Fara í efni

Bæjarstjórn

47. fundur 30. apríl 2026 kl. 17:08 - 18:19 í bæjarstjórnarsal
Nefndarmenn
  • Steinunn Ingibjörg Magnúsdóttir aðalmaður
  • Þórhildur Eyþórsdóttir aðalmaður
  • Ragnar Ingi Sigurðsson aðalmaður
  • Ragnar Már Ragnarsson aðalmaður
  • Haukur Garðarsson (HG) aðalmaður
  • Hrafnhildur Hallvarðsdóttir Forseti
  • Heiðrún Höskuldsdóttir (HHÖ) aðalmaður
Starfsmenn
  • Jakob Björgvin Jakobsson bæjarstjóri
  • Jón Sindri Emilsson starfsmaður tæknisviðs
  • Gyða Steinsdóttir bæjarritari
Fundargerð ritaði: Gyða Steinsdóttir Skrifstofu- og fjármálastjóri
Dagskrá

1.Skóla- og fræðslunefnd - 25

Málsnúmer 2604003FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 25. fundar skóla- og fræðslunefndar.
Lagt fram til kynningar.

2.Skipulagsnefnd - 41

Málsnúmer 2604002FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 41. fundar skipulagsnefndar.
Lagt fram til kynningar.

3.Velferðar- og jafnréttismálanefnd - 7

Málsnúmer 2604005FVakta málsnúmer

Lögð fram 7. fundargerð velferðar- og jafnréttismálanefndar.
Lagt fram til kynningar.

4.Bæjarstjórn unga fólksins - 3

Málsnúmer 2604001FVakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins.
Lagt fram til kynningar.

5.Bæjarráð - 43

Málsnúmer 2604006FVakta málsnúmer

Lögð fram 43. fundargerð bæjarráðs.
Lagt fram til kynningar.

6.Fundargerðir Sambands íslenskra sveitarfélaga

Málsnúmer 2112008Vakta málsnúmer

Lögð fram fundargerð 993. fundar stjórnar Sambandsins frá 18. febrúar 2026.
Lagt fram til kynningar.

7.Ársreikningur Brákar

Málsnúmer 2604019Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur Brákar íbúðarfélags hses. fyrir árið 2025.
Lagt fram til kynningar.

8.Velferðarnefnd undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga

Málsnúmer 2602018Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá bæjarstjórn Snæfellsbæjar þar sem lagt er til að velferðarnefndir sveitarfélagana verði lagðar niður og stofnuð verði ein velferðarnefnd fyrir sveitarfélögin á Snæfellsnesi sem verði færð undir stjórn Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga.



Bæjarráð óskaði, á 41. fundi sínum, eftir að forstöðumaður Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga komi til fundar til þess að geri grein fyrir málinu. Á 42. fundi sínum vísaði bæjarráð málinu til umfjöllunar í velferðar- og jafnréttismálanefnd.



Velferðar- og jafnréttismálanefnd tók málið fyrir á 7. fundi sínum. Á fundinum kom fram að samkvæmt forstöðumanni er þörf á faglegri nefnd, en mál sem snerta Félags- og skólaþjónustu fara ekki lengur til sérhæfðrar velferðarnefndar. Félags- og skólaþjónusta er rekin sameiginlega á Snæfellsnesi, en mismunandi stefnur milli sveitarfélaga torvelda samræmda vinnu. Með sameiginlegri velferðarnefnd yrðu haldnir mánaðarlegir fundir þar sem fjallað er um málefni félags- og skólaþjónustu og velferðar- og jafnréttismál.



Sameiningin er talin styrkja starfsemina. Tillagan fékk jákvæð viðbrögð frá velferðar- og jafnréttismálanefnd, en nefndin taldi æskilegt að hafa að lágmarki tvo fulltrúa frá hverju sveitarfélagi.



Bæjarráð lagði, á 43. fundi sínum, til við bæjarstjórn að samþykkja stofnun sameiginlegrar velferðarnefndar sveitarfélaga á Snæfellsnesi og að viðeigandi breytingar verði gerðar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins til samræmis við það.
Bæjarstjórn samþykkir stofnun sameiginlegrar velferðarnefndar sveitarfélaga á Snæfellsnesi og að viðeigandi breytingar verði gerðar á samþykkt um stjórn sveitarfélagsins til samræmis við það.

Samþykkt samhljóða.

9.Gjaldtaka bílastæða á hafnarsvæði

Málsnúmer 1909018Vakta málsnúmer

Á 45. fundi bæjarstjórnar var bæjarstjóra veitt umboð til að ræða við og leggja drög að samningnum við eigendur ferðaþjónustuaðila á hafnarsvæðinu um leigu eða kaup á bílastæði í eigu sveitarfélagsins. Fyrir bæjarráð er lögð fram drög að samningi um leigu bílastæða á hafnarsvæði sveitarfélagsins.



Með vísan til fyrirliggjandi samnings er jafnframt lagt til að gjaldtökusvæðið verði afmarkað í samræmi við ákvæði samningsins og að gjaldtaka árið 2026 hefjist 1. júní nk. þannig að mögulegt verði að útbúa skilti, leiðbeiningar og auglýsa nýja gjaldskrá í samræmi við fyrirliggjandi samningsdrög.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, fyrirliggjandi samning, gjaldskrá og tillögu um nýja afmörkun á gjaldskyldusvæði í samræmi við ákvæði samningsins og að gjaldtaka hefjist 1. júní 2026.



Afgreiðsla bæjarráðs er er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

10.Beiðni um leyfi vegna rallaksturskeppni

Málsnúmer 2604021Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni um leyfi fyrir rallaksturskeppni innan sveitarfélagsins.



Bæjarráð gerði, á 43. fundi sínum, ekki athugasemd við lokun þeirra vega sem sveitarfélagið er veghaldari á gegn því að öll leyfi fyrir keppninni liggi fyrir.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

11.Vegir í dreifbýli

Málsnúmer 2604023Vakta málsnúmer

Ástand malarvega og heimreiða í dreifbýli sveitarfélagsins var tekið til umræðu á 43. fundi bæjarráðs.



Bæjarráð fór fram á að Vegagerðin framkvæmi úttekt á heimreiðum í dreifbýli sveitarfélagsins og hefji í kjölfarið nauðsynlegt viðhald þar sem þörf er á. Bæjarráð vakti sérstaklega athygli á því að Helgafellsveitarvegur nr. 577 og Sauravegur nr. 5770 er á köflum nánast ófær vegna aurbleytu. Þá liggja fyrir dæmi um að þungatakmarkanir vegna slæms ástands vega hafi hamlað uppbyggingu í dreifbýli, þar sem framkvæmdaraðilar hafa ekki getað komið nauðsynlegum tækjabúnaði á framkvæmdastaði, m.a. á Kársstaði vegna ástands Kársstaðavegar nr. 5781. Bæjarráð taldi að bregðast þurfi við þessu ástandi án tafar.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.
Ragnar Ingi Sigurðsson vék af fundi.

12.Kennslukvóti fyrir skólaárið 2026-2027

Málsnúmer 2604024Vakta málsnúmer

Lagt fram erindi frá skólastjóra Grunnskólans í Stykkishólmi þar sem óskað er eftir úthlutun kennslumagns fyrir skólaárið 2026-2027 í samræmi við viðmið og verklag sveitarfélagsins.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, úthlutun kennslumagns fyrir skólaárið 2026-2027 í samræmi við erindi skólastjóra og vísaði afgreiðslu sinni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt með sex greiddum atkvæðum.
Ragnar kom inná fund.

13.Berserkjahraun - Breyting á aðalskipulagi og gerð nýs deiliskipulags

Málsnúmer 2511001Vakta málsnúmer

Óskað er eftir heimild til að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi Helgafellssveitar 2012-2022, sbr. 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd heimilaði, á 41. fundi sínum, að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi og beindi því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, að grenndarkynna óverulega breytingu á aðalskipulagi og fól skipulagsfulltrúa að grenndarkynna tillöguna í samræmi við 2. mgr. 36. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Afgreiðslu bæjarráðs er vísað til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

14.Reitarvegur 10 og 12 - Fyrirspurn

Málsnúmer 2604011Vakta málsnúmer

Skipavík ehf. sækir um leyfi til að rífa núverandi Reitarveg 10 (Kristjánsborg) og gera breytingu á deiliskipulagi við Reitarveg 10 og 12.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 41. fundi sínum, fyrir sitt að rífa Kristjánsborg og vísaði erindinu til byggingarfulltrúa. Skipulagsnefnd tók jákvætt í að unnin verði breyting á deiliskipulagi vegna Reitarvegar 10 og 12.



Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu skipulagsnefndar og vísaði henni til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu skipulagsnefndar.

Samþykkt samhljóða.
Fylgiskjöl:

15.Klapparás - deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2603008Vakta málsnúmer

Lögð fram að nýju breyting á deiliskipulagi Klapparás.

Bæjarráð samþykkti á 42. fundi sínum að skoða ætti tvo möguleika við vinnslu deiliskipulagstillögu, annars vegar með hraðhleðslustöðvum og hins vegar byggingarreit fyrir þjónustu- og atvinnuhúnæði.



Lagðar eru nú fram tvær tillögur með ósk um heimild til að auglýsa þá tillögu sem verður fyrir valinu, sbr. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsfulltrúi lagði, á 41. fundi skipulagsnefndar, fram tvær tillögur að breytingu á deiliskipulagi Klapparás, tillaga 1 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að vera með hraðhleðslustöðvar. Tillaga 2 tekur til stækkunar á lóð Atlantsolíu og lóð 3 þar sem heimilt er að byggja þjónustu- og atvinnuhúsnæði.



Skipulagsnefnd valdi tillögu 1. Skipulagsnefnd samþykkti fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Klapparás. Enn fremur beindi skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu Skipulagsnefndar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu 1, með áorðnum breytingum, um breytingu á deiliskipulagi Klapparás í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til bókunar skipulagsnefndar, að auglýsa tillögu 1, með áorðnum breytingum, um breytingu á deiliskipulagi Klapparás í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

16.Breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis vestan Borgarbrautar

Málsnúmer 2604012Vakta málsnúmer

Lögð fram breyting á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna Vatnavíkur, sbr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Skipulagsnefnd samþykkti, á 41. fundi sínum, fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis. Enn fremur beindi skipulagsnefnd því til bæjarstjórnar að skipulagsfulltrúa verði falið að auglýsa tillöguna í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.



Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu Skipulagsnefndar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til bókunar skiuplagsnefndar, að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Samþykkt samhljóða.

17.Jónsnes - Umsókn

Málsnúmer 2604010Vakta málsnúmer

Sótt er um undanþágu frá 5.3.2.14 gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013, Skipulag við vötn, ár og sjó, til að reisa frístundahús í landi Jónsness, þar sem húsið er staðsett í 11.5m hæð frá sjávarmáli og því enginn hætta á flóðum eða skemmdum vegna sjávarágangs.



Skipulagsnefnd benti landeiganda, á 41. fundi sínum, á að sækja þurfi um undanþágu frá 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar 90/2013 til Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, fyrir sitt leyti að veita undanþágu frá ákvæði 5.3.2.14. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 vegna staðsetningar og umhverfis fyrirhugaðs mannvirkis, þ.m.t vegna hæðar yfir sjávarmáli, að því gefnu að öllum öðrum leyfum og skilyrðum samkvæmt lögum og reglugerðum verði fullnægt.



Bæjarráð áréttaði að ábyrgð á framkvæmdinni er alfarið á ábyrgð landeiganda og/eða framkvæmdaraðila.



Jafnframt benti bæjarráð á að samkvæmt 13. mgr. 45. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er það á valdi félags- og húsnæðismálaráðherra að veita undanþágu frá einstökum ákvæðum skipulagsreglugerðar, að fenginni umsögn Skipulagsstofnunar og hlutaðeigandi sveitarfélags.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt með 4 atkvæðum H-lista bæjarfulltrúa H-lista. Ragnar Már Ragnarsson og Heiðrún Höskuldsóttir, bæjarfulltrúa Í-lista, greiddu atkvæði á móti afgreiðslunni. Haukur Garðarson, bæjarfulltrúi Í-lista, sat hjá við afgreiðslu málsins.

Til máls tók: RMR

18.Höfðagata 3

Málsnúmer 2604013Vakta málsnúmer

Eigendur Höfðagötu 3 óska eftir heimild til að breyta stöðu Höfðagötu 3 úr íbúðarhúsnæði í gistihús.



Skipulagsnefnd hafnaði erindinu á 41. fundi sínum. Byggði höfnunin fyrst og fremst á því að húsnæðið er á íbúðarsvæði og gæti skapað fordæmi fyrir önnur svæði í sveitarfélaginu, m.a. húsnæði í næsta nágrenni.



Bæjarráð tók málið til umfjöllunar á 43. fundi sínum og taldi ljóst að með samþykki erindisins geti myndast fordæmi fyrir önnur húsnæði á íbúðarsvæði verði fallist á fyrirliggjandi umsókn. Á þeim nótum staðfesti bæjarráð fyrirliggjandi afgreiðslu skipulagsnefndar.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: ÞE, RMR

19.Samningur við Snæfell

Málsnúmer 1905032Vakta málsnúmer

Lögð fram beiðni formanns UMF Snæfells um endurskoðun á samningi félagsins við sveitarfélagið. Bæjarráð vísaði, á 38. fundi sínum, tillögum að breytingum á samningnum til umfjöllunar hjá nefndinni. Æskulýðs- og íþróttanefnd lagði, á 5. fundi, áherslu á mikilvægi þess starfs sem unnið er hjá UMF Snæfell og mikilvægi þess að styðja vel við það starf. Nefndin taldi mikilvægt að vinna málið áfram í samvinnu við félagið með þeim áherslum sem ræddar voru á fundinum, svo sem hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ. Hvað er það sem félagið uppfyllir nú þegar og hverju þarf að bæta við. Varðandi aðra liði telur nefndin að félagið, skólinn og íþróttamiðstöðin geti auðveldlega fundið lausn á þeim málum. Nefndin fól formanni að koma því sem rætt var á framfæri við bæjarráð.



Á 39. fundi bæjarráðs óskaði bæjarráð eftir nánari upplýsingum og rökstuðning frá Snæfell varðandi 20% aukningu á fjárframlagi og hvað það felur í sér að vera fyrirmyndarfélag ÍSÍ með vísan til bókunar æskulýðs- og íþróttanefndar. Bæjarráð vísaði málinu til frekari vinnslu þar til nánari upplýsingar liggja fyrir.



Formaður UMF Snæfells kom til fundar við bæjarráð á 43. fundi ráðsins.



Bæjarráð þakkaði formanni UMF Snæfells fyrir greinargóða og upplýsandi framsögu og lýsti ánægju með það öfluga og mikilvæga starf sem unnið er innan félagsins.



Stuðningur sveitarfélagsins við UMF Snæfell hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum, en beinn árlegur rekstrarstyrkur nam um kr. 1.500.000 árið 2018 og hækkaði í kr. 5.000.000 árið 2021. Samkvæmt núverandi samstarfssamningi sam samþykkur var af bæjarstjórn í janúar 2025 er beinn ársstyrkur kr. 9.600.000 á ári. Þetta jafngildir nær tvöföldun frá fyrri samningstíma og um sexföldun frá því sem áður var. Til viðbótar við beinan rekstrarstyrk nýtur félagið verulegs stuðnings í formi annarra framlaga, m.a. vegna afnota af íþróttamannvirkjum og félagsaðstöðu, þar sem áætlaður styrkur nemur vel yfir 20 millj. kr. á ári, auk annarra sértækra framlaga og þjónustu.



Bæjarráð taldi að framangreindur stuðningur sé gríðarlega mikilvægur í ljósi þess hlutverks sem UMF Snæfell gegnir í samfélaginu og lagði áherslu á mikilvægi þess að styðja áfram vel við starfsemi félagsins. Í ljósi þessa tók bæjarráð jákvætt í að efla enn frekar samstarf og stuðning við starfsemi félagsins í þágu íbúa sveitarfélagsins, ekki síst barna og ungmenna.



Bæjarráð samþykkti að hækka beinan fjárstyrk félagsins í 12 milljónir á ári frá og með árinu 2026 með það að markmiði að UMF Snæfell verði fyrirmyndafélag ÍSÍ árið 2027.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn ásamt því að viðauki 1 við samstarfssamning milli sveitarfélagsins og UMF Snæfells sem byggir á framangreindri afgreiðslu er lagður fram til samþykktar.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs og samþykkir viðauka 1 við samstarfssamning milli sveitarfélagsins og UMF Snæfells.

Samþykkt samhljóða.

20.Fáliðunarstefna í Leikskólanum í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var lögð fram tillaga um gerð fáliðunarstefnu í Leikskólanum í Stykkishólmi.



Skóla- og fræðslunefnd samþykkti fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með fyrirvara um þær breytingar sem ræddar voru á fundinum. Komi til skammtímalokunar vegna fáliðunar skal senda forráðamönnum tölvupóst og þeir forsjáraðilar sem hafa tök á því sækja börn sín fyrr. Ef um langvarandi fáliðun er að ræða skulu börn send heim samkvæmt stafrófsröð, þannig að efstu börn á listanum fari fyrst heim og næst sé haldið áfram í sömu röð þar sem frá var horfið, til að tryggja jafnræði.



Bæjarráð staðfesti, á 43. fundi sínum, afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar og lagði til við bæjarstjórn að samþykkja fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með áorðnum breytingum.
Bæjarstjórn samþykkir fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með áorðnum breytingum.

Samþykkt samhljóða.

21.Markmið skólastofnana á sviði næringar

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Á 25. fundi skóla- og fræðslunefndar var tekið til umræðu markmið skólastofnana sveitarfélagsins á sviði næringar, en Grunnskólinn í Stykkishólmi er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli þar sem m.a. er lögð áhersla á að heildstæð markmið séu skilgreind á sviði næringar.



Bæjarstjórn unga fólksins tók málið einnig til umræðu á 3. fundi sínum og lagði fram ályktun sem skerpir á heilsueflandi áherslum.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir að full ástæða sé til að taka málefni mötuneyta skólastofnana sveitarfélagsins til heildstæðrar skoðunar, með það að markmiði að efla næringu og heilsusamlegt mataræði í samræmi við leiðbeiningar Embættis landlæknis um skólamötuneyti.



Bæjarráð lagði til við bæjarstjórn að í júní 2026 verði skipaður starfshópur með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem vinni með skólastofnunum og starfsfólki mötuneyta að heildstæðri skoðun og gerð tillagna með hliðsjón af framangreindum markmiðum.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tóku: RMR, SIM.

22.Starfsemi félags- og skólaþjónustunnar

Málsnúmer 2302036Vakta málsnúmer

Skóla- og fræðslunefnd ítrekaði, á 21. fundi sínum, fyrri bókanir varðandi Félags- og skólaþjónustu FSSF og óskar eftir að skólanefndir Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar fjalli um málið, þar sem þjónustan er þvert á sveitarfélögin. Jafnframt telur nefndin nauðsynlegt að endurskoða samning sveitarfélaganna við FSSF, einkum hvað varðar áherslur í starfsemi og framkvæmd skólahluta þjónustunnar, sem nefndin telur ekki hafa verið í samræmi við þarfir skólanna.



Það er mat skóla- og fræðslunefndar að skoða þurfi alvarlega störf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSSF) varðandi skólaþjónustu stofnunarinnar og áréttar skóla og fræðslunefnd fyrri bókanir nefndarinnar varðandi skólaþjónustuhluta FSSF.



Vill skóla- og fræðslunefnd minna á sameiginlega ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi frá 1. febrúar 2021 varðandi nauðsyn þess að bæta um betur í skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Ákveðið var í framhaldinu að boðað skildi til fundar með FSSF, fulltrúum Fjölbrautarskóla Snæfellinga og skólastjórnendum, skólanefndum og bæjarfulltrúum þeirra sveitarfélaga sem standa að þjónustunni þar sem taka átti til umræðu stöðu skólaþjónustunnar á Snæfellsnesi. Fyrrgreindur fundur fór aldrei fram, væntanlega sökum faraldursins. Skóla- og fræðslunefnd leggur því til við bæjarstjórn Stykkishólms að óskað verði eftir því að umræddur fundur verði haldinn sem allra fyrst.



Á fundinum væri mögulegt að taka til umræðu hvort halda eigi samstarfinu áfram hvað varðar skólaþjónustu á Snæfellsnesi eða hvort beina ætti kröftum FSSF einungis að félags- og velferðarþjónustu. Jafnframt væri hægt að meta hvort hagsmunum barna á svæðinu væri betur borgið með samstarfi við aðra skólaþjónustu, til dæmis í Borgarbyggð, eða með samvinnu um skólaþjónustu á stærra svæði.



Þó skóla- og fræðslunefnd telji að staðan sé og hafi lengi verið óviðunandi hvað þennan þátt varðar í starfsemi stofnunarinnar, vill nefndin leggja áherslu á að þar er ekki við núverandi starfsfólk eða forstöðumann að sakast.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir með skóla- og fræðslunefndar varðandi mikilvægi skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Bæjarráð beindi því til stjórnar Félags - og skólaþjónustunnar að haldinn verði sameiginlegan fundur með stjórn og starfsfólki Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga með skólastjórnendum og formönnum skólanefnda á Snæfellsnesi ekki síðar en í september 2026.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók RMR

23.Stefna í málefnum nýrra íbúa

Málsnúmer 2103029Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga að stefnumörkun sveitarfélagsins í málefnum nýrra íbúa.



Velferðar- og jafnréttismálanefnd tók málið fyrir á 7. fundi sínum.



Nefndin taldi beinagrindina sem komin er góðan grunn að áframhaldandi hugmyndavinnu, en nefndin taldi mikilvægt að hún verði ekki of umfangsmikil eða feli í sér loforð sem erfitt er að standa við, sérstaklega varðandi faglega þjónustu sveitarfélagsins. Skynsamlegt væri að vinna verkefnið í áföngum, þar sem aðgengi að skýrum og gagnlegum upplýsingum væri fyrsta skref.



Nefndin lagði áherslu á að fyrst og fremst tryggja gott upplýsingaflæði til þeirra sem flytja á svæðið, til dæmis með vandaðri og notendavænni heimasíðu og aðgengilegum upplýsingum um samfélagið, svo sem viðburði, félagasamtök, íþrótta- og skólastarf og stéttarfélög. Einnig mætti nýta einfalt kynningarefni, til dæmis plaköt með QR kóða á vinnustöðum og opinberum stöðum. Ekki þyrfti annað en að uppfæra síðuna sem nú þegar er og setja hana á áberandi stað á forsíðu www.stykkisholmur.is. Nefndin lagði líka til að sú vinna ljúki fyrir septemberlok 2026.



Mikilvægt er að koma skýrt á framfæri að allir séu velkomnir til þátttöku í samfélaginu, og bjóða upp á að fólk geti haft samband við sveitarfélagið ef það óskar eftir frekari aðstoð.



Nefndin vísaði málinu til bæjarstjórnar til frekari umræðu, meðal annars þar sem ekki er gert ráð fyrir fjármagni í tengilið sem heldur utan um móttöku og viðtöl.



Bæjarráð tók, á 43. fundi, undir með Velferðar- og jafnréttismálanefnd og samþykkti drög að móttökuáætlun með áorðnum breytingum.



Bæjarráð samþykkti að vísa stefnumörkun í málefnum nýrra íbúa, með áorðnum breytingum, til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir stefnumörkun í málefnum nýrra íbúa, með áorðnum breytingum.

Samþykkt samhljóða.

24.Knattspyrnuvellir

Málsnúmer 2505002Vakta málsnúmer

Málefni knattspyrnuvallar og stúku voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að auka viðhald á knattspyrnuvelli sveitarfélagsins og einnig að auka viðhald á stúkunni sem stendur við völlinn.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Aðgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

Til máls tók RMR

25.Sturtuklefar í Íþróttamiðstöð Stykkishólms

Málsnúmer 2604001Vakta málsnúmer

Sturtuklefar á neðri hæð Íþróttamiðstöðvar Stykkishólms voru til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að laga vatnsþrýsting og sturtuaðstöðu á neðri hæð íþróttahússins, þar sem vatn dreyfist illa og með litlum þrýstingi.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og benti á að í fjárhagsáætlun 2026 er gert ráð fyrir endurbótum á sturtuklefum á neðri hæð. Að öðru leyti vísaði bæjarráð málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

26.Mötuneyti FSN

Málsnúmer 2604002Vakta málsnúmer

Kostnaður vegna þjónustu mötuneytis Fjölbrautaskóla Snæfellinga var til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins



Bæjarstjórn unga fólksins lagði til að leitað verði leiða til að lækka verð eða niðurgreiða skólamat í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Einnig lagði bæjarstjórn unga fólksins til að endurskoðað verði sú ákvörðun um að sleppa fríum hafragraut fyrir nemendur.



Bæjarstjórn unga fólksins óskaði eftir viðbrögðum frá Fjölbrautaskóla Snæfellinga.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í skólanefnd Fjölbrautaskóla Snæfellinga.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarráði.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

27.Leikvellir í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604003Vakta málsnúmer

Leikvellir og leiktæki í Stykkishólmi voru tekin til umræðu á 3. fundi bæjarstjórnar unga fólksins.



Bæjarstjórn unga fólksins hvatti bæjaryfirvöld til þess að fara í úrbætur á leikvöllum í sveitarfélaginu, með það að leiðarljósi að hafa leikvellina fjölbreytta og aðgengilega.



Bæjarráð tók, á 43. fundi sínum, undir afgreiðslu 3. fundar bæjarstjórnar unga fólksins og vísaði málinu til umfjöllunar í æskulýðs- og íþróttanefnd.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

28.Nesvegur 7

Málsnúmer 2604027Vakta málsnúmer

Lagt fram kauptilboð í Nesveg 7.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, fyrirliggjandi tilboð.



Afgreiðsla bæjarráðs er lögð fram til staðfestingar í bæjarstjórn.
Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs.

Samþykkt samhljóða.

29.Kjörskrá vegna sveitarstjórnarkosninga árið 2026

Málsnúmer 2604033Vakta málsnúmer

Kjörskrárstofn til Sveitastjórnakosninga 16. maí 2026 framlagður.
Bæjarstjórn staðfestir framlagða kjörskrá og felur bæjarstjóra umboð til að undirrita hana, yfirfara og staðfesta breytingar sem kunna að verða gerðar á kjörskránni fram til kosninga í samræmi við III. kafla laga nr. 112/2021, um kosningar til sveitarstjórna. Þær breytingar sem kunna að vera gerðar á kjörskránni verða lagðar fram og kynntar á næsta fundi bæjarstjórnar.

Samþykkt samhljóða.

30.Viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029

Málsnúmer 2604022Vakta málsnúmer

Lagður fram viðauki 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.

Innri leiga er tekjufærð hjá eignasjóði og gjaldfærð hjá viðeigandi stofnun.

Útgjaldaaukning hjá Grunnskóla er mætt með lækkun kostnaðar hjá yfirstjórn.

Kostnaður vegna fjárfestinga í grunnskóla er mætt með lækkun fjárfestinga í stígagerð.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.
Bæjarstjórn samþykkir, með vísan til bókunar bæjarráðs, fyrirliggjandi viðauka 1 við fjárhagsáætlun 2026-2029.

Samþykkt samhljóða.

31.Ársreikningur Sveitarfélagsins Stykkishólms 2025

Málsnúmer 2604025Vakta málsnúmer

Lagður fram ársreikningur sveitarfélagsins fyrir árið 2025.



Bæjarráð samþykkti, á 43. fundi sínum, að vísa ársreikningi til fyrri umræðu í bæjarstjórn.



Þá er lögð fram tillaga forseta um að næsti bæjarstjórnarfundur og þar með síðari umræða um ársreikning verði haldinn á Amtsbókasafninu og að lokinni kynningu á ársreikningi verður bæjarstjórnarfundi slitið og upptöku fundar hætt og í framhaldi gefist íbúum kostur á því að spyrja eða leggja til athugasemdir vegna ársreikningsins 2025.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir helstu lykiltölum ársreiknings Sveitarfélagsins Stykkishólms fyrir árið 2025:

Rekstrartekjur samkvæmt ársreikningi fyrir A og B hluta námu 2.709 millj. kr. á árinu en þar af námu rekstrartekjur A hluta 2.444 millj. kr. Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir og fjármagnsliði í A og B hluta var jákvæð um 353 millj. kr. og rekstrarniðurstaða án fjármunatekna og fjármagnsgjalda var jákvæð um 246 millj. kr. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 96 millj. kr. en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu að fjárhæð 100 millj. kr.

Rekstrarniðurstaða A hluta var jákvæð um 3 milljónir en fjárhagsáætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir jákvæðri rekstrarniðurstöðu um12 milljónir.
Rekstrartekjur A og B hluta jukust um 6,7% milli ára. Eru tekjur ársins í takt við áætlun. Rekstrargjöld jukust um 4,5% milli ára og eru 3% hærri en áætlun með viðaukum hafði gert ráð fyrir.

Veltufé frá rekstri nam á árinu 2025 291 millj. kr. samanborið við 206 millj. kr. árið áður. Handbært fé í árslok nam 63 millj. kr. og lækkaði um 10 millj. kr. á árinu.

Fjárfestingahreyfingar A og B hluta á árinu 2025 námu 312 millj. kr. Lántökur á árinu námu 325 millj. kr. og afborganir langtímalána voru 231 millj. kr.

Helstu fjárfestingar 2025:
-Grunnskóli 68 milljónir
-Regnbogaland 52 milljónir
-Íþróttahús 60 milljónir
-Sundlaug 38 milljónir
-Fráveituframkvæmdir 47 milljónir
-Gatnagerð 139 milljónir
-Stígagerð, gangstéttir og leikvellir 15 milljónir.

Skuldaviðmið A og B hluta Sveitarfélagsins Stykkishólmur í árslok 2025 var 111% en rekstrarjöfnuður A og B hluta síðastliðinna þriggja ára er jákvæður um 78 millj. kr. Er það ánægjulegur viðsnúningur en hann hefur verið neikvæður samfellt frá árinu 2021.

Áherslur bæjarstjórnar á árinu 2025 og á yfirstandandi ári eru áfram þær sömu. Það er að skapa áfram eftirsóknarvert umhverfi fyrir fólk og fyrirtæki, standa vörð um grunnþjónustu sveitarfélagsins, sérstaklega um hag barna og fjölskyldna þeirra og eldra fólks, og sækja af ábyrgð fram með samfélagslega mikilvægum fjárfestingum innviða sem komi til með að skapa svigrúm til eflingar samfélagsins á svæðinu á sama tíma og stefnt er að því að tryggja að skuldaviðmið og skuldahlutföll séu að lækka markvisst á tímabilinu. Þessar áherslur og markmið bæjarstjórnar endurspeglast í fyrirliggjandi ársreikningi og samþykktum áætlunum, en það er alltaf áskorun frá degi til dags að tryggja að þessi markmið nái fram að ganga.


Samkvæmt 1. mgr. 64. gr. sveitarstjórnarlaga ber bæjarstjórn að sjá til þess að rekstri, fjárfestingum og ráðstöfun eigna og sjóða sé þannig hagað á hverjum tíma að sveitarfélagið muni til framtíðar geta sinnt skyldubundnum verkefnum sínum. Samkvæmt niðurstöðu ársreiknings og áætlana sveitarfélagsins er ekkert bendir til þess að sú skylda bæjarstjórnar sé ekki uppfyllt.

Áfram þarf að leggja áherslu á ábyrga fjármálastjórnun þar sem gætt er aðhalds og ábyrgðar í rekstri sveitarfélagsins á sama tíma og þjónusta við íbúa verði eins og best verður á kosið. Það þarf að huga að því og vinna markvisst að því að ná enn meira upp veltufé frá rekstri, sem þarf að standa undir afborgunum skulda og skuldbindinga, líkt og endurspeglast í fyrirliggjandi ársreikningi. Bæjarstjórn og stjórnendur sveitarfélagsins þurfa áfram að vera og eru vakandi fyrir ákveðnum þáttum í rekstri sem endurspeglast í þessum ársreikningi, nú sem fyrr.

---

Bæjarstjórn samþykkir að vísa ársreikningi sveitarfélagsins til síðari umræðu í bæjarstjórn.

Bæjarstjórn samþykkir jafnframt tillögu forseta.

Samþykkt samhljóða.

32.Minnispunktar bæjarstjóra

Málsnúmer 1808022Vakta málsnúmer

Lagðir fram minnispunktar bæjarstjóra.
Bæjarstjóri gerir grein fyrir minnispunktum sínum.

Fundi slitið - kl. 18:19.

Getum við bætt efni síðunnar?