Fara í efni

Skóla- og fræðslunefnd

25. fundur 14. apríl 2026 kl. 16:15 - 19:25 í fundarsal á 3. hæð
Nefndarmenn
  • Agnes Helga Sigurðardóttir formaður
  • Sigurður Grétar Jónasson aðalmaður
  • Steinunn Helgadóttir (SH) aðalmaður
  • Aron Bjarni Valgeirsson aðalmaður
  • Kristín Rós Jóhannesdóttir aðalmaður
Starfsmenn
  • Sigrún Þórsteinsdóttir (SÞó) skólastjóri leikskóla
  • Berglind Eva Ólafsdóttir fulltrúi starfsmanna leikskóla
  • Veronika G. Sigurvinsdóttir
  • Þóra Margrét Birgisdóttir skólastjóri grunnskóla
  • Steinunn María Þórsdóttir
Fundargerð ritaði: Kristín Rós Jóhannesdóttir ritari
Dagskrá

1.Starfsemi Leikskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910039Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Leikskólans í Stykkishólmi, stjórnendur fara yfir starfsemi skólans.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Rætt var um verkefnið Frá leik til læsis, sem Ásgarður skólaráðgjöf heldur utan um. Verkefnið er samstarfsverkefni leik- og grunnskóla og veitir heildstæða yfirsýn yfir færniþróun nemenda. Almenn ánægja er með framkvæmd og gagnsemi verkefnisins.

Skóla- og fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Leikskólans fyrir sitt leyti.

2.Starfsemi Grunnskólans í Stykkishólmi - Greinargerð stjórnenda

Málsnúmer 1910040Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Grunnskólans í Stykkishólmi, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Rætt var um áskoranir tengdar skólasókn og velt upp hvort þörf væri á að móta skýrari verkferla á vegum sveitarfélagsins til að bregðast við slíkum málum. Kom fram að úrræði skorti til að mæta þessum hópi nemenda og að ekki fengist nægjanleg þjónusta frá félags- og skólaþjónustunni.

Skóla- og fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Grunnskólans fyrir sitt leyti.

3.Starfsemi Tónlistaskóla Stykkishólms - Greinargerð stjórnanda

Málsnúmer 1910043Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Tónlistarskóla Stykkishólms, skólastjóri fer yfir starfsemi skólans.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

Ánægjulegt var að heyra að umsóknir hafi borist vegna stöðu aðstoðarskólastjóra.

Skóla- og fræðslunefnd samþykkir skóladagatal Tónlistarskólans fyrir sitt leyti.

4.Starfsemi Regnbogalands - skýrsla og yfirferð

Málsnúmer 1910041Vakta málsnúmer

Lögð fram skýrsla Regnbogalands, umsjónarmaður fer yfir starfsemina.
Skýrsla lögð fram til kynningar.

5.Nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland)

Málsnúmer 2604004Vakta málsnúmer

Tekið til umfjöllunar nýting á tómstundarhúsnæði við Íþróttamiðstöð (Regnbogaland) m.t.t. notkunar fyrir eldri nemendur og X-ið.
Rætt var um nýtingu tómstundarhúsnæðisins við Íþróttamiðstöð. Forskóli Tónlistarskóla Stykkishólms nýtir húsnæðið nú til kennslu. Einnig var rætt um mögulega nýtingu húsnæðisins að lokinni starfsemi Regnbogalands, meðal annars fyrir dagopnun félagsmiðstöðvar og/eða starfsemi píludeildar Snæfells.

Skóla- og fræðslunefnd vísar áframhaldandi umræðu um notkun húsnæðisins til æskulýðs- og íþróttanefndar.

6.Fyrirkomulag danmerkurferðar Grunnskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604005Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu fyrirkomulag í Danmerkurferð skólans.
Tekið var til umræðu fyrirkomulag Danmerkurferðarlags/útskriftarferðalags skólans.

Skóla- og fræðslunefnd felur skólastjóra að móta og leggja fram tillögu að fyrirkomulagi slíkra ferða til framtíðar.

7.Fáliðunarstefna í Leikskólanum í Stykkishólmi

Málsnúmer 2604006Vakta málsnúmer

Lögð fram tillaga um gerð fáliðunarstefnu í Leikskólanum í Stykkishólmi.
Skóla- og fræðslunefnd samþykkir fáliðunarstefnu Leikskólans í Stykkishólmi með fyrirvara um þær breytingar sem ræddar voru á fundinum. Komi til skammtímalokunar vegna fáliðunar skal senda forráðamönnum tölvupóst og þeir forsjáraðilar sem hafa tök á því sækja börn sín fyrr. Ef um langvarandi fáliðun er að ræða skulu börn send heim samkvæmt stafrófsröð, þannig að efstu börn á listanum fari fyrst heim og næst sé haldið áfram í sömu röð þar sem frá var horfið, til að tryggja jafnræði.

8.Markmið skólastofnana á sviði næringar

Málsnúmer 2604007Vakta málsnúmer

Tekið til umræðu markmið skólastofnana sveitarfélagsins á sviði næringar, en Grunnskólinn í Stykkishólmi er þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli þar sem m.a. er lögð áhersla á að heildstæð markmið séu skilgreind á sviði næringar.
Staða mötuneytismála í Grunnskólanum voru rædd.

9.Niðurstöður lesfimi

Málsnúmer 2604008Vakta málsnúmer

Lagðar eru fram niðurstöður úr lesfimimælingum sem varpa ljósi á stöðu og þróun lestrarfærni nemenda við Grunnskólann í Stykkishólmi. Lesfimi er eitt af lykilmælitækjum í matsferli grunnskóla og gefur vísbendingar um lestrarhraða og nákvæmni, sem eru mikilvægir þættir í námi og hafa jafnframt sterk tengsl við lesskilning og almenna námsframvindu.



Niðurstöðurnar benda til þess að staða nemenda í Stykkishólmi sé undir því sem best gerist á landsvísu og að töluvert rými sé til umbóta í þessum efnum.
Farið var yfir niðurstöður mælinganna og kynntar aðgerðir og umbætur til að bregðast við þeim.

10.Mötuneyti Grunnskólans í Stykkishólmi

Málsnúmer 2402001Vakta málsnúmer

Bæjarstjórn unga fólksins lagði, á 3. fundi sínum, til að gæði og magn skólamáltíða við Grunnskólann í Stykkishólmi verði bætt. Taldi bæjarstjórn unga fólksins þarft að tryggja að gæðamál í matargerð grunnskólans verði eins og best verður á kosið. Jafnframt var lagt til að skoðað verði fyrirkomulag matartíma unglingastigs þannig að nemendur þurfi ekki sjálfir að flytja mat á milli hæða og nota þess í stað vagna og lyftuna, eða borða í matsalnum á neðri hæð.
Skóla- og fræðslunefnd styður bókun bæjarstjórnar unga fólksins. Nefndin telur stöðu mötuneytismála í Grunnskólanum í Stykkishólmi óásættanlega og benda niðurstöður kannana til verulegrar óánægju meðal bæði nemenda og foreldra. Jafnframt liggur fyrir að ekki er að fullu farið eftir leiðbeiningum landlæknisembættisins um skólamötuneyti.
Grunnskólinn í Stykkishólmi er heilsueflandi grunnskóli og þar starfar teymi um heilsueflingu, sem gerir þær aðstæður að mati nefndarinnar enn alvarlegri þar sem mötuneytismál eru lykilþáttur í heilsueflandi skólastarfi.
Málefni mötuneytisins hafa ítrekað verið til umfjöllunar hjá skóla- og fræðslunefnd (m.a. á fundum nr. 15 þann 18. september 2024 og nr. 13 þann 8. apríl 2024) án þess að nægjanlegar úrbætur hafi orðið. Nefndin leggur því til að málið verði tekið til heildstæðrar skoðunar, eftir atvikum með aðkomu utanaðkomandi fagaðila sem gæti veitt bæði aðhald og faglegan stuðning

11.Starfsemi félags- og skólaþjónustunnar

Málsnúmer 2302036Vakta málsnúmer

Skóla- og fræðslunefnd ítrekar fyrri bókanir varðandi Félags- og skólaþjónustu FSSF og óskar eftir að skólanefndir Grundarfjarðarbæjar og Snæfellsbæjar fjalli um málið, þar sem þjónustan er þvert á sveitarfélögin. Jafnframt telur nefndin nauðsynlegt að endurskoða samning sveitarfélaganna við FSSF, einkum hvað varðar áherslur í starfsemi og framkvæmd skólahluta þjónustunnar, sem nefndin telur ekki hafa verið í samræmi við þarfir skólanna.

Það er mat skóla- og fræðslunefndar að skoða þurfi alvarlega störf Félags- og skólaþjónustu Snæfellinga (FSSF) varðandi skólaþjónustu stofnunarinnar og áréttar skóla og fræðslunefnd fyrri bókanir nefndarinnar varðandi skólaþjónustuhluta FSSF.

Vill skóla- og fræðslunefnd minna á sameiginlega ályktun skólastjórnenda á Snæfellsnesi frá 1. febrúar 2021 varðandi nauðsyn þess að bæta um betur í skólaþjónustu á Snæfellsnesi. Ákveðið var í framhaldinu að boðað skildi til fundar með FSSF, fulltrúum Fjölbrautarskóla Snæfellinga og skólastjórnendum, skólanefndum og bæjarfulltrúum þeirra sveitarfélaga sem standa að þjónustunni þar sem taka átti til umræðu stöðu skólaþjónustunnar á Snæfellsnesi. Fyrrgreindur fundur fór aldrei fram, væntanlega sökum faraldursins. Skóla- og fræðslunefnd leggur því til við bæjarstjórn Stykkishólms að óskað verði eftir því að umræddur fundur verði haldinn sem allra fyrst.

Á fundinum væri mögulegt að taka til umræðu hvort halda eigi samstarfinu áfram hvað varðar skólaþjónustu á Snæfellsnesi eða hvort beina ætti kröftum FSSF einungis að félags- og velferðarþjónustu. Jafnframt væri hægt að meta hvort hagsmunum barna á svæðinu væri betur borgið með samstarfi við aðra skólaþjónustu, til dæmis í Borgarbyggð, eða með samvinnu um skólaþjónustu á stærra svæði.

Þó skóla- og fræðslunefnd telji að staðan sé og hafi lengi verið óviðunandi hvað þennan þátt varðar í starfsemi stofnunarinnar, vill nefndin leggja áherslu á að þar er ekki við núverandi starfsfólk eða forstöðumann að sakast.

Fundi slitið - kl. 19:25.

Getum við bætt efni síðunnar?