi samning, gjaldskrá og tillögu um nýja afmörkun á gjaldskyldusvæði í samræmi við ákvæði samningsins og að gjaldtaka hefjist 1. júní 2026.

Afgreiðsla bæjarráðs er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

12.Beiðni um leyfi vegna rallaksturskeppni

Málsnúmer 2604021Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um leyfi fyrir rallaksturskeppni innan sveitarfélagsins.
Bæjarráð gerir ekki athugasemd við lokun þeirra vega sem sveitarfélagið er veghaldari á gegn því að öll leyfi fyrir keppninni liggi fyrir.

13.Ástand vega í dreifbýli sveitarfélagsins

Málsnúmer 2604023Vakta málsnúmer

Ástand malarvega og heimreiða í dreifbýli sveitarfélagsins tekið til umræðu.
Bæjarráð fer fram á að Vegagerðin framkvæmi úttekt á heimreiðum í dreifbýli sveitarfélagsins og hefji í kjölfarið nauðsynlegt viðhald þar sem þörf er á. Bæjarráð vekur sérstaklega athygli á því að Helgafellsveitarvegur nr. 577 og Sauravegur nr. 5770 er á köflum nánast ófær vegna aurbleytu. Þá liggja fyrir dæmi um að þungatakmarkanir vegna slæms ástands vega hafi hamlað uppbyggingu í dreifbýli, þar sem framkvæmdaraðilar hafa ekki getað komið nauðsynlegum tækjabúnaði á framkvæmdastaði, m.a. á Kársstaði vegna ástands Kársstaðavegar nr. 5781. Bæjarráð telur að bregðast þurfi við þessu ástandi án tafar.
Á fundinn mætti Þóra Margrét Birgisdóttir, skólastjóri

14.Kennslukvóti fyrir skólaárið 2026-2027

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi þar sem óskað er eftir úthlutun kennslumagns fyrir skólaárið 2026-2027 í samræmi við viðmið og verklag sveitarfélagsins.
Bæjarráð samþykkir úthlutun kennslumagns fyrir skólaárið 2026-2027 í samræmi við erindi skólastjóra og vísar afgreiðslu sinni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Þóra Margrét vék af fundi.

15.Erindi frá Félagi lóðarhafa í Arnarborg

Málsnúmer 2604026Vakta málsnúmer

Lögð fram áskorun til sveitarfélagsins frá Félagið lóðarhafa við Arnarborg.
Bæjarráð tekur málið til umfjöllunar og bendir á að sveitarfélagið hefur þegar átt samtal við Skipavík ehf. vegna málsins og til stendur að fara í lagfæringar á tveimur stöðum á veginum þegar frost fer úr jörðu, en að öðru leyti virðist vegurinn vera í viðunandi ástandi en felur bæjarverkstjóra að meta ástand vegarins um nýrækt og grípa til viðeigandi ráðstafana ef þurfa þykir.

16.Berserkjahraun - Breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags

Málsnúmer 2511001Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 41. fundi sínum, að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi og beindi því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð samþykkir að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi og felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Afgreiðsla bæjarráðs er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.

17.Reitarvegur 10 og 12 - Fyrirspurn til skipulagsnefndar

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Skipavík ehf. sækir um leyfi til að rífa núverandi Reitarveg 10 (Kristjánsborg) og gera breytingu á deiliskipulagi við Reitarveg 10 og 12.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 41. fundi sínum, fyrir sitt að rífa Kristjánsborg og vísaði erindinu til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd tók jákvætt í að unnin verði breyting á deiliskipulagi vegna Reitarvegar 10 og 12.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar og vísar henni til staðfestingar í bæjarstjórn.

18.Klapparás - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju breyting á deiliskipulagi Klapparás.

Bæjarráð samþykkti á 42. fundi sínum að skoða ætti tvo möguleika við vinnslu deiliskipulagstillögu, annars vegar með hraðhleðslustöðvum og hins vegar byggingarreit fyrir þjónustu- og atvinnuhúnæði.



Lagðar eru nú fram tvær tillögur með ósk um heimild til að auglýsa þá tillögu sem verður fyrir valinu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsfulltrúi lagði, á 41. fundi skipulagsnefndar, fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, tillaga 1 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að vera með hraðhleðslustöðvar. Tillaga 2 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að byggja þjónustu- og atvinnuhúsnæði.



Skipulagsnefnd valdi tillögu 1. Skipulagsnefnd samþykkti fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klapparás. Enn fremur beindi skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu Skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu 1, með áorðnum breytingum, um breytingu á deiliskipulagi Klapparás í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

19.Breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vestan Borgarbrautar

Málsnúmer 2604012Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna Vatnavíkur, sbr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 41. fundi sínum, fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis. Enn fremur beindi skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu Skipulagsnefndar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Á fundinn mætti Sigurbjartur Loftsson og Þuríður M. Stefánsdóttir, skipulagsfulltrúi

20.Fyrirspurn til skipulagsnefndar - Jónsnes

Málsnúmer 2604010Vakta málsnúmer

Sótt er um undanþágu frá 5.3.2.14 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, Skipulag við vötn, ár og sjó, til að reisa frístundahús í landi Jónsness, þar sem húsið er staðsett í 11.5m hæð frá sjávarmáli og því enginn hætta á flóðum eða skemmdum vegna sjávarágangs.



Skipulagsnefnd benti landeiganda, á 41. fundi sínum, á að sækja þurfi um undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar 90/2013 til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.
Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að veita undanþágu frá ákvæði 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna staðsetningar og umhverfis fyrirhugaðs mannvirkis, þ.m.t vegna hæðar yfir sjávarmáli, að því gefnu að öllum öðrum leyfum og skilyrðum samkvæmt lögum og reglugerðum verði fullnægt.

Bæjarráð áréttar að ábyrgð á framkvæmdinni er alfarið á ábyrgð landeiganda og/eða framkvæmdaraðila.

Jafnframt bendir bæjarráð á að samkvæmt 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er það á valdi félags- og húsnæðismálaráðherra að veita undanþágu frá einstökum ákvæðum skipulagsreglugerðar, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og hlutaðeigandi sveitarfélags.
Sigurbjartur og Þuríður véku af fundi

21.Höfðagata 3

Málsnúmer 2604013Vakta málsnúmer

Eigendur Höfðagötu 3 óska eftir heimild til að breyta stöðu Höfðagötu 3 úr íbúðarhúsnæði í gistihús.



Skipulagsnefnd hafnaði erindinu á 41. fundi sínum. Byggði höfnunin fyrst og fremst á því að húsnæðið er á íbúðarsvæði og gæti skapað fordæmi fyrir önnur svæði í sveitarfélaginu, m.a. húsnæði í næsta nágrenni.
Bæjarráð tekur málið til umfjöllunar og telur ljóst að með samþykki erindisins geti myndast fordæmi fyrir önnur húsnæði á íbúðarsvæði verði fallist á fyrirliggjandi umsókn. Á þeim nótum staðfestir bæjarráð fyrirliggjandi afgreiðslu skipulagsnefndar.
Á fundinn mætti Hjörleifur K. Hjörleifsson, formaður Umf. Snæfells

22.Samningur við Snæfell

Málsnúmer 1905032Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni formanns UMF Snæfells um endurskoðun á samningi félagsins við sveitarfélagið. Bæjarráð vísaði, á 38. fundi sínum, tillögum að breytingum á samningnum til umfjöllunar hjá nefndinni. Æskulýðs- og íþróttanefnd lagði, á 5. fundi, áherslu á mikilvægi þess starfs sem unnið er hjá UMF Snæfell og mikilvægi þess að styðja vel við það starf. Nefndin taldi mikilvægt að vinna málið áfram í samvinnu við félagið með þeim áherslum sem ræddar voru á fundinum, svo sem hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hvað er það sem félagið uppfyllir nú þegar og hverju þarf að bæta við. Varðandi aðra liði telur nefndin að félagið, skólinn og íþróttamiðstöðin geti auðveldlega fundið lausn á þeim málum. Nefndin fól formanni að koma því sem rætt var á framfæri við bæjarráð.



Á 39. fundi bæjarráðs óskaði bæjarráð eftir nánari upplýsingum og rökstuðning frá Snæfell varðandi 20% aukningu á fjárframlagi og hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ með vísan til bókunar æskulýðs- og íþróttanefndar. Bæjarráð vísaði málinu til frekari vinnslu þar til nánari upplýsingar liggja fyrir.



Formaður UMF Snæfells kemur til fundar við bæjarráð.
Bæjarráð þakkar formanni UMF Snæfells fyrir greinargóða og upplýsandi framsögu og lýsir ánægju með það öfluga og mikilvæga starf sem unnið er innan félagsins.

Stuðningur sveitarfélagsins við UMF Snæfell hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum, en beinn árlegur rekstrarstyrkur nam um kr. 1.500.000 árið 2018 og hækkaði í kr. 5.000.000 árið 2021. Samkvæmt núverandi samstarfssamningi sam samþykkur var af bæjarstjórn í janúar 2025 er beinn ársstyrkur kr. 9.600.000 á ári. Þetta jafngildir nær tvöföldun frá fyrri samningstíma og um sexföldun frá því sem áður var. Til viðbótar við beinan rekstrarstyrk nýtur félagið verulegs stuðnings í formi annarra framlaga, m.a. vegna afnota af íþróttamannvirkjum og félagsaðstöðu, þar sem áætlaður styrkur nemur vel yfir 20 millj. kr. á ári, auk annarra sértækra framlaga og þjónustu.

Bæjarráð telur að framangreindur stuðningur sé gríðarlega mikilvægur í ljósi þess hlutverks sem UMF Snæfell gegnir í samfélaginu og leggur áherslu á mikilvægi þess að styðja áfram vel við starfsemi félagsins. Í ljósi þessa tekur bæjarráð jákvætt í að efla enn frekar samstarf og stuðning við starfsemi félagsins í þágu íbúa sveitarfélagsins, ekki síst barna og ungmenna.

Bæjarráð samþykkir að hækka beinan fjárstyrk félagsins í 12 milljónir á ári frá og með árinu 2026 með það að markmiði að UMF Snæfell verði fyrirmyndafélag ÍSÍ árið 2027.
Hjörleifur vék af fundi.

23.Gatnahönnun og gerð útboðsgagna á Hamraendum

Málsnúmer 2604020Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í vinnu við gatnahönnun og gerð útboðsgagna fyrir atvinnusvæði við Hamraenda í Stykkishólmi, í samræmi við samþykkt deiliskipulag. Eitt tilboð barst og var það frá Eflu verkfræðistofu.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tilboð frá Eflu verkfræðistofu.

24.Nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland)

Málsnúmer 2604004Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umfjöllunar nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland) m.t.t. notkunar fyrir eldri nemendur og X-ið.



Rætt var um nýtingu tómstundarhúsnæðisins við Íþróttamiðstöð. Forskóli Tónlistarskóla Stykkishólms nýtir húsnæðið nú til kennslu. Einnig var rætt um mögulega nýtingu húsnæðisins að lokinni starfsemi Regnbogalands, meðal annars fyrir dagopnun félagsmiðstöðvar og/eða starfsemi píludeildar Snæfells.



Skóla- og fræðslunefnd vísaði áframhaldandi umræðu um notkun húsnæðisins til æskulýðs- og íþróttanefndar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar.

25.Fyrirkomulag danmerkurferðar Grunnskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umræðu fyrirkomulag í Danmerkurferð skólans.



Skóla- og fræðslunefnd fól skólastjóra að móta og leggja fram tillögu að fyrirkomulagi slíkra ferða til framtíðar.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar.

26.Fáliðunarstefna í Leikskólanum í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var lögð fram tillaga um gerð fáliðunarstefnu í Leikskólanum í Stykkishólmi.



Skóla- og fræðslunefnd samþykkti fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með fyrirvara um þær breytingar sem ræddar voru á fundinum. Komi til skammtímalokunar vegna fáliðunar skal senda forráðamönnum tölvupóst og þeir forsjáraðilar sem hafa tök á því sækja börn sín fyrr. Ef um langvarandi fáliðun er að ræða skulu börn send heim samkvæmt stafrófsröð, þannig að efstu börn á listanum fari fyrst heim og næst sé haldið áfram í sömu röð þar sem frá var horfið, til að tryggja jafnræði.
Bæjarráð staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar og leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með áorðnum breytingum.

27.Mötuneyti Grunnskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2402001Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn unga fólksins lagði, á 3. fundi sínum, til að gæði og magn skólamáltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi verði bætt. Taldi bæjarstjórn unga fólksins þarft að tryggja að gæðamál í matargerð grunnskólans verði eins og best verður á kosið. Jafnframt var lagt til að skoðað verði fyrirkomulag matartíma unglingastigs þannig að nemendur þurfi ekki sjálfir að flytja mat á milli hæða og nota þess í stað vagna og lyftuna, eða borða í matsalnum á neðri hæð.



Skóla- og fræðslunefnd studdi bókun bæjarstjórnar unga fólksins. Nefndin taldi stöðu mötuneytismála í Grunnskólanum í Stykkishólmi óásættanlega og benti niðurstöður kannana til verulegrar óánægju meðal bæði nemenda og foreldra. Jafnframt var bent á að það liggi fyrir að ekki er að fullu farið eftir leiðbeiningum landlæknisembættisins um skólamötuneyti.



Nefndin benti á að Grunnskólinn í Stykkishólmi er heilsueflandi grunnskóli og þar starfar teymi um heilsueflingu, sem gerir þær aðstæður að mati nefndarinnar enn alvarlegri þar sem mötuneytismál eru lykilþáttur í heilsueflandi skólastarfi. Þá var tiltekið að málefni mötuneytisins hafi ítrekað verið til umfjöllunar hjá skóla- og fræðslunefnd (m.a. á fundum nr. 15 þann 18. september 2024 og nr. 13 þann 8. apríl 2024) án þess að nægjanlegar úrbætur hafi orðið. Nefndin lagði því til að málið verði tekið til heildstæðrar skoðunar, eftir atvikum með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem gæti veitt bæði aðhald og faglegan stuðning.
Bæjarráð tekur undir að full ástæða sé til þess að taka málið til heilstæðrar skoðunar með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem gæti veitt bæði aðhald og faglegan stuðning. Vísar bæjarráð málinu til vinnslu undir málsúmeri 2604007 um markmið skólastofnana á sviði næringar þar sem horft er til þess að fara í heilstæða skoðun á mötuneytum sveitarfélagsins með tilliti til næringar og heilsusamlegs mataræðis sem tæki mið af leiðbeiningum landlæknisembættisins um skólamötuneyti.

28.Markmið skólastofnana á sviði næringar

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunedndar var tekið til umræðu markmið skólastofnana sveitarfélagsins á sviði næringar, en Grunnskólinn í Stykkishólmi er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli þar sem m.a. er lögð áhersla á að heildstæð markmið séu skilgreind á sviði næringar.
Bæjarráð tekur undir að full ástæða sé til að taka málefni mötuneyta skólastofnana sveitarfélagsins til heildstæðrar skoðunar, með það að markmiði að efla næringu og heilsusamlegt mataræði í samræmi við leiðbeiningar Embættis landlæknis um skólamötuneyti.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að í júní 2026 verði skipaður starfshópur með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem vinni með skólastofnunum og starfsfólki mötuneyta að heildstæðri skoðun og gerð tillagna með hliðsjón af framangreindum markmiðum.

29.Starfsemi félags- og skólaþjónustunnar

Málsnúmer 2302036Vakta málsnúmer

Skóla- og fræðslunefnd ítrekaði, á 21. fundi sínum, fyrri bókanir varðandi Félags- og skólaþjónustu FSSF og óskar eftir að skólanefndir Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar fjalli um málið, þar sem þjónustan er þvert á sveitarfélögin. Jafnframt telur nefndin nauðsynlegt að endurskoða samning sveitarfélaganna við FSSF, einkum hvað varðar áherslur í starfsemi og framkvæmd skólahluta þjónustunnar, sem nefndin telur ekki hafa verið í samræmi við þarfir skólanna.



Það er mat skóla- og fræðslunefndar að skoða þurfi alvarlega störf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSSF) varðandi skólaþjónustu stofnunarinnar og áréttar skóla og fræðslunefnd fyrri bókanir nefndarinnar varðandi skólaþjónustuhluta FSSF.



Vill skóla- og fræðslunefnd minna á sameiginlega ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi frá 1. febrúar 2021 varðandi nauðsyn þess að bæta um betur í skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Ákveðið var í framhaldinu að boðað skildi til fundar með FSSF, fulltrúum Fjölbrautarskóla Snæfellinga og skólastjórnendum, skólanefndum og bæjarfulltrúum þeirra sveitarfélaga sem standa að þjónustunni þar sem taka átti til umræðu stöðu skólaþjónustunnar á Snæfellsnesi. Fyrrgreindur fundur fór aldrei fram, væntanlega sökum faraldursins. Skóla- og fræðslunefnd leggur því til við bæjarstjórn Stykkishólms að óskað verði eftir því að umræddur fundur verði haldinn sem allra fyrst.



Á fundinum væri mögulegt að taka til umræðu hvort halda eigi samstarfinu áfram hvað varðar skólaþjónustu á Snæfellsnesi eða hvort beina ætti kröftum FSSF einungis að félags- og velferðarþjónustu. Jafnframt væri hægt að meta hvort hagsmunum barna á svæðinu væri betur borgið með samstarfi við aðra skólaþjónustu, til dæmis í Borgarbyggð, eða með samvinnu um skólaþjónustu á stærra svæði.



Þó skóla- og fræðslunefnd telji að staðan sé og hafi lengi verið óviðunandi hvað þennan þátt varðar í starfsemi stofnunarinnar, vill nefndin leggja áherslu á að þar er ekki við núverandi starfsfólk eða forstöðumann að sakast.
Bæjarráð taka undir með skóla- og fræðslunefndar varðandi mikilvægi skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Bæjarráð beinir því til stjórnar Félags - og skólaþjónustunnar að haldinn verði sameiginlegan fundur með stjórn og starfsfólki Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga með skólastjórnendum og formönnum skólanefnda á Snæfellsnesi ekki síðar en í september 2026.

30.Stefna í málefnum nýrra íbúa

Málsnúmer 2103029Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að stefnumörkun sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa.



Velferðar- og jafnréttismálanefnd tók málið fyrir á 7. fundi sínum.



Nefndin taldi beinagrindina sem komin er góðan grunn að áframhaldandi hugmyndavinnu, en nefndin taldi mikilvægt að hún verði ekki of umfangsmikil eða feli í sér loforð sem erfitt er að standa við, sérstaklega varðandi faglega þjónustu sveitarfélagsins. Skynsamlegt væri að vinna verkefnið í áföngum, þar sem aðgengi að skýrum og gagnlegum upplýsingum væri fyrsta skref.



Nefndin lagði áherslu á að fyrst og fremst tryggja gott upplýsingaflæði til þeirra sem flytja á svæðið, til dæmis með vandaðri og notendavænni heimasíðu og aðgengilegum upplýsingum um samfélagið, svo sem viðburði, félagasamtök, íþrótta- og skólastarf og stéttarfélög. Einnig mætti nýta einfalt kynningarefni, til dæmis plaköt með QR kóða á vinnustöðum og opinberum stöðum. Ekki þyrfti annað en að uppfæra síðuna sem nú þegar er og setja hana á áberandi stað á forsíðu www.stykkisholmur.is. Nefndin lagði líka til að sú vinna ljúki fyrir septemberlok 2026.



Mikilvægt er að koma skýrt á framfæri að allir séu velkomnir til þátttöku í samfélaginu, og bjóða upp á að fólk geti haft samband við sveitarfélagið ef það óskar eftir frekari aðstoð.



Nefndin vísaði málinu til bæjarstjórnar til frekari umræðu, meðal annars þar sem ekki er gert ráð fyrir fjármagni í tengilið sem heldur utan um móttöku og viðtöl.
Bæjarráð tekur undir með Velferðar- og jafnréttismálanefnd og samþykkir drög að móttökuáætlun með áorðnum breytingum.
Samþykkt að vísa málinu til staðfestingar í bæjarstjórn.

31.Knattspyrnuvellir

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísar málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

32.Sturtuklefar í Íþróttamiðstöð Stykkishólms

Málsnúmer 2604001Vakta málsnúmer

Sturtuklefar á neðri hæð Íþróttamiðstöðvar Stykkishólms voru til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að laga vatnsþrýsting og sturtuaðstöðu á neðri hæð íþróttahússins, þar sem vatn dreyfist illa og með litlum þrýstingi.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og bendir á að í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir endurbótum á sturtuklefum á neðri hæð. Að öðru leyti vísar bæjarráð málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

33.Mötuneyti FSN

Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer

Kostnaður vegna þjónustu mötuneytis Fjölbrautaskóla Snæfellinga var til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að leitað verði leiða til að lækka verð eða niðurgreiða skólamat í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Einnig lagði bæjarstjórn unga fólksins til að endurskoðað verði sú ákvörðun um að sleppa fríum hafragraut fyrir nemendur.



Bæjarstjórn unga fólksins óskaði eftir viðbrögðum frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísar málinu til umfjöllunar í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.

34.Leikvellir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.
Bæjarráð tekur undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísar málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.

35.Nesvegur 7

Málsnúmer 2604027Vakta málsnúmer

Lagt fram tilboð í Nesveg 7.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tilboð.

36.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029

Málsnúmer 2604022Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.

Innri leiga er tekjufærð hjá eignasjóði og gjaldfærð hjá viðeigandi stofnun.

Útgjaldaaukning hjá Grunnskóla er mætt með lækkun kostnaðar hjá yfirstjórn.

Kostnaður vegna fjárfestinga í grunnskóla er mætt með lækkun fjárfestinga í stígagerð.
Bæjarráð samþykkir viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Á fundinn mættu Sigurjón Arnarson og Helena Sigurðardóttir frá KPMG

37.Ársreikningur Sveitarfélagsins Stykkishólms 2025

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025.
Bæjarráð samþykkir ársreikning og vísar ársreikningi til fyrri umræði í bæjarstjórn.
Sigurjón og Helena véku af fundi.

Fundi slitið - kl. 18:46.

Getum við bætt efni síðunnar?