Niðurstöður grunnskólakönnunar Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar (ÍÆ) vorið 2026
Málsnúmer 2608027
Vakta málsnúmerBæjarráð - 45. fundur - 20.08.2026
Lagðar fram niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.
Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar í skóla- og fræðslunefnd.
Skóla- og fræðslunefnd - 27. fundur - 07.09.2026
Lagðar fram niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.
Bæjarráð vísaði, á 45. fundi sínum, málinu til umfjöllunar í skóla- og fræðslunefnd.

Skóla- og fræðslunefnd telur heildarmyndina nokkuð jákvæða, sérstaklega hvað varðar skóla, vináttu, fjölskyldu- og öryggismál. Aftur á móti er andleg líðan nemenda, hreyfing og einelti þau atriði sem helst kalla á athygli. Nefndin telur jafnframt mikilvægt að huga að áhrifum mikillar samfélagsmiðlanotkunar ungs fólks á líðan og félagsleg samskipti.
Nefndin hvetur skólastjórnendur til að rýna niðurstöður rannsóknar og nýta þær til að greina styrkleika og áskoranir í skólastarfinu og efla eftir atvikum aðgerðir sem stuðla að bættri líðan, öryggi og heilbrigðum lífsháttum nemenda.
Nefndin telur mikilvægt að niðurstöður rannsóknarinnar verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun skóla- og forvarnarstarfs.

Bæjarráð - 46. fundur - 17.09.2026
Lagðar fram niðurstöður Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar vorið 2026.
Bæjarráð vísaði, á 45. fundi sínum, málinu til umfjöllunar í skóla- og fræðslunefnd.
Skóla- og fræðslunefnd tók málið fyrir á 27. fundi sínum. Nefndin taldi heildarmyndina nokkuð jákvæða, sérstaklega hvað varðar skóla, vináttu, fjölskyldu- og öryggismál. Aftur á móti er andleg líðan nemenda, hreyfing og einelti þau atriði sem helst kalla á athygli. Nefndin taldi jafnframt mikilvægt að huga að áhrifum mikillar samfélagsmiðlanotkunar ungs fólks á líðan og félagsleg samskipti.
Nefndin hvatti skólastjórnendur til að rýna niðurstöður rannsóknar og nýta þær til að greina styrkleika og áskoranir í skólastarfinu og efla eftir atvikum aðgerðir sem stuðla að bættri líðan, öryggi og heilbrigðum lífsháttum nemenda.
Nefndin taldir mikilvægt að niðurstöður rannsóknarinnar verði hafðar til hliðsjónar við áframhaldandi þróun skóla- og forvarnarstarfs.

Bæjarráð tekur undir og staðfestir afgreiðslu skóla- og fræðslunefndar.